Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2006, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 01.07.2006, Blaðsíða 26
eða hætta námi. Þessi bekkur var því útskriftarbekkur og hélt upp á skólalok sín með skólaferðaferðalagi, eins og landsprófs- og gagnfræðaprófsnemendur gerðu áður. Þetta vor var mér falið að vera fulltrúi kennara með í för nemenda, ásamt Sigurði Randver, en venja var að kennarar færu með nemendum í ferðir af þessu tagi. Skyldu þeir vera eins konar fararstjórar og gæta þess að ferðin færi fram að hætti siðaðra manna. Að þessu sinni var ákveðið að fara til Reykjavíkur og gista á leiðinni suður í húsakynnum Reykjaskóla í Hrútafirði. I Reykjavík var gist í heimahúsum. Ferð þessi gekk í flesta staði vel, en mér er sérstaklega minnistætt eitt atvik sem gerðist í upphafi ferðar. Eftirvænting nemenda var mikil fyrir þessa ferð og undirbjuggu þeir hana með ýmsum hætti. Leiðin var vandlega rannsökuð og lásu sumir sér til um staðhætti og sögulegar minjar til að geta frætt félaga sína á ferðalaginu. Aðrir voru kunnugir leiðinni, áttu æskustöðvar eða höfðu dvalist á þeim slóðum þar sem ekið var um. Voru þessir nemendur sjálfsagðir viskubrunnar og sögumenn þegar ekið var um kunnuglegar slóðir. Nokkur skáld voru með í för og kepptust þau við að yrkja um lífið og tilveruna, oft í tengslum við náttúruna sem við blasti út um gluggann á rútunni á leiðinni. Ekki man ég neina af þessum vísum og kvæðabrotum, en man að oft var mikið hlegið að kveðskapnum. Nokkrir eldri nemendur í hópnum höfðu með sér annars konar veganesti en hér er lýst. Vom þeir orðnir slompaðir þegar kom i Reykjaskóla. Tókum við Sigurður hart á þessu máli og kröfðumst þess að allur vínandi yrði afhendur okkur þegar í stað annars yrðu viðkomandi nemendur skildir eftir í Reykjaskóla. Hófust nú málamiðlunarviðræður milli okkar kennaranna og nemenda og lauk þeim þannig að við tókum í okkar umsjá allt vín, sem reyndar var ekki mikið, og skyldum við afhenda það aftur þeim nemendum sem orðnir voru tvítugir, þegar til höfuðborgarinnar kæmi. Var jafnframt lögð á það rík áhersla af okkar kennaranna hálfu, að neysla áfengis og skólaferðalag færi illa saman og yrði ekki liðið á ferðalaginu, hvorki Óskar Agústsson, 1947. í rútunni eða þeim húsakynnum sem við höfðum fengið leyfi til að gista í á leiðinn. Varð þetta að samkomulagi og stóðst hundrað prósent það sem eftir var ferðarinnar. Sýndu nemendur þannig góðan félagsþroska og tillitssemi upp frá því. Þegar kennslu lauk að vori hófst prófatíminn. Fengu nemendur nokkra daga til upplestrar fyrir hvert próf og var sá tími vel nýttur. Á milli próftama, að hverju prófí loknu og á kvöldin, gerðu nemendur sér ýmislegt til afþreyingar. Þeir stunduðu íþróttir, úti og inni eftir þörfum. Fóru í gönguferðir og nutu góða veðursins þegar svo bar undir. Leikfímiprófíð krafðist undirbúnings. Nemendur voru látnir æfa tilteknar æfingar sem fengnar vom frá menntamálaráðuneytinu og embætti íþróttafulltrúa ríkisins. Var nemendum ætlaður ákveðinn stundafjöldi til æfinga fyrir prófið. Stuttu fyrir prófdag barst svo innsiglað bréf með prófæfmgunum. Vilhjálmur Pálsson íþróttakennari við Gagnfræðaskólann á Húsavík hafði verið skipaður prófdómari af menntamálaráðuneytinu. Kom hann í Lauga á prófdag og dæmdi ásamt mér um árangur nemenda. Gaf hann nemendum mínum góða og sanngjama einkunn og lofaði frumraun mína sem kennara. Lét hann góð orð falla í minn garð um kennslu mína. Var ekki laust við að ég væri talsvert stoltur yfir nemendum mínum, sem stóðu sig yfirleitt vel, enda áhuga- og samviskusamir upp til hópa. Eftir síðasta próf vorsins man ég að það var sérlega gott veður, töluvert hlýtt og sólskin. Nemendur flykktust út úr prófstofunum og stóðu í smáhópum fyrir sunnan skólahúsið á bakkanum ofan við tjömina. Það var gleði og galsi í augum margra og eftirvænting vegna próflokanna. Gekk ég sunnan við skólann og hugðist kasta kveðju á nokkra nemendur sem þar stóðu. Allt í einu heyrðist kallað „hendum honum í tjömina“. Sá ég að hópur nemenda stormaði að mér og hugðist greinilega láta stjómast af þessu upphrópi. Leist mér ekki á blikuna og nú var mikilvægt að vera fljótur að hugsa. Ákvað ég að reyna að semja við nemendur. I sjálfú sér hafði ég ekkert á móti því að svala mér í tjöminni, en ég vildi gera það með einhverjum þeim hætti sem kæmi mér ekki allt of illa, eins og ef mér væri bókstaflega kastað í hana. Stakk ég upp á að nemendur þreyttu kappsund við mig af steypta tjamarbakkanum og út í vestari hólma tjamarinnar. Lagði ég til í snarhasti að tiltekinn nemandi í hópnum og sem hafði sig talsvert í frammi, þreytti við mig kappsundið, vitandi að hann hefði ekki roð við mér. Eg hafði kennt honum sund um veturinn og vissi hvers hann var megnugur. Ekki gat hann með sæmd skorast undan, enda einn sá kappsamasti um að mér yrði hent í tjömina. Til að gera keppnina meira spennandi, kvaðst ég myndi stinga mér til sunds nokkm á eftir félaga mínum en vinna hann samt. Var þessi tillaga þegar samþykkt með húrrahrópum og fóram við nú niður að tjöm og tókum okkur stöðu á tjarnarbakkanum. Nemendur hópuðust að og hvöttu okkur mjög til keppninnar. Félagi minn stakk sér og náði að synda eina tíu metra áður en ég kastaði mér á eftir honum. Hófst nú 314 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.