Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2004, Qupperneq 38

Heima er bezt - 01.09.2004, Qupperneq 38
Fullhuganna framsóknir finnst mér þeirra krafa. Um búskap sinn orti Sveinn, og gerir ekki lítið úr sín- um hlut: Framtíðar ég fylgdi smekk að frjóvga jurtarætur; afþví verðlaun forðum fékk fyrir jarðabætur. Þýfið slétta, gera garð, girða tún og engi. Glœða sléttan auðnuarð, arð sem varir lengi. Um Skagafjarðarsýslu, heimbyggð sína, orti Sveinn á þessa leið: Skagafjarðar er skínandi Ijómi, skreyttur með fegurðar útsýni best. Styrkjandi svölunar hádegishljómi; hugþekkur öllum, því skemmtandi erflest. Hörður Einarsson í Hafnarfirði spyr um ljóð sem hefst á þessum línum: Líti ég á landabréfið, Ljóð er mér í hug, Ef einhver lesandi kann skil á þessu ljóði, þá væri vel þegið að fá nánari vitneskju um það. Meira er ekki fram að færa að þessu sinni vísnakyns. Koma dagar, koma ráð. Vísur eru ortar enn sem betur fer. Maður einn vildi fá fram ljóð, sem ort var um það, er bæjarstjórnarfundur í Reykjavík hafði staðið í 8 klst . Geti einhver sent mér umrætt ljóð, yrði ég þakklátur. Dægurljóð Kæru lesendur og unnendur ljóða, þar með talinna dægurljóða. Flest ljóð held ég megi flokka undir það síð- arnefnda, því að líftími ljóða, ef svo má að orði kveða, er oft harla stuttur. Ljóð, sem ort eru vegna ákveðinna til- efna, eins og afmæla manna og stofnana, gleymast undur fljótt, en lyfta þó ákveðinni stund á hærra stig en ella mundi. Fyrsti ráðherra íslands, Hannes Hafstein, var einnig á- gætt skáld. Hann orti vígsluljóð, þegar fyrsta stórfljótið, Ölfusá, var brúað, árið 1891. Fáir muna nú það ljóð, sem á þeim tíma vakti hrifningu og varð hvati ffamfara. Allt hefur sinn tíma. Við getum ekki vænst þess, að það, sem við sendum frá okkur í upphafi 21. aldar verði lært og munað í lok hennar. Með nýju fólki kemur nýr andi og áherslur. Verum samt ekki áhyggjufull um fram- tíðina. Við látum okkur nægja okkar tíma og eigum að finna okkur í honum. A öldinni sem leið áttum við mörg ágæt skáld, sem ortu undir ljúfum lögum. Mér dettur í hug skáldið og söngvar- inn frá Ljárskógum í Dalsýslu, Jón Jónsson, sem sendi frá sér ljóðakverin „Hörpuljóð“ og „Syngið, strengir“. Að honum látnum kom út ljóðasafnið „Gamlar syndir og nýjar“. Með MA kvartettinum söng Jón mörg ljóða sinna, eins og „Ást, sem aldrei dvín“ við lagboða eftir Brahms, Vals nr. 15. Þetta ljóð sungu Friðrik Lunddal Baldursson, Matthías Jónsson og Þorsteinn Jónsson á Reykjaskóla á sínum tíma, ásamt fjölda annarra. Ég ætla að hefja þáttinn að þessu sinni með fyrrgreindu ljóði Jóns frá Ljárskógum: Ast, sem aldrei dvín, í bláum augum þér skín, ogfegra vorsins geislaglóð skín þitt gullna lokkaflóð. O, komdu, unga ástin mín, því úti vorsólin skín og sindurgulli glitrar sund og hinn grœnkandi lund. Við skulum leiðast vorsins veg og vorsins njóta, þú og ég, við fuglasöng og angan ungra blóma. Ást, sem aldrei dvín, í bláum augum þér skín. Við faðmlög þín, svo hljóð og hlý, mér heilsar gleðin á ný. Eitt sinn birti ég í þessum þætti vísur um kisu, eftir ýmsa. Víst er kisa eða heimiliskötturinn, er kær mörgum, ekki síst börnum. Á bernskuheimili mínu var að sjálf- sögðu köttur, enda var þetta í sveit. Nýlega rifjaði ég upp kynnin við hana kisu, sem birtist í eftirfarandi ljóði: Mér kisa var kœr sem barni; ég klappaði henni og strauk meðan á harðasta hjarni hríðin í lofsveiflum rauk. Svo kynntist ég kisu á vori; þá kom hún ei mikið í hús. 422 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.