Heima er bezt - 01.09.2004, Qupperneq 15
VOPN REÐU
VINSTRI UMFERÐ
Gripið niður í sögu vinstri og hægri umferðar
Vinstri umferð á sér mjög
langa sögu. Þegar vopnaðir
menn mœttust, gangandi
eða ríðandi, var tryggast
að hafa höndina sem sverð-
inu brá, sömu megin og sá
vai; sem á móti kom. Orv-
hentir riddarar urðu sjald-
an ellidauðir. Þó er dæmi
um riddara af skoskri ætt,
þar sem örvhendni var arf-
geng. Þessir menn hönnuðu
umhverfi sitt við hœfi; til
dœmis skrúfast vindustigar
í köstulum þeirra öfugt við
það sem annars tíðkast.
egar Bónifasíus áttundi páfi
bauð pílagrímum árið 1300 að
víkja til vinstri, var hann að-
eins að staðfesta ævaforna umferðar-
reglu. Meðal annars má telja fullvíst
að Rómverjar hafi virt þennan sið,
enda oft þröng á þingi á götum Róm-
ar, svo umferðin hefur orðið að fara
að föstum reglum.
Hægri umferð verður rakin til
frönsku stjórnarbyltingarinnar. Fram
að henni náði stéttaskiptingin til um-
ferðarinnar í Frakklandi. Aðallinn ók
vögnum sínum vinstra megin á veg-
unum og bolaði alþýðunni út á hægri
kantinn. Gangandi almúgamenn
héldu sig til hægri og viku út á veg-
kant fyrir umferð höfðingjanna. Eftir
byltinguna 1789 töldu aðalsmenn
tryggara að láta lítt á sér bera og
slógust því í för með borgurunum.
Þar kom að Robespierre lögfesti
hægri umferð í París, og Napóleon
breiddi þessa venju út og festi í sessi
með því að fara með sveitir sínar
hægra megin á vegunum.
NAPÓLEON TIL HÆCRI
Sigurganga Napóleons og herja
hans í Evrópu varð til þess að hægri
umferð var tekin upp í Niðurlöndum,
Sviss, Þýskalandi, Ítalíu, Póllandi og
á Spáni. Þar sem Napóleon náði ekki
ítökum - í Bretlandi, Austurrísk-
ungverska keisaradæminu, Rússlandi
og Portúgal - ferðuðust menn sem
fyrr vinstra megin. Danir, sem stóðu
með Frökkum, lögfestu hægri um-
ferð 1793. Breytingin náði samt ekki
til útnára konungsríkisins, íslands,
enda ekki af mikilli umferð að státa
þar. (Bent hefur verið á það að konur
sneru til vinstri í íslenskum söðlum,
og ef tvær hefðarfrúr hefðu mæst í
þröngu einstigi og vikið til hægri,
hefðu þær átt á hættu að krækja fót-
unum saman!)
Vinstri áhrif Breta
Þar sem Bretar réðu ríkjum óku
menn (og aka víða enn) vinstra meg-
in á vegum. A Indlandi, í Eyjaálfu og
í nýlendum Breta í Afríku var hvar-
vetna tekin upp vinstri umferð - þó
ekki i Egyptalandi, sem herir Napól-
eons lögðu undir sig og innleiddu
hægri umferð áður en Bretar komust
þar til valda. í nokkrum landluktum
ríkjum í Afríku, sem áður voru
breskar nýlendur, hafa yfirvöld samt
tekið upp hægri umferð til samræmis
við það sem tíðkast í löndum allt í
kring.
(í upphafi síðari heimsstyrjaldar
stóð til að breyta umferðinni á ís-
landi, en hernám Breta gerði þau á-
form að engu, enda var umferð her-
manna mun meiri en heimamanna á
vegum landsins.)
Framan af var vinstri umferð ráð-
andi í Bandaríkjunum. Fyrstu lög um
hægri umferð þar í landi voru sett
1792 og tóku aðeins til aksturs um
tollbrú í Pennsylvaníu, á milli
Lancaster og Fíladelfiu.
Hægri umferð var svo lögleidd í
New York 1804 og í New Jersey
1813. í Kanada, sem laut breskri
stjórn, var víðast vinstri umferð þar
til upp úr 1920.
Heima er bezt 399