Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2002, Side 38

Heima er bezt - 01.04.2002, Side 38
stóð þannig á fyrir Hákoni jarli, að hann var á flótta undan reiðum bændum og faldi sig í jarðhúsi undir svínastíu, ásamt með Karki þræl sínum. Það endaði með því að þrællinn skar höfuð af húsbónda sínum og færði það Ólafi sér til lífgjafar, en það dugði honum skammt. I Niðarósi „Óláfr Tryggvason var til konungs tekinn í Þrándheimi á alsherjarþingi um land allt, svá sem haft hafði Haraldr inn hárfagri. Hljóp þá upp múgr ok margmenni ok vildi eigi annat heyra en Óláfr Tryggvason skyldi konungr vera. Óláff konungr fór liði sínu út til Niðaróss; þá lét hann reysa þar hús á Niðar-bakka ok skipaði svá, at þar skyldi vera kaupstaðr, ok gaf mönnu þar toptir til að gera sér þar hús, en hann lét gera konungsgarð upp frá Skipakrók.“ Hér eftir fer örstutt mannlýsing Snorra, á Ólafi konungi: „Óláfr konungr var allra manna glaðastr ok leikinn mjök, blíðr ok eftirlátr, ákafa maðr mikill um alla hluti, stórgjöfúll, sundrgerða maðr mikill, fyrir öllum mönnum í fræknleik í orustum, allra manna grimmastr, þá er hann var reiðr, ok kvaldi óvini sína mjök, suma brendi hann í eldi, suma lét hann óða hunda rífa í sundr, suma lemja eða kasta fyrir hábjörg.“ Þegar er Ólafur hafði tekið við konungdóm yfir Noregi, tók hann þegar til við að kristna landsmenn sína um allan Noreg, með þeim aðferðum sem lýst hefur verið. Menn gengust undir kristniboðun hans ýmist með góðum vilja, af undirgefni, eða af hræðslu. Þeir sem ekki hlýddu skil- yrðislaust voru aflífaðir með ýmsum hætti. Það mætti helst ætla að lærifeður hans hafi gleymt að fræða hann um 5. boðorð Mósebókar: „Þú skallt ekki mann deyða.“ En því miður, nútímamanninum ferst oft á tíðum samt lítt að hneykslast á harðýðgi Ólafs konungs. En Ólafur konungur hafði ekki gleymt því ætlunarverki sínu að kristna Islendinga, Færeyinga og Grænlendinga. Samkvæmt Kristnisögu, (árið 996,) sendir Ólafur konung- ur, Islending, sem með honum var, að nafni Stefnir Þor- gilsson, til kristniboðs á íslandi. Stefnir var frændmargur á Kjalarnesi og voru forfeður hans kristnir við landnám. En þeir höfðu nú tapað hinni kristnu trú sinni og brugðust hin- ir verstu við trúboði Stefnis, en skutu þó yfir hann skjóls- húsi. Á þingi sumarið eftir sóttu þeir hann til saka um goð- gá. Sendiferð Stefnis bar því lítinn eða nær engan árangur enda virðist sem hún hafi lítt verið undirbúin og mátti hann þakka fyrir að sleppa lifandi úr þeirri ferð. Árið eftir um mitt sumar er hann kominn til baka til Þrándheims, „ok tók Ólafr konungr vel vit honum.“ Við grípum þessu næst til frásagnar Snorra Sturlusonar, um trúboð Ólafs konungs á Islandi. Þangbrandur Vilbaldursson „Þá er Ólafr konungr hafði verit II, vetr konungr at Nor- egi, var með honum saxneskr prestr, sá er nefndr er Þang- brandr; hann var ofstopamaðr mikill ok vígamaðr, en klerkr góðr ok maðr vaskr; en fyrir sakir óspegðar hans, þá vildi konungr eigi hann með sér hafa ok fékk honum sendiferð þá, at hann skyldi fara til íslands ok kristna landit; var honum kaupskip fengit, ok er frá hans ferð þat at segja, at hann kom til íslands í Austljörðu, í Álftafjörð inn syðra, ok var eftir um veturinn með Halli á Síðu. Þang- brandr boðaði kristni á íslandi, ok af hans orðum lét Hallr skírask ok hjón hans öll ok margir aðrir höfðingjar, en miklu fleyri váru hinir, er í móti mæltu. Þorvaldr veili ok Vetrliði skáld ortu níð um Þangbrand, en hann drap þá báða. Þangbrandr dvalðisk II, vetr á íslandi ok varð III, manna bani, áðr hann fór brott.12 Ólafur Tryggvason og Þorvaldur víðförli í upphafi þessara þátta er vitnað til frásagnar Flateyjar- bókar, þar sem segir að Ólafur Tryggvason finni Þorvald Koðránsson. Þetta á að hafa gerst stuttu eftir að Þorvaldur kom úr kristniboðsferðinni til íslands. í þeirri frásögn er Ólafur ætíð titlaður „konungur.“ Bað konungur Þorvald að segja sér lfá trú sinni og frá kristniboðs ferðum sínum um Island: „Er mér mikil forvitni trúlegum tíðindum þeim er þú munt segja kunna, fyrst af ágætum jarðteignum Jesú Kristi guðs þíns og síðan af ýmsum löndum og ókunnum þjóð- um, þar næst af þínum athöfnum og frækilegum framgöng- um. En þá er Þorvaldur sagði frá því er á íslandi hafði gerst, þá er þeir Friðrekur biskup voru þar, frétti konungur vandlega að hverju eða hversu margir þar hefðu af þeirra orðum rétta trú tekið eða hver maður hefði auðveldlegast játað kristninni eða hverjir mest hefðu mótmælt. En Þor- valdur sagði það allt greinilega.“ Af þessari frásögn Flateyjarbókar, verður það helst ráðið að Ólafur konungur, hafi þá verið farinn að hugsa til kristniboðs á íslandi og því viljað fræðast um það hjá Þor- valdi, hverjar aðstæður þar væru og hverjir af landsmönn- um væru líklegastir til að taka vinsamlega á móti boðber- um kristilegrar trúar. í Þorvalds þætti víðförla eru tilgreindir nokkrir helstu höfðingjar sem þeir Friðrekur biskup hafi hitt og sungið messur fyrir og eru þar nefndir með nöfnum Þóroddur goði, Gissur hvíti, Ásgrímur Elliða-Grimsson, Hjalti Skeggjason og Síðu-Hallur Þorsteinsson. Eftir þessar við- ræður Ólafs og Þorvaldar, er konungur orðinn margs fróð- ari um það hverjir séu líklegastir til að taka með vinsemd á móti kristniboðum hans. Þegar Ólafur konungur sendi Stefni Þorgilsson til Is- lands, hefur honum verið það vel ljóst af samskiptum sín- um við norðmenn, að meira þyrfti til en að senda einn mann þangað. Það hefur aðeins verið undirbúningur og áfangi í þeirri ætlan Ólafs konungs að kristna íslendinga. Þessar tvær frásagnir skýra það mjög vel hversvegna Síðu-Hallur á Þvottá, var undir það búinn að taka á móti Þangbrandi og greiða götu hans við kristniboðun, um landið. 178 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.