Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2006, Qupperneq 8

Heima er bezt - 01.07.2006, Qupperneq 8
Við smíðuðum okkur bíla, vörubíla og fólksbíla og lögðum veg í kringum kálgarðinn. Þetta voru kassabílar sem við gátum stýrt. Þó að ekki væri mikið af bílum í þá daga voru þeir í augum okkar ekki minna spennandi en hjá bömum nú til dags. Við ýttum hvort öðm í bilunum, drógum þá með fullfermi þegar vegagerð og byggingar stóðu yfir hjá okkur. Við smíðuðum líka karla úr tré. Þeir vom gerðir úr smákubbum sem víða var hægt að fá. Stærsti karlinn var foringinn, síðan vom margir aðrir karlar í mismunandi stærðum. Við settum blý framan á þá og belti til að þyngja þá svo að þeir dyttu fram yfír sig. Það var hægt að færa hendumar á þeim fram og svo létum við þá taka saman glímutökum, því næst var lamið í borðið þangað til að annar datt. Fjölskyldan, Andres, Birgir í fangi Esterar og Sigríöur. Sigríður Jónsdóttir, fyrri kona Andrésar. Unglingsárin Ég var fermdur frá Stokkseyrarkirkju af séra Gísla Skúlasyni. Hann bjó á Stóra Hrauni og þjónaði í Stokkseyrarkirkju, Gaulverjarbæjarkirkju og Eyrarbakkakirkju. Hann var fallegur prestur og mesti prestur sem ég hef hlustað á. Hann var afskaplega tignarlegur maður og það stafaði frá honum mikilli hlýju. Hann er eini presturinn, sem ég hef séð sem prest fyrir altari. Hann var alltaf tilbúinn að hjálpa og hugga þá sem bágt áttu. Það var haldin fermingarveisla, ég fékk ný föt og eitthvað af peningum og tíu manns var boðið. Um sumarið vann ég við fiskinn og allt sem til féll í þorpinu og sveitinni. Eg fór á vertíð í Eyjum þegar ég var ijórtán ára. Ég var mjög stór eftir aldri en bróðir minn, sem fékk plássið fýrir mig, varð að segja að ég væri sextán ára. Það komst síðan upp en ég var ekki rekinn. Það var dálítið óþægilegt að hafa skrökvað þessu. Báturinn sem ég fór á hét „Frægur VE 177.“ Skipstjórinn á bátnum hét Eiður, mig minnir að hann hafi verið Jónsson. Hann var austan af fjörðum, ég held frá Fáskrúðsfírði. Hann varð aflakóngur í Eyjum árið áður en ég kom til hans. Arið 1930 var þessi maður á Þingvöllum og gekk að konungnum og sagði: „Ætlarðu ekki að gefa toppmanninum Jón faðir Sigríðar með Ester. reyndist ekki breiðari en það að ég steig yfir hann. Móðir mín náði háum aldri, hún var 95 ára þegar hún dó. Hún var alltaf heilsuhraust, bjó lengst af á Stokkseyri hjá Gunnari bróður mínum. Gunnar fékk lungnaberkla þegar hann var ungur og bjó með pabba og mömmu. Faðir minn varð ekki gamall maður, lést rúmlega sextugur. Hvernig lékuð þið ykkur, krakkarnir? 296 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.