Heima er bezt - 01.07.2006, Side 30
setja tilfmningalegar hömlur til þess að verja sig með því
að bæla tilfínningamar, hægja á andardrætti og fjarlægjast
upplifunina. En maður kemst ekki undan áhrifunum og það
er miklu betra aó upplifa áhrifin og vinna úr þeim heldur
en að bæla þau. Fyrr eða síðar lendir maður í því að verða
fyrir einhverju skakkafalli og þarf að vinna úr því. Það er
ekki hægt að komast undan lífinu.
Ég fór ungur að vinna og sé ekki eftir því. Þegar móðir mín
lést flutti ég, eins og áður segir, heim með þáverandi konu
mína, Katrínu Hafsteinsdóttur, og son okkar Þór Guðnason.
Á þeim tíma var ég að byggja tveggja hæða hús. Ég var að
vinna hjá Flugleiðum og byggði húsið í frístundum og svo
var ég að smygla en það var bæjaríþrótt í Keflavík. Smyglið
var í litlu magni, nokkrar sígarettulengjur og bjór. Smyglið
fór ekki vel í mig því að ég fékk svo mikið samviskubit á
eftir og hætti þessu fljótlega. Ég hef verið tekinn fastur fyrir
smygl. En ég hef aldrei lent í neinu um
ævina sem ég hef ekki átt skilið.
Upphafið að ástundun jóga
Ég fór að stunda líkamsrækt þegar ég
var 15 ára, keypti mér líkamsræktaráhöld
og þá eingöngu með það fyrir augum að
stæla líkamann og verða sterkari. En ég
komst fljótlega að því að ég hafði meiri
áhuga á öndunaræfingum en æfmgum í
tækjum. Þetta em mín fyrstu kynni af jóga
því að jóga þýðir eining, átak, athygli
og öndun. Það að maður býr til einingu
upplifunar, að vera í einingu, þýðir það
að vera í vakandi vitund. Jóga er ekki háð
neinu, það getur farið fram á mörgum
sviðum, þú getur farið í hugleiðslu víðar
en í fimleikasal. Jóga gengur út á það að
vera fúllkomlega til staðar í öllu sem maður
er að gera. Hatha-jóga er það sem flestir
þekkja og gengur út á líkamsstellingar.
Kripalu-jóga er afsprengi af því. Allt
jóga og öll ástundun er góð. En ástundun
einingar gengur út á það að vera með
tæra vitund og hafa hreinan ásetning. Það
er að nærast á kærleiksríkan máta. Að
stunda fjarveru eða sundrung, þ.e. lesa
eða hugsa um annað en það sem þú ert
að gera, skemmir fyrir.
Neikvceðni verður til ef
við upplifum höfnun,
tökum dóm annarra
inn á okkur. Reipisjóga
hjálpar okkur að ráða
við það og vinna gegn
neikvæðri afstöðu í lífinu
Guðni fann upp Reipisjóga fyrir 20 áram, og hefur þróað
þetta æfingakerfi eftir eigin reynslu. Hann varð fljótlega viss
um að hann hefði uppgötvað eitthvað merkilegt, sem ætti eftir
að breyta lífi hans og margra annarra. Það kom lika á daginn,
því núna er Guðni þekktur víða urn heim og Reipisjógað hefur
hjálpað ótal mörgum. Hann notar það sem sjálfstjáningu. 1
fyrstu grunaði hann ekki hvað það átti eftir að hafa mikil og
góð áhrif á þá sem hann meðhöndlar. Fljótlega áttaði Guðni
sig á því að hann hafði hannað mjög fullkomið æfingakerfí
sem hjálpaði fólki að losna við streitu og stoðvegavandamál.
Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir þjálfari.
Þeir sem þjást af bakverkjum hafa náð
miklum árangri með Reipisjóga. Um leið
og kviðvöðvar styrkjast, minkar álagið á
hryggvöðvana. Guðni segir að líkamlegur
árangur í Reipisjóga sé upphafið að miklu
dýpri vinnu. Það er mjög öflugt kerfi
til að styrkja sál og líkama á fljótan og
árangursríkan hátt. Það er samræmi ólíkra
þátta til að skapa eina sterka heild í lífi
þeirra sem stunda það.
Hvað eru jógafrœðin gömul?
Jógafræðin era sex þúsund ára gömul.
Jóga sem slíkt, er ekki háð neinu, eins
og fyrr segir, og það getur farið fram á
mörgum sviðum. Hugleiðsla og Karma
jóga sem við köllum, fer þannig fram að
við eram að fylgjast með umhverfí okkar
og hvernig við þjónum því. I raun og vera
gengur jóga út á vakandi athygli. Vera
meðvitaður um öndun sína og hreyfingu
og á upplifun sem því fylgir. Það þarf að
vera fúllkomlega til staðar í öllu sem maður
gerir. Það er það sem jóga gengur út á.
Hatha-jóga gengur út á líkamsstellingar og
er það sem flestir þekkja og jógastöðvarnar hér hafa kennt.
Kripalu-jóga er það sem ég lærði fyrst í þessum fræðum.
Að hafa hreinan ásetning er mjög nauðsynlegt til þess að
ná árangri og á það bæði við um iðkum jóga og annað sem
maður tekur sér fyrir hendur.
Getur fólk bœtt andlega líðan sína með því að stunda
Reipisjóga?
Já, það fer ekki á milli mála. Neikvæðni verður til ef við
318 Heima er bezt