Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2002, Síða 51

Heima er bezt - 01.04.2002, Síða 51
- Láttu hann skýla þér á heimleiðinni, drengur minn, segir hann hlýjum rómi og hneppir frakkanum að piltin- um. Hópurinn heldur þegar af stað til heimilis ungu hjón- anna og spölurinn þangað er ekki ýkja langur. Kjell fer fýrstur inn í húsið og kveikir á öllum ljósum, því næst býður hann gestinum að ganga í bæinn. Pilturinn stígur inn í skínandi birtu og notalegan yl, sem streymir á móti honum og fyrir sjónum hans er eins og opnist ný veröld. Hann losar af sér frakkann sem skýldi honum vel á göngunni og réttir hann eigandanum með þakklæti fyrir lánið, Jafnskjótt og hann hefur af- klæðst frakkanum flæðir ljósadýrðin óhindrað um fatal- arfana sem hylja nekt hans og hann finnur til sárrar blygðunar vegna klæðnaðar síns á þessari stóru hátíð sem gengin er í garð, en hann á fátt annað til að skýla sér með. Því er líkast að Asbjörg lesi hugrenningar Andra, hún réttir honum höndina, kynnir sig og býður hann velkom- inn. - Þú ert jólagesturinn sem okkur vantaði, segir hún al- úðlega og þrýstir kalda hönd piltsins. - Nú læt ég renna í bað handa þér og finn hrein föt sem ég vona að verði ekki til lýta of stór á þig, svo setjumst við öll saman að góðri jólamáltíð. - Þakka þér fyrir, svarar pilturinn lágum, einlægum rómi og hættir að horfa á fatnað sinn. Alúð þessarar ókunnugu konu yljar honum að hjartarótum. Innan lítillar stundar hvílir hann í heitu, freyðandi bað- vatni og finnur smám saman nýjan lífsþrótt færast í hálf- dofinn líkama sinn. Á stól við baðlaugina liggja hrein, samanbrotin föt, sem honum er ætlað að klæðast að loknu baði en hann er óvanur slíkum munaði. Hver sendi þetta góða fólk upp í skógarjaðarinn þar sem hann hírðist kaldur og bugaður og átti sér hvergi von um húsaskjól og hefði sennilega króknað á jólanóttina hefðu þau ekki komið auga á hann þarna utan vegar. Eftir að hann leitaði skjóls undir trénu áttu margir leið um veginn áður en bjargvætti hans bar að en sennilega hafa þeir sem framhjá gengu ekki komið auga á hann eða að minnsta kosti létu hann afskiptalausan. Drengur í skóla lærði hann söguna um jólabarnið í jötunni, englana og fjárhirðana, stjörnuna og vitringana. Og hvað þessi fallega saga, sem hann hefur ekki rifjað upp frá barnæsku, verður nú ljóslifandi í vit- und hans. Var það stjarna jólabarnsins í jötunni sem á þessu örlagaríka kvöldi í lífi hans vísaði veginn honum til björgunar, hugsar Andre Rekdal með lotningu í hjarta og stígur upp úr baðlauginni. Já, það er sannfæring hans. * * * Asbjörg er á leið inn í stofu. Fagurlega skreytt og ljós- um prýtt, angandi grenitré bíður þar inni með jólagjafir fjölskyldunnar við fótskör sína. Hún nemur staðar hjá tré- nu og lítur yfir gjafirnar. Hér vantar eina gjöf til viðbótar, flýgur strax í huga hennar. Ekki má skilja jólagestinn út- undan. Hún lýkur í skyndi erindi sínu inn í stofuna og hraðar sér fram í eldhúsið til fundar við mann sinn en hann er þar að flýta fyrir henni með að koma jólamatnum á borðið, sem nú er framborinn í seinna lagi. Asbjörg snýr sér að Kjell og segir hljóðlega: - Góði minn, við þurfum að bæta við einni jólagjöf. Kjell lítur á konu sína og áttar sig strax. - Já, auðvitað, Asbjörg mín, þakka þér fyrir að athuga þetta í tíma. Ekki má jólagesturinn okkar verða afskiptur við útdeilingu jólagjafanna, svarar hann glaður á svip. - En hvaða gjöf sérðu helst svona í fljótu bragði handa honum? - Ja, hvað ætti það að vera, segir Asbjörg hugsi. Afi Jensen, sem stytt hefur tvíburunum biðina með því að segja þeim, að eigin ósk þeirra, framhald af fyrri jóla- sögu dagsins, heyrir nú tal hjónanna og blandar sér þegar í málið, skjótur til úrræða, sem honum finnst sér vera skylt. - Hvernig lýst ykkur á það, góðu hjón, spyr hann hress í bragði, - að við gefum jólagestinum sinn peningaseðil- inn hvert, ég legg fram þrjá fyrir mig og drengina og þið hjónin tvo. Pilturinn getur svo, eftir hátíðina, keypt sér einhverja skjólflík fyrir þá. Mér sýnist að þess muni ekki vanþörf. Hjónunum báðum finnst þetta vera snjallræði eins og á stendur. Þau þakka afa Jensen fyrir uppástungu hans. - Alltaf hefur þú lausn á reiðum höndum, afi Jensen, segir Asbjörg og brosir hlýtt til tengdaföður síns. Hún nær í kort og ritar á það jólaóskir fjölskyldunnar, pening- arnir eru reiddir fram í skyndi og kortið með þá innan- borðs er komið á sinn stað hjá hinum jólagjöfunum í tæka tíð. Andre gengur fram úr baðklefanum, hreinn og stokinn. Fötin, sem honum voru fengin, reynast að vísu vel við vöxt á tágrönnum líkama hans en ekki til stórra lýta og honum líður mjög notalega í þeim. Jólaverður er fram borinn. Þau setjast þegar öll saman að glæsilegu veisluborði. Kjell sker að venju jólasteikina eftir beiðni hvers og eins og lætur á diskana, fýrst hjá gestinum en Asbjörg réttir fram fjölbreytt meðlæti og diskur Andre er brátt fullur af ilmandi kræsingum. Hann hefur aldrei fyrr setið að þvílíku nægtaborði og honum finnst þetta allt líkara ævintýri en raunveruleika. En hverju getur kærleikurinn ekki áorkað þar sem hann er virkur í verki? Andre hefur lítið kennt hungurs fram til þessa þótt hann hafi engrar fæðu neytt á liðnum degi en nú segir galtómur magi hans rækilega til sín og pilturinn gerir matnum góð skil, en með fyllstu háttvísi sem honum er í blóð borin og eðlislæg. Þessi prúðmennska fer ekki fram- hjá gestgjöfum hans en hjónin bjóða honum meira af rausn sinni í mat og drykk en hann getur þegið og aldrei hefur hann staðið mettari upp frá borðum en á þessu jóla- kvöldi. Framhald í nœsta blaði. Heimaerbezt 191

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.