Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2006, Page 6

Heima er bezt - 01.07.2006, Page 6
Andrés Gestsson er fæddur á Stokkseyri 20. júlí 1917. Foreldrar hans voru Gestur Sigurðsson og kona hans Guðríður Guðlaugsdóttir, sem bjuggu í Pálshúsum á Stokkseyri. Andrés er yngstur 6 systkina auk einnar hálfsystur og sá eini sem er eftirlifandi. Elst var Guðlaug Margrét, Guðmundur, Jón Olafur, Aðalheiður, Gunnar Sigurður og Andrés. Auk þeirra var ein hálfsystir, Laufey. „Móðir mín var ættuð úr Flrunamannahreppi, frá bænum Gröf. En faðir minn var frá Stokkseyri, fæddur í Brattholtshjáleigu en átti heima í húsinu Beinateig. Eg fæðist í bæ sem var orðinn mjög gamall en nokkuð rúmur. Hann var meira en tveggja rúma lengd. Sá bær var síðan rifm og annar byggður. Nýi bærinn var nokkuð minni og rétt náði tveggja rúma lengd, hann var byggður úr torfi og þiljaður að innan. Eldri bærinn var líka gerður af torfi en með gluggakistu sem kallað var, hlaðinn upp undir glugga utanfrá. I nýja bænum var gafl sem sneri í vestur og þar var gengið út. Beint inn af ganginum við bæjardymar var eldhús. Þar voru hlóðir, krókar og svartur pottur með löppum. Það var kynnt með mó. Yfir hlóðunum var strompur og bjúgu og kjöt var hengt upp til reykingar í rjáfrið við strompinn. Þarna stóð mamma í reyk og trekki, megnið af deginum. A hlóðunum var lítið hægt að baka nema pottbrauð. Það var bakað þannig að deigið var sett í pott með loki og honum hvolft á hlóðimar og látinn niður í glóðina og fyllt að. Best þótti að útbúa í brauðið að kvöldi og það síðan haft í glóðinni alla nóttina. Þá var eldurinn falinn að kvöldi en lífgaður við að morgni. Nýbakað, heitt pottbrauð var mikið lostæti. Við hliðina á hlóðunum var kassi með moði en moðið var notað til moðsuðu. Það var gert þannig að suðan var látin koma upp á matnum og potturinn síðan settur í moðkassann og þannig hélst hitinn. Þessi aðferð sparaði eldsneyti. Við höfðum matjurtagarð og hænsni, sem var nokkuð drjúgt búsílag. Við áttum alltaf kött og sá merkasti af þeim hét Dalimon. Hann var grár, stór og mikill veiðiköttur. Dalimon gerði sér margt til frægðar en ekki allt jafn gott, eins og það að ráðast á hanann og drepa hann. Dalimon þótti ekki treystandi gagnvart hænuungunum. Enda hafði hann svo sannarlega unnið til þess að vera tortryggður. Þegar ég var tæpra tíu ára gerðist það að ein hænan hafði legið á eggjum og fengið nokkra unga. Ungamir, allir nema einn, drápust úr einhverri veiki. Hænan var höfð í stóru útibúri með ungana og einn daginn, er unginn sem eftir lifði, húkandi úti í homi afar dapur á að líta. Eg tók hann og setti í kassa og breiddi undir hann tusku og setti spegil í kassann, svo að greyið litla hefði félagsskap. Þegar við fórum frá var breitt yfír kassann og Dalimon settur út. Einu sinni þegar við komum heim var kassinn tómur og Dalimon lá uppi í rúmi, alsæll á svip og mjálmaði vingjamlega til okkar. Honum var bölvað í sand og ösku, allir vom vissir um að hann hefði étið ungann. Var nú farið að leita að vegsummerkjum um hvar voðaverkið hafði verið framið. Ekki komu fram neinar vísbendingar en Dalimon kurraði með sælusvip. Allt í einu heyrðum við tíst Skaftfellingur 294 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.