Heima er bezt - 01.09.2004, Qupperneq 14
Leiðangursmenn fá sér af nesti og hvíl-
ast í hvannstóði á bœjarstœðinu á
Hrafnfjarðareyri.
til lagst var við festar skammt undan
landi á eyðibýlinu Hrafnfjarðareyri.
Þar voru leiðangursmenn selfluttir í
land á gúmbáti og síðan hafist handa
við að festa umrædda plötu á klett í
túnfætinum, rétt hjá leiði Eyvindar
sem merkt er með krossi og steini. A
plötuna er letrað:
Hjörtur Þórarinsson við steinhjörtun tvö á Hrafnfjarðareyri.
„ Útlagarnir Eyvindur og Halla.
Eyvindur Jónsson frá Hlíð í Ytri-
Hrepp f. 1714 og Halla Jónsdóttir úr
Súgandafirði, bjuggu hér á Hrafn-
farðareyri í nokkur ár fram um 1762.
Nœsta áratuginn og e. t. vill lengur,
voru þau á flótta, m. a. á örœfum Is-
lands. Síðustu árin bjuggu þau hér.
Eyvindur er talinn jarðsettur skammt héðan 1785, en
Halla á Stað í Grunnavík 1792. Þessir tveir bautasteinar
voru teknir á œskustöðvum þeirra. “
Að verki loknu snæddu menn nesti og skoðuðu sig um
á bæjarstæði og nánasta umhverfi. Einn í hópnum var
Sigurgeir Líkafrónsson, sem er fæddur og uppalinn á
Hrafnfjarðareyri, þar sem foreldrar hans bjuggu til 1943,
en þá fór bærinn í eyði. Veitti hann samferðafólki sínu
margar góðar og gagnlegar upplýsingar um búskap og
mannlíf í Jökulfjörðum, meðan það var og hét.
Auk þeirra Hjartar og Sigurgeirs voru með í ferðinni
Kjartan T. Olafsson, Selfossi, Ragnar Böðvarsson, Sel-
fossi, Páll Lýðsson og Elínborg Guðmundsdóttir, Litlu-
Sandvík, Guðrún Hjörleifsdóttir og Jón R. Hjálmarsson,
Reykjavík, Sigurður Sigurðarson, Reykjavík, Björg
Helgadóttir og Jóhann Guðmundsson, Holti í Svínadal.
Siglt var aftur til Isaljarðar samdægurs og ekið suður
með veislu góðra minninga í farangrinum.
398 Heimaerbezt