Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2006, Blaðsíða 46

Heima er bezt - 01.07.2006, Blaðsíða 46
Lauga lítur alvarlega á piltinn og gefur honum bendingu um að segja ekki meira. Hann þagnar, en glottir kæruleysislega og lítur á Svanhvíti. Lauga býður gestum sínum að reykja, og kveikir sér í vindlingi þeim til samlætis. En Svanhvít hefír séð og heyrt nóg, hún horfir nokkur andartök á þetta æskufólk og virðir það fyrir sér, allt er það ungt og glæsilegt, en hversu heilbrigður er félagsskapur þess? Helzt hefði hún kosið að hrífa Áslaugu á brott frá þeim, en til þess hefur hún heldur lítið vald. Svanhvít rís snöggt á fætur og segir: „Ég hefí verið að teíja þig, Áslaug. Fyrirgefðu“. „Nei, það er allt í lagi. Ætlar þú ekki að sitja lengur?“ „Ekki núna, en ég kem kannske seinna. Ég hefði gaman af að þú heimsæktir mig, Áslaug“. „Ég þakka þér fyrir, ég geri það þegar ég hefi tíma til þess“. Svanhvít kveður Laugu með hlýjum kossi, býður gestum hennar góða nótt og hraðar sér út. Á strætum borgarinnar er venju fremur fámennt. Svanhvít gengur hægt upp strætið heim til sjúkrahússins. Heimsókn hennar til Áslaugar var henni til lítillar gleði. Aumingja Áslaug! Hvað hefir komið fyrir hana? Hún virðist að vísu vera vel ánægð með lífið. En hvemig lífi lifir hún? Tóma áfengisflaskan undir borðinu og orð unga piltsins í kvöld vekja sáran gmn og þungar áhyggjur í huga prestsdótturinnar. Hjarta hennar brennur af þrá eftir því að mega rétta Áslaugu systur- og vinarhönd, en hvaða leið ætti hún að velja, til þess að Áslaug misskilji hana ekki? Hún efast um að sú leið sé auðfundin, eins og sakir standa. Svanhvít ákveðiir að heimsækja Áslaugu bráðlega aftur og sjá þá hvemig högum hennar verður háttað, þó hún ef til vill geti ekkert fyrir hana gert. Á morgun ætlar hún að skila kveðju Áslaugar til Ara Viðar. Björt, ylrík morgunsól sendir geisla sína inn um hvem glugga hins stóra sjúkrahúss, og sjúkir jafnt sem hinir starfandi, njóta yls hennar og birtu. Svanhvít gengur um stofur sjúkrahússins og ætlar að koma við hjá Ara Viðari. Hún á við hann einkaerindi. Svanhvít nemur staðar við rúm Ara og býður honum glaðlega góðan dag. Svo lagfærir hún það sem með þarf kringum hann, en segir því næst: „Áslaug ffá Hvammi bað mig að bera þér kveðju sína“. „Ég þakka þér fyrir. Þú hefir þá farið í heimsókn til hennar“. „Já, í gærkvöldi“. „Söng ekki allt gott í Laugu?“ „Jú, hún lét vel yfir líðan sinni“. Ari horfir á Svanhvíti, döpmm en einlægum augum. „Það er gott. Hún hefír víst nóg að starfa“. „Já, það er víst“. „Sagði hún nokkrar fréttir að heiman, frá Hvammi?“ „Nei, hún hefir víst ekki fengið bréf nýlega frá foreldmrn sínum“. „Ekki það. Kannske hefir hún sjálf lítinn tíma til bréfaskrifta“. Svanhvít andvarpar þunglega. Skyldi Ara gmna eitthvað? „Vom nokkrir gestir hjá Laugu?“ Ari hefir borið ffam spumingu sína áður en hann veit af. „Ekki þegar ég kom til hennar, en rétt áður en ég fór komu þrír gestir“. „Og með þeim hefir hún ætlað út, var ekki svo?“ Svanhvít hikar við að svara, því líklega veit Ari nokkuð náið um hagi Áslaugar. Hún lítur á Ara og mætir augum hans, djúpum og einlægum, og það er eins og þau lesi í huga hvors annars. Aumingja Áslaug! Svanhvít rýfur þögnina að lokum og segir: „Áslaug er ung og hefir gaman af að skemmta sér. Vonandi á hún góða félaga“. Ari hristir höfuðið. „Hún hefír ekkert ráðgert að koma hingað í heimsókn til þín?“ „Ekki beint, en ég bað hana að heimsækja mig, og hún lofaði að gera það, þegar hún hefði tíma til þess“. “En hvenær verður það?“ „Ég veit ekki, en ég ætla mér að heimsækja hana bráðum aftur, þó að hún komi ekki til mín“. „Gerðu það, Svanhvít". Rödd Ara er þrungin heitri bæn. Þau skilja hvort annað. En samtali þeirra er lokið að þessu sinni, og Svanhvít gengur út úr sjúkrastofunni. Veturinn er horfinn í hið óendanlega djúp tímans, og vorið sezt að völdum með sinni fjölþættu dýrð og unaðssemdum. Ari Viðar er löngu farinn heim af sjúkrahúsinu og að mestu gróinn sára sinna. Milt vorkvöld ríkir yfir hinni glæstu höfuðborg. Svanhvít er ein á gangi heim að sjúkrahúsinu. Hugur hennar er svo dapur, að hún veitir naumast athygli hinni auðugu dýrð vorsins umhverfis sig. Hún er að koma í þriðja sinn á skönunum tíma úr árangurslausri heimsókn til Áslaugar frá Hvammi. Ibúð Áslaugar hefír ávallt verið læst og enginn svarað Svanhvíti. En að þessu sinni ætlaði hún að reyna til þrautar að ná fúndi Áslaugar, og fór upp á efri hæð hússins, til þess að spyrja um hana. Þar hitti hún stúlku að máli, sem sagði henni að Áslaug leigði enn í kjallaranum, en hún væri víst sjaldan heima, og stúlkan leit svo einkennilega á Svanhvíti, en þó var hún vingjamleg. Svanhvít spurði hana hvort hún vissi hvar Áslaug starfaði, en það vissi stúlkan ekki. Hún sagði að Áslaug væri fyrir löngu hætt að vinna á veitingahúsinu, en hvað hún starfaði nú hafði stúlkan enga hugmynd um. Svanhvít fór því að mestu leyti jafn fáfróð af fúndi hennar og hún kom. Líklega gengi henni ekki greiðlega að fmna vinstúlku sína. Hún ætlar heldur ekki að gera fleiri tilraunir að sinni, en sjá hvað tíminn leiðir í ljós. Svanhvít er óvenjulega hrygg, og hraðar sér inn í svefnherbergi sitt. Einveran er rík af friði og hin hljóða vomótt mildar allt við hið bjarta skaut sitt. Ari Viðar er einn á ferð í biffeið sinni, og ekur hægt í bæinn. Hann er að koma ofan úr Mosfellssveit frá því að flytja þangað kunningja sinn. Hið bjarta vorkvöld færir hinum unga ferðamanni ffið og unað í sál, og hann nýtur þess í kyrrð einverunnar. Ari er kominn niður í miðbæ. Á götum höfuðborgarinnar er orðið fáferðugt, enda mjög áliðið kvölds og búið að loka öllum skemmtistöðum. Ari veitir því athygli, að húsdyr em opnaðar 334 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.