Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2002, Side 44

Heima er bezt - 01.04.2002, Side 44
síst við um þá tegund sem á máli vísindanna kallast homo eða maður. Ekki verður sagt með nokkurri vissu hvenær maðurinn kemur fram á sjónarsviðið, en talið er að þróun lífvera í átt til mannsins hafi byrjað með nýlífstíma fyrir meira en 60 milljón árum. Fjölmargar apategundir hafa þróast á mismunandi tímaskeiðum. Sumar tegundirnar hafa dáið út, en aðrar haldið velli og tek- ið breytingum. í hópi þessara apategunda er mannættin sem á vísindamáli kallast homini- dae. Talið er að þróunarskiln- aður apa- og mannættar hafi byrjað fyrir allt að 20 milljón árum. Þá voru uppi svonefndir ræðisapar sem virðast standa á krossgötum í þróunarsögunni. Frá þeim greinast annars vegar eikapar, forfeður mannapa, og hins vegar ramapar sem gætu verið líffræðilegir forfeður mannættar. Næsti hlekkur í langri þróunarsögu mannsins er sunnapinn sem leyfar hafa fúndist af í Austur-Afríku og uppi var fyrir 4-3 milljón árum. Það er samt mikið álita- mál hvort sunnapinn hafi verið maður. En þessar lífverur mynduðu samfélagshópa, bjuggu í hellum, veiddu sér til matar og notuðu frumstæð áhöld í lífsbaráttu sinni. Svo gerðist það fyrir 2-3 milljón árum að fram kom ný tegund sunnapa sem sýnist standa mönnum miklu nær. Kallast þessi tegund homo habilis eða hæfimaður. Næsta stig á þróunarferli manns- ins birtist síðan fyrir meira en milljón árum, þegar homo erectus eða upprétti maðurinn kemur fram og tekur að láta að sér kveða. Þessi upprétti maður eða reismaður, er ótvírætt maður í okkar skilningi. Hann gerði sér ýmis áhöld og verkfæri, stundaði veiðar, safnaði ætijurtum, berjum og aldinum, myndaði samfélög og það sem mest var um vert, þá hafði reismaðurinn tekið eldinn í þjónustu sína. Engin önnur dýrategund hefur megnað að tileinka sér þá tækni, hvorki fyrr né síðar. Hvernig þessari einu tegund lærðist þessi list er mikil ráðgáta, en eldurinn hef- ur alltaf verið til staðar í náttúrunnar ríki. Stundum kviknar eldur af sjálfu sér í þurrum gróðri í sterku sól- skini eða þá að elding kveikir í gresju eða skógi. Þá verða alltaf eldgos öðru hverju á jörðinni og glóandi hraun- straumar brenna allt sem brunnið getur, svo að víða var eldurinn nærtækur. Maðurinn hefur því frá öndverðu þekkt eldinn í ýmsum myndum, þótt lengi vel kynni hann ekki að notfæra sér hann og stæði trúlega stuggur af honum. En þegar þess- um frummönnum hafði lærst að nota sér eldinn, má segja að þeir hafi sigrast á myrkrinu og getað boðið kuldanum birginn. Þá gat eldurinn verið gagnlegur til að fæla burt villidýr og herða spjótsodda og þess háttar. Þá leið heldur ekki á löngu þar til maðurinn lærði að steikja kjöt og fisk við eld og síðar að sjóða mat í vatni. Loks mun eldurinn snemma hafa verið notaður við trúarathafnir og til að fremja með honum galdur og seið. En eldinum þurfti að halda lifandi frá degi til dags og því varð að gæta hans vandlega. Það þekkj- um við líka frá okkar sögu, því að forfeður okkar og formæður, töluðu um að fela eldinn á kvöldin og taka hann síðan upp á morgnana. Var þessi meðferð og geymsla á eldinum alkunn hér á landi langt fram á 19. öld eða þangað til eldspýtur tóku að breiðast út á seinni hluta 19. aldar. Meðal elstu áhalda frummanna voru steinar sem gripnir voru upp af jörðinni til ýmislegra nota. Mannapar gera það sama enn í dag og henda oft steinum eða berja með þeim til að brjóta hnetur og fleira. Þetta gerðu líka sunnapar fyrir 3-4 milljón árum, en frændi hans af mannættinni, hæfimað- urinn, fann upp þá list að brjóta steinana. Með því fékk hann á þá skarpar brúnir og gat þannig búið til ýmis verkfæri. Reismaðurinn endurbætti síðan mjög þessi áhöld og hjá þeim komu fram eins konar handsaxir eða kneijur fyrir meira en milljón árum. Þessi frummaður sem við nefnum homo erectus eða reismann breiddist í aldanna rás út um Afríku, Asíu og Evrópu, en tengiliðimir milli hans og vitsmunamannsins, homo sapi- ens, eru óljósir og huldir myrkri löngu liðins tíma. Leifar þessara frummanna hafa þó verið dregnar fram í dags- ljósið á síðari tímum. Til þessa stofns teljast Javamaður- inn, fyrst fundinn 1891, Heidelbergmaðurinn, fundinn 1907, og Pekingmaðurinn, fundinn 1926. Út frá þessum beinafundum hafa menn getað áttað sig á helstu einkenn- um reismannsins. Hann var með lágt enni, öfluga brúna- boga, flatan hnakka og sterklega og næstum hökulausan neðri kjálka. Þá var öll líkamsbygging hans harla luraleg og hæðin varla yfir 150 sentimetrar. En þessir Ijarlægu forfeður mannkynsins þróuðust og tóku margvíslegum breytingum í aldanna rás, áður en fram kom maður, homo sapiens, eins og við þekkjum hann nú á dögum ^ 184 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.