Heima er bezt - 01.07.2006, Blaðsíða 39
ón R.
Ijálmarsson:
SPAMAÐUR
LJÓSSINS
r
veraldarsögunni segir gjarna frá miklum hugsuðum
og spámönnum sem öðru hverju koma fram og valda
straumhvörfum með kenningum sínum og boðskap. Einn
slíkur boðberi var Zaraþústra, persneskur maður sem heima
átti í ijalllendinu austur af Mesópotamíu, þar sem nú er ríkið
Iran, og uppi var á árunum 628 til 551 fyrir Krist. Fátt er nú
kunnugt um æsku hans og uppvöxt, en sem fulltíða maður
hvarf hann að heiman og dvaldist einn um árabil í óbyggðum
og eyðimörkum, þar sem hann hugleiddi vandamál mannlegs
lífs og samfélags og hvað helst mætti verða því til bjargar. I
þessari löngu einsemd fékk hann loks opinberun, því að hinn
góði guð Ahúra Mazta birtist honum og leiddi hann í allan
sannleika. Að síðustu fól svo þessi guðdómur honum að kynna
boðskap sinn og útbreiða hina réttu trú meðal mannanna.
Upp úr þessari vitrun sneri Zaraþústra til byggða og gerðist
siðbótarmaður og öflugur trúarbragðahöfundur. Boðskapur
hans var þrunginn tvíhyggju og snerist um gott og illt og
eilífa baráttu þessara afla. Fulltrúi hins góða var Ahúra Mazta,
guð ljóssins, lífsins og sannleikans, en fulltrúi hins illa var
Ahríman, guð dauðans, myrkursins og lyginnar. Hvar sem
hinn góði guð leggur leið sína, læðist hinn vondi á hæla
honum og lcitast sífellt við að skemma og eyðileggja verk
hans. Þegar Ahúra Mazta í öndverðu skapaði líftð, kom sá
vondi óðar með dauðann og annað var eftir því. Sá vondi
stofnar til skclfilegra flóða og kveljandi þurrka til að þjaka
mannfólkið og sendir inn í heiminn herskara af sjúkdómum
og plágum í sama tilgangi. Hann á það jafnvel til að skjóta
vígahnöttum út í geiminn til að raska gangi himintungla og
trufla með því náttúruna og allt eðlilegt líf á jörðinni.
I hinni þrotlausu baráttu sinni fá þeir Ahúra Mazta og
Ahríman liðsauka frá góðunt og illum öflum í tilverunni og
þá ekki síst frá mönnunum. Ef mennirnir vilja leggja hinum
góða guði lið, verða þeir að lifa fögru og grandvöru lífi,
Heimaerbezt 327