Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2002, Blaðsíða 36

Heima er bezt - 01.04.2002, Blaðsíða 36
gamall, vetri eftir þat, er Gellir Þorkellssonr, föðurfaðir minn ok fóstri andaðist, ok vark þar fjórtán vetr.“ Eftir ffamhaldi Njálu að dæma verður ekki annað séð en að Hallur verði eftir um sinn í Haukadal, hefur sennilega verið búinn að fá nóg af manndrápum ferðafélaganna. En Þangbrandur og Guðleifur halda áfram áleiðis til Þingvalla. I leiðinni mæta þeir manni sem sagði þeim að Þorvaldur inn veili hafi safnað liði og sé með flokk sinn við Hest- læk í Grímsnesi: „Ekki skulum vér ríða at síðr,“ segir Guðleifr, „til fundar við hann.“ Ok sneru þeir síðan ofan til Hestlækjar. Þor- valdr var kominn yfir lækinn. Guðleifr mælti til Þang- brands: „Hér er nú Þorvaldr, ok hlaupum nú at honum.“ Ekki þarf að orðlengja það meir að þeir vinna þar báðir til samans á Þorvaldi. Þar með voru þeir félagar komnir með íjögur mannvíg á samvikuna frá því að lagt var af stað frá Þvottá nokkrum dögum áður. „Eftir þat ríða þeir á þing upp, ok hafði svá nær, at frændr Þorvalds myndi ganga at þeim. Veittu þeir Njáll ok Austfirðingar Þangbrandi “ Með því líkur frásögn Njálu af kristniboðsferð Þang- brands til Alþingis í samfylgd með Síðu-Halli. Ari fróði segir að Gissur hvíti Teitsson, Ketilbjarnarsonar frá Mos- felli og tengdasonur hans Hjalti Skeggjason úr Þjórsárdal hafi látið skírast hjá Þangbrandi og að eftir það hafi Hjalti kveðið eftirfarandi kviðling að Lögbergi: „ Vilk eigi goð geyja. Eg vil eigi lasta goðin. Grey þykki mér Freyja. Eg met Freyju sem tík. “ Samkvæmt Kristni-sögu, var Hjalti dæmdur sekur fjör- baugsmaður um goðgá fyrir kveðskapinn og fyrir því hafi staðið Runólfur goði. Það sumar fóru þeir Hjalti og Gissur utan á fúnd Ólafs konungs í Niðarósi. „Þangbrandr flutti skörugliga guðs erindi á þingi, ok tóku þá margir menn við trú í Sunnlendingafjórðungi ok Norðlendingafjórðungi.“ Kristniboðsferðir Þangbrands verða ekki raktar lengur hér, annað en að sagt er að hann komi aftur um haustið til Síðu-Halls og hafi haft þar aðra vetrar dvöl.4 Sumarið eftir árið 999 þegar Þangbrandur ætlar út aftur verður hann fyrir því óhappi að brjóta skip sitt Vísund, austur við Búlands- nes. Eftir frásögn Njálu að dæma notar hann tímann á meðan skipið er í viðgerð og fer aftur allt vestur á Barða- strönd, til Gests Oddleifssonar í Haga og þaðan aftur aust- ur í „Á1 f'tafjörð til móts við Síðu-Hall. Hann lét bæta skip sitt ok kölluðu heiðnir menn þat járnmeis. A því skipi fór Þangbrandr útan ok Guðleifr með honum.“ 4 I Safnriti, eru ferðalög Þangbrands rakin og ártöl samræmd, samkv. frásögnum Is- Iendinga-bókar, Kristni-sögu, Njáls sögu, Sturlungu og Laxdælu. Safnrit til sögu ís- lands um tímatal í íslendinga sögum. Guðbrandur Vigfússon, K.höfn, 1856, bls.429- 434. Papaós. Vesturhorn (séð til vesturs). Forsaga kristnitökunnar Trúboðinn Eftir að hafa skoðað frásagnir Kristni sögu og Njáls sögu, um komu Þangbrands prests til íslands, síðsumars árið 997, ferðalag hans suður um Álftafjörð og þær mót- tökur sem hann fékk af Síðu-Halli á Þvottá, er rétt að gera sér grein fyrir því af hverju Ólafur konungur Trygvason sendir Þangbrand trúboða sinn til Síðu-Halls, frekar en einhvers annars af höfðingjum landsins. Árið áður sendi Ólafúr konungur Stefni Þorgilsson til að kristna íslend- inga. Ferð Stefnis var algerlega nrislukkuð, svo að konungi hefur sjálfsagt verið það ljóst að meira þyrfti við. Þess vegna er það að hann sendir Þangbrand prest til Síðu- Halls, með þau skilaboð að hann taki vel á móti honum og greiði götu hans. Konungur hefur eflaust haft þær spumir af Síðu-Halli að hann væri vilhallur kristninni, og vinsæll höfðingi sem margir íslendingar tækju tillit til. Við skulum nú áður en lengra er haldið, skoða í hnot- skurn þær forsendur sem ég, er þetta rita, tel helstar á þeim grundvelli sem þekktustu fornsagnaritara okkar íslendinga segja frá atburðum. Hver var Ólafur Tryggvason? „Óláfr konungr Tryggvasonr, Óláfssonar, Haraldssonar ins hárfagra, kom kristni í Norveg ok á ísland. Hann sendi hingat til lands prest þann, er hét Þangbrandr ok hér kendi mönnum kristni ok skírði þá alla, er við trú tóku. En Hallr á Síðu Þorsteinssonr lét skírast snimhendis ok Hjalti Skeggjason ór Þjórsárdal ok Gissur inn hvíti Teitssonr, Ketilbjarnarsonar frá Mosfelli, ok margir höfðingjar aðr- ir.“5 Úrtök úr sögu Ólafs konungs Tryggvasonar, í Heimskringlu Snorra Sturlusonar, og Þorvalds þætti víð- förla, í Flateyjarbók Ólafúr Tryggvason réttkjörinn erfingi norskrar konungs- tignar eftir langafa hans Harald hárfagra, komst til valda í Noregi, árið 995, 27 ára gamall (f. 968). Hann hafði þá 5 íslendingabók Ara fróða 7, kapituli bls. 8. 17 6 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.