Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2006, Síða 32

Heima er bezt - 01.07.2006, Síða 32
Kviðlingar kvæðamál Umsjón: Auðunn Bragi Sveinsson Vísnaþáttur Góðir vísnaunnendur, nær og í]ær. Eg fæ við og við skeyti frá ykkur, sem mér þykir vænt um. I þessum þætti er aðalefniviður hagyrðingur mánaðarins, sem ég nefni svo. Vona ég, að þessi kynning á nýtum hagyrðingi eða skáldi, hvort sem menn vilja kalla þá, viðhaldi hinni þjóðlegu iðju, að setja saman stuðlað mál og háttbundið. Annars er ljóðið í þessu formi, skilst mér, á undanhaldi, samanber erindið, sem ég setti saman: Eru þau á einu máli: allt má kalla Ijóð, þó hvorki örli á stuðlastáli né stejja-dýrri-glóð. Nú kynni ég hagyrðing af Austurlandi, eins og ég hef raunar gert áður í nokkur skipti. Eftir að ég hafði sent frá mér fyrsta bindi að vísna- og Ijóðasafninu „í fjórum línum“, 1980, sendi Elelga Björg Jónsdóttir frá Þorvaldsstöðum í Breiðdal, mér vísu, sem var nokkur gagnrýni á vísnaval mitt. Henni fannst gengið fram hjá Austfírðingum, og orti: manna þar. Gísli kom þessu fyrir í lipurri stöku: Símann gamla set í naust, seinna fæ ég annan. Get þá tæpitungulaust tjáð minn hug um grannann. Varla getur betri sjálfslýsingu en þessa, sem Gísli lætur frá sér fara: Ei mér vekur öfund, þó öðrum vegni betur. Hafi ég i nefið nóg, neitt mig angrað getur. Un Egil Jónasson, þann kunna hagyrðing og skáld, orti Gísli í Þrastahlíð: Agli ég athygli veiti; með angri ég til þess finn, að sá er að sínu leyti síðasti geirfuglinn. Ferhendurnar, flestar slyngar, frægur saman tók. En allt of fáir Austfirðingar eru í þeirri bók. Gísli hét maður Björgvinsson, fæddur 24. mars 1909 að Hlíðarenda í Breiðdal, dáinn fyrir allmörgum árum. Hann byggði nýbýlið Þrastahlíð úr landi Hlíðarenda 1940 í Breiðdal, og bjó þar síðan með konu og fjórum bömum Hann orti vísur, þegar tilefni gáfust, og vænti sér hvorki frægðar né frama fyrir ljóðagerð sína. Slíkur hefur verið háttur hagyrðinga og vísnavina um alla tíð. Gísli segir þetta um vísnagerð sína: Stundum hef ég stöku gert, stuðlum raðað saman. Allt er þetta einskis vert, aðeins stundargaman. Þegar síminn varð sjálfvirkur í Breiðdal, var ekki lengur hægt að liggja á línunni, eins og sagt var, og hlýða á mál Þess skal getið hér, að Egill var sá fyrsti, sem ég nefndi hagyrðing mánaðarins á síðum þessa rits. Víða í sveitum landsins fækkar konum mjög, og búa bændur þar víða einir. Ur þessu virðist þörf að bæta, að dómi Gísla: Enn má finna ágœt kot aðeins byggð af sonum. Okkur vantar eins og skot eina tylft af konum. Elís Pétur Sigurðsson bjó lengi á Breiðdalsvík, og átti og rak vinnuvélar. Hafði á hendi snjóraðning á vetram af götum og vegum. Var misjafnlega mikið að gera í þessu, og fór eftir veðurfari. Þetta varð Elís Pétri að yrkisefni: Elís, hann á afbragðs tönn, arð þó lítinn hafi borið. Nýrri bæn um byl og fönn bætir hann nú við faðir-vorið. 320 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.