Heima er bezt - 01.09.2004, Síða 7
Þvottalaugarnar við hliðina á Laugabóli.
stækka túnið á Laugabóli svo að það gaf af sér nóg hey
fyrir skepnurnar.
Áður en byggðin tók að þrengja að Laugardalnum átti
Laugaból land í Laugarásnum, upp að Múla og að Þvotta-
laugavegi.
Þegar Mjólkursamsalan tók til starfa var mjólkinni ekki
lengur ekið í húsin heldur farið með hana í Samsöluna.
Þegar amma lést árið 1946, tók uppeldissonur afa og
ömmu, Gunnar Júlíusson, við búskapnum og flutti með
allar skepnur frá Lindargötunni inn að Laugabóli. Þar var
búskapur stundaður eins lengi og friður var til þess fyrir
vaxandi byggð og íþróttamannvirkjum í dalnum. Gunnar
og bróðir hans Baldvin, misstu báða foreldra sína úr
Spænsku veikinni veturinn 1918. Fjölskyldan hafði átt
heima í næsta húsi á Lindargötunni.
Amma mín, sem var ættuð frá Fuglavík á Miðnesi
skammt frá Sandgerði, kom Baldvini í fóstur til frænd-
fólks síns á Bæjarskerjum, sem er skammt frá á Fuglavík.
Afi minn Ari Antonsson sá um Helgustaðavitann, sem
var fyrir neðan Vitastíg. Eftir að afi hætti með Kol og
I Kaupmannahöfn
1972. Magnea bjó
þar í 6 ár á Vester-
brogade 125.
Gifting og búskapur
Árið 1944 giftist Magnea Magnúsi
Vilmundarsyni, ættuðum úr Grinda-
vík.
Magnús vann þá hjá Garðari
Gíslasyni á Hverfisgötunni, auk þess
ók hann leigubíl á leigubílastöðinni
Bifröst um helgar. Bílinn, sem var af
gerðinni Dodge, átti hann sjálfur.
Á þeim tíma var mjög erfitt að fá húsnæði í Reykjavík,
hvort sem það var til leigu eðakaups. Þá voru ekki nein
sérstök lán hjá bönkunum sem ætluð voru til íbúðar-
kaupa.
„Aðeins þeir, sem höfðu viðskipti við bankana og voru
mun eldri en við Magnús, fengu lán. Það kann að vera að
sumt ungt fólk hafi fengið fyrirgreiðslu til húsnæðis-
kaupa ef það átti einhvern að sem bankastjórar höfðu vel-
þóknun á.
Við bjuggum í húsinu á Lindargötunni fyrstu árin en
tveimur árum eftir lát ömmu var húsið selt Sigurði
Bjarnasyni rafvirkja. Sigurður reif útihúsin og byggði
verkstæði á lóðinni.
Áður en húsið var selt leituðum við að húsnæði en ekk-
ert var að fá á leigu utan eina kompu alla leið inn á Lang-
holtsvegi, sem átti að leigja á háu gjaldi auk þess að
borga mikið fyrirfram. Þá var Langholtsvegurinn langt
fyrir utan aðalbyggðina. Þegar þetta var áttum við eitt
barn, Þórunni Magneu. Ég var heimavinnandi og var að
Magnea 16 ára, og bestu vinkonurn-
ar á húsmæðraskólanum á Staðar-
felli, 1943-44.
salt, sem kom til af því að þegar
hitaveitan var lögð í hús minnkuðu
viðskiptin, fór hann að vinna á veg-
um Hitaveitunnar. Hann lést árið
1954.
Á mínum uppvaxtarárum á Linda-
götunni var Skuggahverfið ólíkt því
sem það er núna.
Víða voru gripahús á lóðum því
að margir höfðu bæði hænsni og
kindur til að drýgja tekjurnar.”
Atján ára með fyrsta barnið,
Þórunni.
Magnea Berg-
mann og Magnús
Vilmundarson á-
samt tveim elstu
börnunum, Þór-
unni Magneu og
Ara.
Heima er bezt 391