Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2006, Side 44

Heima er bezt - 01.07.2006, Side 44
„Ég ætla að skreppa niður í bæ, mamma“. Hann stígur upp í bifreið sína og ekur af stað, en hvert er ferðinni heitið? Hann veit það naumast sjálfur. Ari ekur framhjá hverjum samkomu- og skemmtistaðnum af öðrum, og allir eru þeir uppljómaðir. Þar situr gleðin að völdum. Hann lítur á úrið sitt. Senn fara dansleikir að hætta, og í kvöld ætlar hann að fylgjast með straumnum. Hann stöðvar biffeið sína skammt ffá einu samkomuhúsinu og horflr þangað heim. Fyrst ætlar hann að sjá, hvetjir koma héðan út. Samkomuhúsið opnast brátt og hópur af glaðvæm æskufólki streymir út um dyr þess. Ari beinir athygli sinni að hverju andliti, sem kemur í augsýn, en þekkir ekkert þeirra í fyrstu. Þó situr hann kyrr. En skyndilega birtist honum andlit, sem hann þekkir: Aslaug frá Hvarnmi kemur út úr dyrunum, og í fylgd með henni er ungur maður, sem Ari kannast ekkert við. Þau ganga af stað frá samkomuhúsinu og leiðast, en Ara er það ljóst, að þau em bæði mikið ölvuð. Rétt á effir þeim kemur svo annað par, sem svipað er ástatt með, og þau fjögur reika að bifreið, sem stendur þar rétt hjá. Ari situr um stund sem lamaður í biffeið sinni, og felur andlitið í höndum sér. Svona er þá komið fyrir Aslaugu frá Hvammi, laglegu og kátu sveitastúlkunni, sem hugur hans hefir svo oft dvalizt hjá. Hún er orðin herfang áfengisins. Hann hryllir við þeim örlögum, og hugur hans flýgur heim að Hvammi til foreldra hennar. Hann þráir það heitast af öllu á þessari stundu, að mega hjálpa Laugu út úr ógöngunum og vemda hana gegn hinni hræðilegu spillingu áfengisins. En hann efast um að hún vilji í nokkm þiggja hjálp hans. Ari rís upp í sæti sínu og lítur út. Bifreiðin með Laugu og félaga hennar rennur af stað frá samkomu-húsinu, og hann ekur á eftir henni. Við húsið, þar sem Lauga á heima, nemur bifreiðin staðar. Þau fjögur slaga heim að kjallaradymnum og hverfa þar inn. Ari hefur séð nóg í kvöld, hann ekur hratt heim. Svanhvít Amadóttir frá Fjalli klæðist hjúkrunarbúningi sínum og gengur inn í eina lækningastofuna i hinu stóra sjúkrahúsi, þar sem hún stundar hjúkmnamám sitt. Læknirinn hefír sagt henni að mæta þar til þess að veita sér aðstoð við að búa um fótbrot á ungum manni, sem fýrir stundu síðan varð fyrir því slysi að detta við vinnu sína og fótbrotna. Svanhvít kemur inn á lækningastofuna og nemur þar staðar. Hinn slasaði maður liggur þar á legubekk, og læknirinn undirbýr starf sitt og hjúkranarkonunnar. Svanhvít lítur á sjúklinginn um leið og hún kemur inn í stofúna, og hún þekkir hann strax. Þetta er hann Ari, félagi hans... Blóðið þýtur ósjálfrátt fram í kinnar hennar. Hún brosir hlýju, samúðarfullu brosi til hins slasaða manns og hefur þegar starf sitt að fýrirsögn læknisins. Ari horfír á hina ungu hjúkmnarkonu um stund og þekkir hana brátt. Hann sá þessa stúlku á héraðssamkomunni að Hofsvöllum síðastliðið sumar, og hún er dóttir séra Ama á Fjalli. Nú er hún komin hingað til bæjarins og byrjuð að