Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2004, Page 30

Heima er bezt - 01.09.2004, Page 30
forðast, með því að þær myndu leiða til þess eins, að þeir töpuðu verulegu þingíylgi frá því sem nú er, en hins vegar munu þeir bera ífam breytingartillögur, til þess að reyna að draga úr orðalagi traustsyfirlýsingar þeirrar, sem breska stjómin hefir leiðtað, og gera það nokkuð óákveðnara, en það er nú. Þótt þeir beri fram slíkar tillögur, er ekki talið sennilegt að þær nái fram að ganga og em þær því ífekar bomar ffam í því augnamiði, að vekja athygli á afstöðu flokksins í þessum málum, en að undanfömu hefir flokkur- inn beitt sér mjög gegn viðleitni Chamberlains til þess að ná sáttum í Súdeten-deilunni. Talið er víst að nokkrir þingmenn íhaldsflokksins, undir forystu þeirra Edens og Churchill, muni sitja hjá við at- kvæðagreiðsluna, til þess að sýna óánægju sína með utan- ríkismálastefnu Chamberlains, en þótt þessi hluti flokksins sitji hjá, er aðstaða Chamberlains mjög sterk, og stefna hans í algerum meirihluta innan þingsins. Þótt einstaka þingmenn hafi gagnrýnt stefnu Chamberla- ins í utanríkismálunum, hafa þeir lítið fylgi að baki sér inn- an þingflokkana, enda hefir andstaðan aðallega komið frá hinum róttækari flokkum innan þingsins, sem leggja meg- ináherslu á nánari samvinnu við Rússland, og vilja sýna öðmm einræðisríkjum í álfunni fulla andstöðu. Sú stefna lét aðallega á sér bæra meðan Eden var utanrík- ismálaráðherra, en er Halifax lávarður tók við stöðu hans, breytti breska stjómin algerlega stefnu sinni í þessu efni. Gagnrýnin á gerðum Chamberlains beinist því einnig úr þessari átt, en svo virðist sem fylgi Chamberlains hafi aldrei verið öruggara en einmitt nú. í effi deild breska þingsins hélt Baldwin mikla ræðu í gær, og sýndi fram á það, að stefna Chamberlains í utanrík- ismálunum hefði sýnt það, með því sem áunnist hefði, að hún væri rétt, og gagnrýni á henni væri með öllu ástæðu- laus. Fór hann mjög lofsamlegum orðum um Chamberlain sem stjórnmálamann, og taldi hann einhvern snjallasta stjómvitring Breta. United Press. Vísir, 5/10, 1938. Nýja bíó Undirskrift friðarsamninganna í Munchen Myndin sýnir þar sem þeir koma saman Mr. Chamberla- in, Hitler, Mussolini og Daladier. M.a. er sýnt þar sem þeir undirskrifa hið merkilega skjal, sem afstýrði styrjöld í Evr- ópu. Vísir, 19/10/1938. Chamberlain og Hitler hittast enn á ný til þess að ræða Evrópumálin Sendiherra Breta í Berlín falið að undirbúa viðrœðurnar. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum er það talið fúllvíst í London, að undirbúningur sé þegar hafinn að nýjum við- ræðum milli Chamberlains og Hitlers, sem búist er við að eigi sér stað mjög bráðlega. Er talið að á ráðherrafundi, sem haldinn var í Downingstreet í gær, hafi þessi nýja ráðstefna verið rædd, og einnig hafi verið rætt um að hraða ffam- kvæmd bresk-ítalska sáttmálans sem mest má verða. Talið er að breski sendiherrann í Berlín, Sir Névile Hend- erson, sem nú dvelur í London, muni strax heijast handa, er hann kemur aftur til Berlínar, um að undirbúa þennan vænt- anlega fund og leggja grundvöllinn að umræðunum, með viðræðum við þýska utanríkismálaráðuneytið. Er talið að nýjar viðræður milli Chamberlains og Hitlers muni geta haff viðtækar afleiðingar fyrir ffiðinn og viðhorf- in í álfunni, þar eð þeir munu ræða um ýmis þau vandamál, sem uppi eru meðal Evrópuþjóðanna, og þá sérstaklega styrjöldina á Spáni og afstöðuna til Austur-Evrópuríkjanna. United Press. Vísir, 27/10/1938. Fyrstu kosningar í Englandi eftir fjórvelda- sáttmálann Ihaldsflokkurinn tapar Jylgi í Oxford og telja andstæðingar hans að það beri vott um rénandi fylgi yfirleitt. Það þykir tíðindum sæta í Englandi að fyrstu kosningum til þings, frá því er fjórveldaráðstefnan fór fram, er nú lok- ið. Voru það aukakosningar í Oxford vegna dauða Richard Boumes liðsforingja, sem sat á þingi í flokki breskra í- haldsmanna. Af hálfu íhaldsflokksins var í kjöri Quintin Hogg, sonur Hailshams lávarðar og var hann kosinn með 15.797 atkvæðum. Keppinautur hans, sem naut stuðnings fijálslynda flokksins og óháðu vinstri flokkanna, fékk 12.363 atkvæði. í kosningahríðinni var aðallega deilt um utanríkismála- stefnu Chamberlain-stjómarinnar, og einkanlega samninga þá, sem gerðir voru á fjórveldaráðstefnunni, til lausnar deilumálunum í Evrópu. Andstöðuflokkar stjómarinnar telja að úrslit kosning- anna, sanni það, að stjórn Chamberlains sé að tapa fýlgi, með því að þegar kosningar fóru fram í fyrra fékk Boumes liðsforingi 6.645 atkvæði umffam keppinaut sinn, og hefir meirihlutafylgi íhaldsflokksins því rénað um helming. Er því haldið fram, að kosningar þessar gefi glögga hug- mynd um þá stefnubreytingu, sem þjóðin í heild telji nauð- synlega í utanríkismálunum, og að samningagerðir Cham- berlains séu ekki eins vel séðar og hann gerði sér vonir um í upphafi. Kosningar þessar fóru fram með óvenjumiklu harðfengi og voru sóttar af mesta kappi, sem þekkst hefir á undan- förnum árum. United Press. Vísir, 28/10/1938. Halifax býður Þjóðverjum sanngjarna at- hugun á kröfum þeirra Ræðu hans í lávarðadeildinni í gœr, illa tekið í Þýskalandi Halifax lávarður, utanríkismálaráðherra Bretlands, flutti athyglisverða ræðu í lávarðadeildinni í gær, og gerði að um- talsefni kröfur Þjóðveija. Hann sagði að Þjóðveijar kvört- uðu mjög undan því að þjarmað væri að þeim og með ný- 414 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.