Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2002, Síða 43

Heima er bezt - 01.04.2002, Síða 43
ÞEIR LÆRÐU AÐ NOTA ELDINN ^l^X^ugtök eins og ár og öld eða tími hafa harla óljósa merkingu, þegar um sögu jarðar eða ^aldur lífvera er að ræða. Allt þetta gerist á svo óralöngum tíma að erfitt er að hugsa sér það eða skilja að nokkru marki. Til glöggvunar má samt geta þess að jörð- in er talin vera 4600 milljón ára gömul og varð hún til, þegar ein- hver logandi hraunsletta losnaði frá sólinni og fór að snúast og lifa eig- in lífi á markaðri braut í kringum móðurhnött- inn. í fyrstu var jörðin glóandi eldhnöttur, en smám saman kólnaði ytra byrði hennar og fékk á sig fasta skel. Þegar svo var komið höfðu skapast skilyrði til þess að lífverur gætu orðið til og þróast. Komu þá fram i aldanna rás fyrir meira 3000 milljón árum ýmsar teg- undir einfrumunga, gerla og blágrænuþörunga. Við segj- um gjarna að þessir frumherjar jarðlífsins hafi komið fram á svonefndri upphafsöld og nær það tímaskeið yfir afar langan tíma. Eftir upphafsöld tekur við fornlífsöld og nær yfir tíma- bilið frá því fyrir 600 til 220 milljón árum. Á því tímabili komst mikill skriður á þróun lífveranna og komu þá fram skordýr, skeldýr, fiskar, skriðdýr, burknar og loks barr- skógar. Því næst er svo talað um miðlífsöld frá því fyrir 220 til 65 milljón árum. Á þeim öldum þróuðust skrið- dýrin margvíslega og urðu sum þeirra ótrúlega stórvaxin, svo að þá er talað um risaeðlur. Einnig komu þá fram fyrstu fuglarnir og sumar tegundir skriðdýra þróuðust í átt til frumstæðra spendýra. Þá byrja líka blómplöntur að vaxa og breiðast út um jörðina. En undir lok miðlífsaldar gerist eitthvað stórkost- legt sem veldur því að risaeðlurnar líða undir lok. Eru til margar kenn- ingar um ástæður þess eins og mikil eldgos, loftsteinaregn, stórfelld- ar loftslagsbreytingar og sitthvað fleira. Síðan hófst nýlífstími fyrir 65 milljón árum og stendur fram til nútíma. Á þessu tímaskeiði eru fyrstu 62 milljón árin nefnd tertíertímabil og næstu 3 milljón ár kall- ast kvartertímabil fram að nútíma. En það til- tölulega stutta keið sem við köllum nútíma nær aðeins yfir síðustu 10-12 þúsund árin frá því að síðusta ísöld leið. Á tertíertímabilinu þróuðust spendýrin sem og aðrar lífverur i dýra- og jurtaríkinu. Þá urðu til á síðari hluta þessa tímabils elstu lögin í undirstöðubergi íslands fyrir um 20 milljón árum. Kvartertíminn eða síðustu þrjár áramilljónirnar skiptast svo í fjölmargar ísaldir með hlý- viðraskeiðum á milli. Á þeim tíma urðu Tjörneslögin til, en þau eru mjög auðug af merkilegum steingervingum. Kvartertíminn sýnist hafa verið ákaflega íjölbreytilegt þróunarskeið hjá mörgum lífverum og á það ekki hvað Heima er bezt 183

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.