Heima er bezt - 01.07.2006, Síða 14
Það hefir margt á dagana drifið
frá æskuárunum og fram á
þennan dag, og eins og þar
stendur, má margur muna tvenna
tímana og öll þau undur sem hafa
átt sér stað í tækni og vísindum
á þessum árum. Einn þáttur, sem
mér er mjög kær og ofarlega í
minni, eru minningamar um veru
mína í Homafirði, á ámnum 1930
og 31. Þau ár átti ég þar dýrlega
daga og mun aldrei gleyma því.
Eg var á bænum Rauðabergi undir
Rauðabergsljalli, hjá tveimur
traustum og ágætum systmm, sem
þar bjuggu eftir foreldra sína, stóm
og myndarlegu búi á þeirra tíma
mælikvarða. Það er erfítt fyrir mig
að lýsa þeim og því sem þær vom
mér í uppvexti mínum, en ég tel
að hjá þeim hafi mér fyrst vaxið
fiskur um hrygg, eins og talið var
í gamla daga, og ég eigi þeim svo
mikið upp að unna, að ég gæti aldrei
launað þeim fyrir þessi ár, sem ég
var hjá þeim.
Arni Helgason,
Stykkishólmi:
Nú, þegar ég er kominn á efri
árin, rifjast margt upp fyrir mér af
liðinni œvi og hversa ég hef verið
lánsamur og hve handleiðsla œðri
máttar hefur verið yfir mérfram á
þennan dag. Og þaó eru ekkifáar
minningar sem standa upp úr og
y/ja mér á þessum stundum, sem ég
er að lítayfir œvi og störfog allar
þær breytingar sem orðið hqfa á
kjörum fólksins í landinufrá því ég
byrjaði að fylgjast með tilverunni.
Fyrstu kynni mín af systrunum
á Rauðabergi vom í ágústmánuði
1929. Þá bar gest að garði heima
hjá okkur, sem var að leita sér að
húsaskjóli yfir 2 nætur, sem hann
ætlaði að dvelja á Eskifirði. Mamma,
sem tók á móti gestinum og bauð
inn, sá strax að hann var langt að
kominn, og hún bauð gestinum, sem
var kona á rúmlega miðjum aldri,
inn og ekki leið á löngu áður en
þær vom komnar í skemmtilegar
samræður.
Konan sagðist vera frá Homafirði
og hefði komið hingað til að
heimsækja frænda sinn, sem hún
tilnefndi, en hann haft ekki verið
heima, og ekki vitað hvar hann væri.
Kona, sem bjó í sama húsi og frændi
hennar, sagði að hann myndi ekki
koma í bæinn fyrr en í næstu viku.
Mamma sagðist geta hýst hana og
þær urðu fljótt mestu mátar. Þessi
kona var Katrín Erlendsdóttir og
átti heima á Rauðabergi á Mýmm.
Þær ræddu margt saman konumar
302 Heima er bezt