Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2004, Blaðsíða 28

Heima er bezt - 01.09.2004, Blaðsíða 28
Breska þingið ræðir í dag samningana í Munchen Aðstaða Chamberlains talin sterk, þótt nokkur óánœgja hafi komið fram innan stjórnarinnar og í blöðum. Neðri málstofa breska þingsins kemur saman í dag flytur þá Chamberlain forsætisráðherra ræðu um fjórveldasam- komulagið í Munchen. Mun Chamberlain fara ífarn á að þingið samþykki gerðir hans í þessu máli. Er búist við miklum umræðum um utanríkismálastefnu stjórnarinnar. Aðstaða Chamberlains er talin mjög sterk, vegna undir- tekta þeirra, sem hann fékk við heimlcomuna frá Munchen, og um allan heim hefir hann hlotið viðurkenningu fyrir starf sitt í þágu friðarins, en margar gagnrýnisraddir hafa og heyrst, og að sjálfsögðu er það áfall nokkuð fyrir Cham- berlain og Halifax lávarð, að svo kunnur og dugandi ráð- herra, sem Duff-Cooper flotamálaráðherra sagði af sér vegna vantrúar á, að utanríkismálastefna stjómarinnar væri heillavænleg. Lundúnablöðin í morgun ræða mikið hið nýja viðhorf í stjómmálum álfunnar, sem skapast hefir við gerð Múnchenarsamkomulagsins. Blöðin viðurkenna yfirleitt fúslega, að Chamberlain eigi allan heiður skilinn fyrir að hafa afstýrt ófriði, en menn greinir á um hvort friðurinn hafi verið of dým verði keyptur eða ekki. [...] Daily Telegraph lætur í ljós megna vanþóknun á því að Þjóðverjum sé látið haldast uppi að hóta og hóta, uns geng- ið sé að kröfum þeirra, en Daily Herald og Daily Chronicle lýsa sig algerlega mótfallin því, að í stað þess að koma á samtökum meðal allra þjóða álfúnnar, sé mynduð fjórvelda- samtök, og benda á, að friðurinn verði aldrei ömggur, ef stórveldin geri með sér slík samtök sem í Mtinchen, án þess að hafa meiri samvinnu við Rússa. „Það þarf samkundu, þar sem allar þjóðir álfunnar koma saman, en ekki fjór- veldasamkundu, til þess að leysa vandamál álfúnnar,“ segir Daily Herald. United Press. Vísir, 3/10, 1938. Þingrof á Englandi Osló, 1. október. Það er búist við því, að Chamberlain muni bráðlega leggja til við konung, að þing verði rofið og nýjar kosningar fari fram, svo að breska þjóðin geti látið í ljós álit sitt á ut- anríkismálastefnu stjórnarinnar. NRP-FB. Visir, 3/10, 1938 Fær Chamberlain friðarverðlaun Nobels? Oslo, 1. október. Ymis blöð leggja til að Chamberlain verði veitt friðarver- laun Nobels fyrir yfirstandandi ár. Hins vegar hefir nú verið gerð grein fyrir því, að enginn geti komið til greina við út- hlutun friðarverðlaunanna fyrir yfirstandandi ár, sem ekki var búið að stinga upp á fyrir febrúarlok. Fyrir þann tíma mun ekki hafa verið stungið upp á því, að Chamberlain yrði veitt friðarverðlaunin, og kemur hann því sennilega ekki til greina fyrr en á næsta ári. NRP-FB. Vísir, 3/10. 1938 Ávarp frá Bretakon- ungi í gær og bakkar- guðsbjónustur í öll- um kirkjum landsins í gær var útvarpað ávarpi frá Georgi VI. Bretakonungi, þar sem svo er að orði kom- ist, að áhyggju og kvíða- stundimar séu nú liðnar hjá og öll þjóðin hafi í dag þakkað Guði, að ófriði var afstýrt, og þjóðimar komust hjá að verða að þola hörmungar allsheijar styrjaldar. I ávarpi sínu þakkaði konungur öllum sem unnu að því að friðurinn varðveittist og minntist sérstaklega Chamberlain forsætisráðherra fyrir hinar stórmikilvægu til- raunir hans til þess að koma í veg fyrir ófrið, en einnig þakk- aði konungur öllum þegnum sínum, sem kvaddir höfðu ver- ið til skyldustarfa vegna óffiðarhættunnar. Kvaðst konungur vona, að samkomulagið, sem náðist í Múnchen yrði upphaf velgengni, vináttu og friðartímabils fyrir allar þjóðir. Traustsyfirlýsing til handa bresku stjórninni verður lögð jýrir neðri málstofu þingsins í dag. Þingrof og nýjar kosningar, ef börf gerist. London í morgun. Miklar umræður urðu um lausn deilunnar um Súdeten- héruðin í breska þinginu í gær. Gerði Chamberlain forsætis- ráðherra ítarlega grein fyrir öllum samningaumleitunum í því máli og árangri þeim, sem náðst hefði að lokum, og sýndi fram á það, að með því að samningar hefðu tekist um þetta mikla vandamál Evrópu, hefðu báðir deiluaðilar unnið nokkuð á, en aðalatriðið væri það að tekist hefði að afstýra því böli, sem ófriður hefði í för með sér. Lagði hann áherslu á það, að stjómin myndi vinna að fullkomnum vígbúnaði bresku þjóðarinnar, þó þessi lausn hefði fengist í bili. Duff-Cooper flotamálaráðherra gerði grein fyrir þeim á- stæðum sem lægju fyrir þeirri ákvörðun hans að láta af embætti, og áskaði Chamberlain fyrir of mikla undanláts- semi og óákveðna stefnu í deilumáli þessu, en viðurkenndi að Hitler hefði slegið allverulega af kröfum sínum. Ur hópi stjórnarandstæðinga og fyrir hönd jafnaðar- manna tók Attlee til máls og lagði áherslu á það, að Evr- ópufriðurinn væri engan veginn tryggður og lýðræðisríkin hefðu í rauninni orðið að lúta í lægra haldi fyrir einræðis- ríkjunum. Þótti honum Rússar hafa orði afskiptir við lausn deilunnar, og hvatti til nánari samvinnu við þá en verið hefði. Chamberlain og Hitler í Godesberg, í september- mánuði 1938. 412 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.