Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2004, Síða 12

Heima er bezt - 01.09.2004, Síða 12
Á 18. öld gengu yfir ísland meiri og þungbœrari harðindi en nokkru sinni fyrr og síðar, með hafis og aflaleysi, eldgosum og grasleysi, sem og margvíslegum drepsóttum í mönnum og skepnum. Þá var víða erfitt að dragafram lífið í byggðum landsins, hvað þá hjá þeim sem freistuðu þess að lifa utan samfélagsins sem útilegumenn á hálendinu. Þetta tókstþó einum manni áratugum saman og sá var Fjalla-Eyvindur, enda einstakur atgervismaður á flesta grein. Margar þjóðsögur ganga afþessum fágæta hagleiksmanni, sem meðal annars leiddi rennandi vatn gegnum kofa sína, hagnýtti sjóðandi hveri til matseldar, kunni að slá til elds og að bregða vatnsheldar körfur úr víðitágum. Þá hafa verið settar saman um hann bœkur, Ijóð, leikrit og kvikmyndir, svo að mjög áhugaverður hefur hann jafnan þótt. Leiði Fjalla-Eyvindar í túnfœtinum á Hrafn- fjarðareyri. Texti og myndir: Jón R. Hjálmarsson & FJALLA-EYVINDUR var stundum einn í útilegu sinni, en oftar var þó kona hans með honum og hét sú Halla Jónsdóttir. Hún var ættuð úr Súgandafirði og var ung ekkja á Homströndum, þegar Eyvindur barst vestur og réðst þá til hennar sem vinnumaður. Þau gengu síðar í hjónaband og bjuggu á ýmsum bæjum í Aðalvík og Jökulljörðum og ef til vill líka á Austurströndum. Einn þessara bæja var Hrafnijarðareyri i Hrafnfirði í Jök- ulijörðum. Einhverjar grunsemdir féllu á þau um grip- deildir, svo að þau flýðu úr byggð og lögðust út og lifðu af því að ræna frá byggðamönnum. Slíkt framferði mælt- ist að vonum illa fyrir á þeirri tíð og yfirvöld reyndu mjög að hafa hendur í hári þessara útileguhjúa og tókst í nokkur skipti að handsama þau. En þótt þau væru gripin og flutt til byggða, þá heppnaðist þeim alltaf að sleppa úr haldi, enda var Eyvindur einstaklega kunnáttusamur og ráðagóður. 396 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.