Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.12.2006, Blaðsíða 10
AUÐUR OLAFSDOTTIR
Neðst á myndfletinum er
málaður texti, skrifaður á
frönsku þar sem lesa má
eftirfarandi staðhæfingu:
„Ceci n’est pas une pipe“
(þetta er ekki pípa). Yfir-
lýsinguna ber að skoða í
ljósi sérstöðu myndmáls;
texti í myndlistarverki er
ekki tungumál heldur
myndmál. Sérhvert mynd-
listarverk býr sér til sinn
eigin innbyggða merkingarheim og því er texti málaður á málverk jafn-
mikið myndmál og hvað annað. Eða orðað á annan hátt: Tungumál
myndlistar er myndmál, ekki bókmál og hugsun hennar er myndhugsun.
Samband texta og myndar þarf síður en svo að vera rökrétt, málaðir bók-
stafir á striga eru enda ekki það sem gerir myndlistarverk „læsilegt“.
Sannleiksgildi ofangreinds texta Magritte felst einmitt í því að þetta er
ekki pípa heldur mynd af pípu, þetta er málverk. A þann hátt er verkið
líka áminning um það að jafnvel raunsæjasta gerð listaverks er skýlaus
veruleikablekking, að málverk, sama hvert viðfangsefnið er, er í eðli sínu
litir og form á rennisléttum léreftsdúk, ekki gluggi út í heiminn.
Jafnvel þótt frásagnarkennd myndlist fyrri alda standi að ýmsu leyti
nær bókmenntalegri frásögn en samtímamyndlist, þá er öll frásögn í
myndlist gervifrásögn í bókmenntalegum skilningi. Samtímamyndlistar-
menn nota tungumálið í verkum sínum á fjölbreyttan máta og langt frá
því að þeir einskorði sig við texta sem lýtur lögmálum rökrænnar fram-
setningar hefðbundinnar orðræðu. Tengsl þeirra við tungumálið spanna
allt frá hefðbundnum frásagnarkenndum verkum, í ætt við myndlist fyrri
alda, til þess að líta á tungumálið sem málvísindi. Meðal ólíkra myndlist-
armanna sem hafa unnið með tungumálið í verkum sínum má nefna kúb-
istana Pablo Picasso og Georges Braque, fyrrnefndan Magritte, Marcel
Duchamp, Bruce Nauman, Lawrence Weiner, Joseph Kosuth, Dieter
Roth, Sophie Calle, Ilya Kabakov og Ian Hamilton Finlay. Þeir Picasso
og Braque gerðu tilraunir með bókstafí og orð sem form á meðal forma
á tvívíðum fleti hins klassíska olíumálverks (collage verk), en þeir ofan-
greindu myndlistarmenn sem komu fram eftir 1960 mótast í andrúmi
8