stunda hjúkmnarstörf. Einkennilegt atvik. Ari gleymir að mestu um stund þrautunum í fætinum og hugur hans flýgur norður í sveitina, þar sem hann dvaldi með bezta vini sínum við laxveiðamar. Mynd Aslaugar í Hvammi er skýrust af öllu í spegli þeirra minninga. Ari andvarpar, nú er hann orðinn sjúklingur um tíma og getur ekki náð fundi hennar eða rétt henni hjálparhönd. En, honum er litið á Svanhvíti, þær hljóta að þekkjast vel, Lauga og prestsdóttirin. Báðar úr sömu sveit og örskammt á milli heimila þeirra. Hann er þess fullviss, að Svanhvít er góð og heiðarleg stúlka, og ef til vill gæti hún hjálpað Laugu á einhvem hátt. Hann ásetur sér að minnast á Laugu við prestsdótturina strax og hann fær tækifæri til þess, og heyra hvemig orð hennar falla um Laugu. Hinn brotni fótur er kominn í traustar gipsumbúðir og Ari er fluttur á vistlega sjúkrastofu. Svanhvít gengur um stofur sjúkrahússins og líknar hinum þjáðu. Henni sækist hjúkranamámið mjög vel. Svanhvít gengur að sjúkrabeði Ara. „Góðan daginn“, segir hún glaðlega. „Hvemig líður þér í fætinum?“ „Ég þakka þér fyrir, vel eftir atvikum“. Hún hagræðir því sem með þarf kringum Ara og ætlar svo að ganga á burt. En hann segir: „Við höfum sézt áður. Ert þú ekki dóttir hans séra Ama á Fjalli?" „Jú, ég er dóttir hans. Ég man vel eftir þér á héraðssamkomunni að Hofsvöllum síðastliðið sumar“. „Já, við sáumst þar. Einu sinni komum við félagamir að Fjalli í boði foður þíns og það var reglulega skemmtilegt ferðalag“. Svanhvít svarar engu, en Ari heldur áfram: „Er ekki allt gott að frétta af foreldrum þínum?“ „Jú, þakka þér fyrir“. „Og eins frá Hvammi, ég kynntist þar mest, ég var að heita mátti daglegur gestur þar“. „Ég hefí lítið frétt frá Hvammi, nema þau em þar tvö ein í vetur, hjónin“. „Jæja, svo þar er fámennt og góðmennt. Aslaug vinnur hér í bænum, ég hitti hana af tilviljun í haust“. „Veiztu hvar hún á heima?“ „Já, ég veit það, þið eruð auðvitað nákunnugar, báðar úr sömu sveit, og örskammt á milli heimila ykkar“. „Já, ég þekki Aslaugu vel, pabbi skrifaði mér, að hún hefði farið hingað til Reykjavíkur í haust. En ég hefí ekki vitað hvar hún var niðúr komin og þar af leiðandi ekki getað heimsótt hana. Hún hefír heldur aldrei komið til mín, en þó hlýtur hún að vita hvar ég er“. „Ég skal segja þér hvar Lauga á heima, og meira að segja gefa þér heimilisfang hennar skrifað á miða, svo að þú getir heimsótt hana sem fyrst“. „Ég þakka þér fyrir, ég hefði gaman af því að hitta Áslaugu, við erum gamlar leiksystur og mér er vel við hana“. Ari nær í vasabók og penna, sem liggur á borðinu við rúmið hans, og skrifar heimilisfang Áslaugar á miða. Svo réttir hann Svanhvíti miðann og segir með dapurlegu brosi: „Ég bið þig að færa Laugu kveðju frá mér, þegar þú heimsækir hana“. „Það skal ég gera, en get ég ekkert nreira fyrir þig gert að þessu sinni?“ „Nei, þakka þér fýrir“. „Líði þér vel“, segir hún og gengur út úr sjúkrastofunni. Kyrrt, skuggaþrungið síðvetrarkvöld hjúpar bæ og byggð. 332 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.