Heima er bezt - 01.07.2006, Blaðsíða 12
i
( ’
Ester með Birgi.
Það voru margir bátar við Eyjar á snurvoð þetta sumar og
einhverjir höfðu fengið tunnur í snurvoðina, sem sagt var
að hefðu verið rétt merktar, þ.e. að í þeim væri tréspíritus.
A þessum árum var áfengi skammtað og var talið að
mánaðarskammtur dygði varla nema eina helgi. Sjálfur
átti ég áfengi frá því að ég var í siglingum enda notaði ég
það ekki mikið.
Þennan dag fór ég fyrst að hitta Jón bróður minn en hann
var ekki heima, en hann hafði skilið eftir skilaboð til mín, að
hitta sig í húsinu þar sem hann var gestkomandi. Ég gerði
það og var boðið í glas sem ég þáði. Mér virtist þetta vera
spíri eða íslenskt brennivín blandað með vatni. Ég staldraði
stutt við og fór heim og sagði konu minni að ég ætlaði að
skreppa út í Herjólfsdal. Við Jón fórum þangað.
Við komum að stóru þjóðhátíðartjaldi með veisluborði þar
sem seldar voru veitingar en sumt fólk var að drekka eitthvað
sterkara sem vitanlega var ekki til sölu í tjaldinu. Mér var
boðið áfengi og ég drakk úr einu glasi, líklega samskonar
blöndu og í húsinu þar sem ég hitti bróður minn. Ég var
ekki lengi þama og drakk ekki meira, fór síðan heim og var
hættur að fínna á mér. Ég ætlaði í vinnu morguninn eftir
eins og venjulega en það var ekki hægt að vekja mig. Þá
sendi Jón bróðir minn lækni heim til mín og ég var fluttur á
spítalann. Jón hafði vaknað um morguninn og farið í vinnu
Birgir ífermingarskrúða.
en hann veiktist sama dag og lést eftir nokkra daga. Ég
komst á fætur en var orðinn blindur. Ég lá í móki og hélt
að ég hefði fengið flensupest.
Það voru yfír 20 manns sent leituðu læknis þennan dag.
En læknamir vissu ekki hvað var að gerast. Jónas í Skuld
missti líka sjón og varð gráhærður. Hann sá ekkert frá sér
úti en inni gat hann aðeins greint útlínur hluta. Það létust
níu manns af völdum neyslu á tréspíritus. Engum datt í hug
að þessi óhugnaður væri í umferð.
I öldinni okkar segir svo:
Sá hörmulegi atburður gerðist nýlega í Vestmannaeyjum.
að 20 menn veiktust af áfengiseitrun, og hafa látist 9
menn af þessum sökum.
Það er upplýst, að menn þessir hafa neytt áfengis
úr tunnu, sem fannst á reki úti á hafi fýrir um það bil
hálfum mánuði. Reynclist áfengi þetta vera eitraður
tréspíritus.
Hvað varstu lengi á spítalanum?
Ég var fyrst á spítalanum í Eyjum en síðan var ég sendur
til Reykjavíkur. Mágur minn, Kristinn Gíslason, fór með mér
þangað. Við fórum með báti til Stokkseyrar og þaðan með
bíl á Landakotsspítalann. Þar var reynt að bjarga sjóninni
300 Heima er bezt