Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2004, Qupperneq 27

Heima er bezt - 01.09.2004, Qupperneq 27
sinn, og hefði hann komið til hennar og sagt að hann mætti ekki vera að dvelja mikið inni, því hann vildi kom- ast sem fyrst út á tún og fara að slá. Þar sem mér kom ekki á óvart draumvitrun Olafíu, sagði ég henni að ég gæti þá ekki dulið erindi mitt að Börmum þennan dag, það væri það sama og faðir minn hefði ætlað sér að gera í draumnum. Tvennt fannst mér sérstakt við þetta mál. Ólafía fær að vita um nóttina í draumi, á undan mér, þá fyrriætlan, sem ég tók um morguninn. Þessa fyrirætlan mína gat hún á engan hátt fengið að vita með venjulegum hætti. Nýi bóndinn á Miðhúsum Draumsýn Pórdísar í maí 1926 Faðir minn, Þórarinn Árnason, var ráðsmaður á skólabú- inu á Hólum í Hjaltadal, 1923-26. Vorið 1926 fékk hann ábúð á Miðhúsum. Fjölskyldan tók far með skipi frá Sauðárkróki til Hólmavíkur og fór svo á hestum suður yfir heiði og út að Miðhúsum. Sú rástöfun var gerð að Þórdís tók að sér að hafa húsakynni á Miðhúsum eitthvað upphituð og matföng fyrir ferðafólkið þegar það kæmi að norðan. Nokkrum dögum áður en fólkið kom, dreymdi Þórdísi Odd heitinn Jónsson lækni og mág Þórarins, er bjó á Miðhúsum 1903-20. í draumnum segir Oddur að hann ætli að sýna henni nýja bóndann á Miðhúsum, sem hún viti að sé væntanlegur innan fárra daga. Þórdís segist nú ekki þurfa að láta segja sér neitt um það, hún viti að Þórarinn frændi sinn sé búinn að fá ábúð á Miðhúsum og sé væntanlegur innan fárra daga. Hún sé einmitt ráðin til að hafa húsakynnin upphituð þegar þau koma að norðan. En hvað um það, í draumnum sýnir hann henni mann, sem hún hafði aldrei séð áður og var í engu líkur Þórarni. Hún leiddi þessa draumsýn hjá sér og gat ekkert botnað í merkingu draumsins. Þá víkur að þeirri stundu er hún sér ferðafólkið vera að koma ofan af Miðhúsamelnum og heim í hlað. Fólkið sté af hestbaki og gekk til bæjardyra. Fyrsti maðurinn sem kom í bæjardyrnar, með Önnu systur í fanginu og heils- aði Þórdísi, var skólapiltur frá Hólum, er kom með þeim og hjálpaði við flutninginn að norðan. Þórdísi varð starsýnt á manninn og þekkti strax að þarna var sami svipur og á manninum sem Oddur hafði sýnt henni í draumnum, nokkrum dögum áður. Síðan liðu nokkur ár og Þórdís gat ekkert áttað sig á þessari draumsýn hjá Oddi lækni. Tómas réðst til starfa hjá foreldrum mínum á Miðhúsum. Fljótlega fór heilsu föður mins að hraka og að þrem árum liðnum, 4. júlí 1929, lést hann. Árið eftir, 1. desember 1930, giftust þau Steinunn móðir mín og Tómas, og næstu níu árin var það Tómas sem var bóndinn á Miðhúsum. Þegar þessi örlög voru fram komin, þá fyrst upplýsti Þórdís draumsýn sína frá vorinu 1926, um nýja bóndann á Miðhúsum. , Af blöðum fyrri tíðar Aðdragandi heimsstyrjaldar Cluggað í gömul blöð og forvitnast um það, sem efst var á baugi fyrir nokkuð margt löngu. Hitler kemur til Berlínar í dag Þýski herinn leggur af stað til Sudeten-héraðanna kl. 2 í dag London í morgun. Frá Berlín er símað, að þýski herinn muni halda í smá- iylkjum inn í Súdetenhéruðin strax upp úr hádeginu í dag til þess að taka þau héruð ffiðsamlega í sínar vörslur, sem Tékkum var gert skylt að afhenda Þjóðverjum, samkvæmt ljögra velda sáttmálanum í Múnchen. Hitler kemur til Berlínar í dag og er geysimikill viðbúnaður þar í borg til þess að innreið hans geti orðið sem hátíðlegust og eru öll hús fánum skreytt og þúsundir veifa blakta þvert um göt- urnar, honum til heiðurs, sem „bjargvætti ffiðarins“. Samningar Chamberlains og Hitlers London í gær. Frá Múnchen er tilkynnt að Chamberlain og Hitler hafi undirritað sameiginlega yfirlýsingu þess efnis, að þeir hafi ákveðið að halda áffam tilraunum sínum til þess að útrýma öllum ágreiningi innan álfúnnar, sem getur orðið ffiðinum hættulegur. Áður en Chamberlain hélt heimleiðis, ræddust þeir við í tvær klukkustundir, en að viðræðunum loknum, gáfú þeir út yfirlýsingu þessa og undirrituðu hana báðir. Þær ffegnir berast einnig frá Múnchen, að Chamberlain hafi látið í ljós, að þýskar herdeildir myndu halda inn í Súd- eta-héruðin seinni hluta laugardagsins eða um kvöldið. United Press. Visir, 1/10, 1938. --------------------------- -J’Tási------------------- Chamberlain á Heston-Jlugvelli á leið í aðra ferð sína til Þýskalands. Heima er bezt 411

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.