Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2006, Page 10

Heima er bezt - 01.07.2006, Page 10
eins og Ásdísi, Erlingi öðrum og svo Mugg, sem Helgi Benediktsson átti. Muggur var bæði gerður út á síld og vetrarvertíð. Hann var 26 tonna bátur og gerði út á troll. En það var enginn okkar sem kunni að vinna með troll svo að við fengum stýrimanninn af Skaftafellingi til að kenna okkur að veiða í það og að taka það upp. Þá var Ásgeir, sem seinna var með Sjóbúðina, skipstjóri á Skaftfellingi. Svo er það nokkru seinna sem hann býður mér að koma til sín á skipið. Það var árið 1940 en þá var stríðið skollið á. Skaftfellingur sigldi með aflann til Bretlands. Eg gat ekki ákveðið mig strax en það varð úr að ég fór á skipið. Við fórum á vesturströndina en Færeyingar sigldu með físk á austurströndina. Skaftfellingur var 60 tonna skip. Saga þessa skips er nokkuð sérstök. Skaftfellingar keyptu það í fyrra stríðinu til þess að flytja vörur frá Reykjavík til Víkur í Mýrdal og austur um. Skipið var ekki með nema 96 hestafla vél og ekki fljótt í förum. Það beið oft í Eyjum þar til brimið lægði við ströndina. Skaftfellingur var gott sjóskip, hann hafði sál og fann alltaf á sér ef eitthvað sérstakt var í vændum. Þannig var að við vorum að fara út og þá gekk skipið ekki nema tvær til þrjár mílur og hitaði vélina. Við skiptum um glóðarhausa og ýmislegt annað var gert. Undir kvöldið, þegar ég er á vakt með Páli Þorbjamarsyni, sem var stýrimaður á skipinu, sáum við bjarma undir seglið og sigldum fram á Fróða sem var laskaður eftir árás. Brúin var að mestu farin og skipið hafði skemmst meira en það. Við miðuðum út hvar Fróði var staddur og sendum skeyti í land um slysið og norskur togari, sem var ekki langt frá, kom til móts við skipið en fann það ekki. En Fróði komst svona laskaður heim til Eyja. Ef vélin hefði gengið eðlilega í Skaftfellingi hefðum við verið á svipuðum slóðum og Fróði og þá er aldrei að vita hvemig hefði farið. Við héldum áfram og komumst klakklaust til Bretlands, seldum fískinn og tókum vömr í skipið heim. Nokkra seinna fór Ásgeir af Skaftfellingi og Hallgrímur Júlíusson tók við skipinu. I síðustu ferð minni á þessu skipi hittum við þýskan kafbát. Þá var Páll kominn með skipið en Hallgrímur farinn yfír á Helga. Það var í leiðindaveðri, komið undir vor, að við vorum á leiðinni út til Bretlands með físk, þegar við sjáum eitthvað á sjónum fyrir framan okkur. í því kemur flugvél og flýgur yfír skipió og morsar á okkur. Ég kalla í Pál sem sá að það var eitthvað sem vélin var að gera okkur aðvart með. Ég var við stýrið og sé að það er eitthvað á sjónum á stjómborða. Okkur sýndist fyrst að þetta væri þversegl en þegar við komum nær sáum við að þetta var kafbátur. Við vorum með fokkuna uppi og Páll segir mér að fara og rífa strákana úr koju og láta þá fara upp á dekk. Þegar ég kem upp er kafbáturinn rétt fyrir framan stefnið á Skaftfellingi. Þegar ég fór framá til að taka niður fokkuna, sá ég hvar menn í kafbátnum veifuðu rauðu flaggi og kafbáturinn þá farinn að hallast á stjómborða. Við sáum að hann var þýskur og var í neyð. Við köstuðum línu Ester í Eyjum Húsavík. Andrés, Elísabet og Birgir. um borð en skipverjar tóku hana ekki. Það var einn maður fyrir framann tuminn á kafbátnum aó bjástra við að taka eitthvað upp úr kössum sem voru um það bil meterslangir. Allt í einu henda tveir menn sér í sjóinn og synda áleiðis að Skaftfellingi. Þeir voru í kafarabúningum með eitthvað fyrir andlitinu og rör upp í munnin hjá frá kúti. Þeir flutu vel á þessu og á endanum komust allir um borð hjá okkur en einn var dáinn og hafði farið útbyrðis þegar árásin var gerð á kafbátinn. Það var flugvél frá breskri skipalest sem fann kafbátinn og kastaði á hann sprengju, líklega sama vélin og hafði aðvarað okkur. Þessi menn vora vel búnir, flestir í gráum búningum en einn þeirra var í svörtum. Hann hafði verið á íslandi og bað að heilsa stúlku sem hann hafði kynnst. Við tókum upp nokkra kassa sem flutu á sjónum, í þeim voru ýmiskonar matvæli, kjöt og súkkulaði. Þjóðverjamir sökktu kafbátnum og vora búnir að því þegar breskur tundurspillir kom öslandi að skipinu og sótti Þjóðverjana um borð til okkar. Það gekk allt átakalaust fyrir sig. Nokkrum áram seinna fréttum við af þessum mönnum en það kom viðtal við einn þeirra í þýsku blaði. Hann sagði að það hafí verið farið vel með þá hjá Bretunum. Núna er verið að gera kvikmynd um siglingar íslendinga á stríðsáranum og það tókst að hafa upp á sex mönnum sem höfðu verið í áhöfn kafbátsins. Þeir sögðu frá því að Þjóðverjamir hefðu ætlað að taka Skaftfelling og sigla honum til Noregs. Þegar við komum til Bretlands var allt eins og venjulega en þegar við komum á vakt um morguninn var Skaftfellingur svartur af hermönnum sem leituðu hvem þumlung á skipinu. Um leið tóku þeir af okkur alla matarkassana sem við höfðum 298 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.