Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2004, Qupperneq 22

Heima er bezt - 01.09.2004, Qupperneq 22
Haganesvík 1947. staðnæmast hjá væntanlegu heimili okkar við Aðalgötuna. Ávallt síðan hefur þessi vetrarferð verið mér ærið föst í huga. Það var mikill viðburður í lífi mínu að vakna næsta morgun á þessum ókunna stað. Það var nærri því eins og maður get- ur ímyndað sér að vakna á öðrum hnetti. Allt var nýtt, bæði himinn og jörð, og þegar ég kom út á húströpp- urnar þennan morgun, var eins og tjald væri dregið ffá leiksviði. Fjærst er fagur fjallahringur, allt í kringum byggðina. Kaupstaðurinn sjálfur stendur á nokkru sléttlendi við aust- anverðan ijarðarbotninn. Hornið var það kallað. Einnig var komin húsa- röð upp í brekkunni fyrir ofan, þó að hún ætti eftir að aukast síðar. Bæjar- stæðið er því fagurt. Flestir íbúanna í plássinu voru annað hvort verka- menn eða sjómenn. Aðrar stéttir voru varla til í Ólafsfirði um þessar mundir, utan nokkrir útgerðarmenn, kaupmenn og iðnaðarmenn, auk hinna hefðbundnu embættismanna. Þetta voru stéttirnar sem byggðu þennan stað, á því herrans ári 1950. Hér var fólk sem vann í sveita síns andlits og flestir undu glaðir við sitt. Næstu dagar í Ólafsfirði fóru í það að koma okkur fyrir í hinum nýju hí- býlum, því að ýmsu varð að hyggja og Ólafsfjaröarárin reyndust mér ljúf. Greinarhöfundi hlýnar því ávallt um hjartaræturnar þegar hann ferðast um þessar byggðir og þó festi hann ekki rætur þar. Hvers vegna ekki? Ekki leiddust mér sveitastörf, sjó- sókn, vegavinna eða hvað annað sem bauðst ungum strákum á mínum aldri að starfa. En allt var þetta stop- ul vinna, sem gaf lítið í aðra hönd. Því var það venja margra ungra manna norðanlands um miðja síðustu öld, að fara suður á vertíð. „Farðu suður, farðu suður, ungi maður“, hljómaði í eyrum okkar, sem vorum búnir í skólanum. „Þegar þið eruð orðnir ríkir getið þið komið aftur og haslað ykkur völl á heimaslóðum“, var gjarnan sagt í góðlátlegu gamni á kveðjustund. Sumir sneru aftur, en fleiri urðu eftir á suðvesturhorninu, eins og það var kallað. Meðal þeirra var ég. Nú, hin síðari ár, verður mér oft hugsað til foreldra minna, sem alltaf bjuggust við því að ég kæmi heim aftur, þó sú yrði ekki raunin. Þegar ég hafði unnið mér inn nokkra fjár- hæð við vertíðarstörf og sjávarafla, settist ég að í höfuðstaðnum og hóf iðnnám í húsgagnabólstrun hjá Tré- smiðjunni Víði, á Laugavegi 166, í Reykjavík. Að þessari iðn starfaði ég í rúman aldarijórðung, en þá hafði EFTA að- ildin gert nánast út af við íslenska húsgagnaframleiðslu, með niður- greiddum, erlendum húsgögnum, sem yfirfylltu íslenska markaðinn og fáir innlendir framleiðendur fengu staðist. Meðal þeirra sem hurfu af sjónar- sviðinu var gamli vinnustaðurinn minn, Trésmiðjan Víðir, sem um ára- bil var einn stærsti húsgagnafram- leiðandi landsins. Námsárin í Víði og tímabilið í kringum 1960 eru mér stundum ofar- lega í huga og kemur þar margt til sögu, blómlegt menningarlíf höfuð- staðarins, bíómyndirnar, dægurlögin og tískan, svo eitthvað sé nefnt, og Reykjavík með alla sína skemmti- staði, var sannkallaður unaðsreitur unga fólksins á þessum árum og þarf ég ekki annað en að setja gamla plötu á fóninn til þess að komast aft- ur í þetta sæla minningarástand, sem ríkti svo mjög á þessum tíma. Og stúlkurnar, með hlýju hendurnar og silkimjúkar varir, vekja upp minn- ingu um allt sem við gerðum saman. Margt af því fólki, sem ég kynntist hér í borginni á þessu tímabili, átti að baki svipaðan feril og ég. Það var fætt og uppalið framyfir unglingsár á landsbyggðinni, en hafði síðan fluttst til Reykjavíkur og ekki snúið heim aftur, því höfuðborgin bauð betur. Þægilegri vinnu, góð laun, mögu- leika á einhvers konar námi og síðast en ekki síst, fjölbreytilegt mannlíf. Vitaskuld sneri sumt af þessu utan- bæjarfólki aftur til síns heima eftir að hafa dvalið um hríð í höfuðborg- inni. Mér verður einnig oft hugsað til veru minnar í Ólafsfirði árið 1950 til 1955 og til áhyggjuleysis unglingsár- anna í foreldrahúsum. Þar var sumar- ið ávallt hinn mikli annatími bjarg- ræðisins, en veturinn aftur á móti nær samfelldir skóladagar. Um sum- arfrí og ferðalög var ekki að ræða, öðruvísi en í sambandi við atvinnu. Sjómennskan dró unga menn mjög að sér á þessum árum, enda gaf hún mikið í aðra hönd þegar miðað var við landvinnu. Þegar ég hugsa til Ólafsíjarðarár- anna eru það mótorskellir, olíu- stybba, maður við stýri, sólbjartir morgnar og sléttur sjór, sem kemur fyrst upp í hugann. Margir Ólafsfirð- ingar áttu litla vélbáta, sem haldið 406 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.