Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2006, Page 11

Heima er bezt - 01.07.2006, Page 11
Ester ífermingarskrúða. slætt upp af sjónum frá kafbátnum. Þeir sögðust koma með kassana aftur um borð þegar búið væri að efnagreina innihaldið. En þeir eru ókomnir enn. Okkur þótti ekki gott að tapa af kössunum því að við Andrés, Ester, ætluðum með þá heim og gefa konunum Katarine Ann, okkar og bömunum innihaldið. Deborah Lynn og Til gamans má geta þess að við vomm Birgir. með byssur um borð, eina 90 skota og 5 skota hermannariffíl. Einnig var ein skammbyssa um borð en við áttum elcki nein skot í hana. Við notuðum aldrei þessi vopn. Þegar ég kem til baka úr þessari ævintýraferð fer ég af Skaftfellingi yfír á Helga. Ég sigldi á Helga með fisk til Bretlands. Ekkert kom fyrir skipið en við sáum oft rekald á sjónum. Ég hætti á Helga vorið 1943 en skipið átti að fara á síld. Ég hafði hugsað mér að fara í Stýrimannskólann um haustið en ég var með minnsta stýrimannprófið. En örlögin gripu inn í og ekkert varð af þeirri áætlun minni. Örlagarík þjóðhátíð, sumarið 1943 Það hafði verið leiðindaveður, kalsi og hregg, bæði á föstudag og laugardag. En svo kom sólin og þá var ákveðið að framlengja skemmtunina á sunnudaginn. Við hjónin ákváðum að fara hvort í sínu lagi út í Herjólfsdal því að annað okkar þurfti að passa Ester dóttur okkar. Þegar þetta gerðist var ég hættur í siglingum, kominn heim til að byrja nýtt líf með tjölskyldunni. En það fer ekki allt eins og ætlað er. Ég hafði fengið pláss á skipinu Helga VE 333 en fór ekki á það því mér fannst að skipið myndi Birgir og Ester. sökkva. Ég er dálítið berdreyminn en ekki er víst að maður ráði alltaf drauma sína rétt. En þannig fór með Helga VE 333 að hann sökk á Faxaskeri við Vestmannaeyjar, en það | var ekki fyrr en eftir nokkum tíma. Heima er bezt 299

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.