Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2004, Side 42

Heima er bezt - 01.09.2004, Side 42
Framhaldssaga Jóhanna Helga Halldórsdóttir: 15. hluti Allt loft var nú farið úr Finni. Hann viðurkenndi að hann ætti erindi og það væri það að fá ráð hjá Erlu um það hvernig hann ætti að snúa sér. „Ég veit að þú þegir prestur góður, þótt þú heyrir mig segja ýmislegt, Erlu treysti ég fyrir öllu eins og ég hef alltaf gert“. Svo bað hann Unni fyrirgefningar á atvikinu um sum- arið, sagðist sjá mikið eftir því að hafa hagað sér svona lúalega. Unnur sagði ekki neitt, henni var alveg sama hvort honum leið illa yfir því eða ekki, en henni var ekki sama um það að hann færi á bak við konuna sína. „En Erla mín. Ég veit ekki hvað ég á að gera. Ég held að ég, karl á gamals aldri, sé ástfanginn af þessari ungu konu þarna á Miklaholti. Ég get ekki hugsað mér að fara frá henni Sillu og því sem við höfum byggt upp saman alla ævina, svo hvað geri ég þá?“ Erla horfði alvarleg á hann. „Finnur minn, þú slekkur einfaldlega á þessum fiðringi sem er að hrjá þig, konan á Miklaholti er 30 árum yngri en þú og þetta er fáránlegt, þú gætir alveg eins verið að leika þér með dúkku! Reyndu að skoða lífið í víðara sam- hengi og sjá hvað er þér dýrmætt. Ég veit að þú vilt vera bjargvættur Elínar en þú hjálpar henni ekkert með því að halda við hana, og ekki sjálfum þér heldur. Þú veist hvernig Silla er ef hún tekur eitthvað í sig. Viltu að hún fari frá þér?“ Finnur hristi höfuðið. „Farðu þá til hennar strax og segðu henni upp alla sögu og biddu hana að fyrirgefa þér. Láttu svo fólkið í Mikla- holti eiga sig, þau bjarga sér aldrei sjálf ef þau þurfa þess ekki. Svona nú Finnur, af stað með þig!“ Finnur faðmaði hana að sér og þakkaði henni fyrir. Svo kvaddi hann, frekar niðurlútur. Víglundur ræskti sig. „Ekki segja neitt Víglundur minn“, sagði Erla, „ég held að þetta hafi alveg verið nógu kristilegt, og þú hefur eng- in efni á því að verja hann Finn“. Víglundur strauk yfir silfurhærumar sínar og hummaði dálítið, svo fór hann af stað til Akureyrar. Unnur ákvað að prófa bílinn sinn eftir langt hlé. „Ég ætla í heimsókn að Lækjarbrekku“, kallaði hún til Erlu og Steinars, „vita hvort einhver hefur áhuga á að tala við mig þar“. Þegar þangað kom, var enginn heima á bænum hjá for- eldrum hennar, þannig að hún fór og bankaði hjá Þorkeli. Hann varð glaður að sjá hana og spurði frétta og vildi tala um heima og geima, allt nema samband þeirra Heiðrúnar og aukinn umgengnisrétt hennar við strákana. Þorkell var bara alls ekki til viðræðu um það, nema hvað hann sagði Unni að hann ætlaði sér að hafa þessa drengi og allavega vildi hann engu breyta núna. Hann sagði Heiðrúnu bara heimta og heimta og aldrei geta verið eins og manneskju við sig, varla væri hann svo slæmur við hana, og hefði ekki verið það í gegnum árin. Strákarnir hans voru glaðir að sjá Unni, en bamfóstran var svolítið feimin við hana. Ekki furða ef hún var að tengjast íjölskyldunni, hugsaði Unnur, en stelpugreyið, hún er svo ung, ætli hún sé ekki sautján ára gömul. Ég man ekki einu sinni hvað ég var að gera þegar ég var sautján ára, ég hef örugglega mjólkað kvölds og morgna á sumrin og svo lært á veturna, og eytt miklum tíma í að 426 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.