Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1966, Qupperneq 9
SPURNINGAR
TIL
KENNARA
Steinunn Stefánsdóttir, kennari við G.A.
kom að skólanum nú í haust. Hún hefur nýlega
lokið háskólaprófi í listsögu og tungumálum f
Leipzig í A-Þýzkalandi, en það er fornfræg
lista- og háskólaborg þar í landi. Blysið snéri
sér til Steinunnar og bað hana að svara nokkr-
um spurningum um aðstöðu ungs fólks f A-
Þýzkalandi til menntunar og skólagöngu.
- Er mikillmunur á skólakerfinu þar f
landi og hér ?
- Samkvæmt nýju fræðslulögimum, sem var
ið er að framkvæma í A-Þýzkalandi er afnum-
in skipting í barna-gagnfræða-og menntaskóla
en í þess stað komið á fót svo nefndum fjöl-
tækniskólum með tíu ára skólaskyldu. Þá tek-
ur við tveggja ára framhaldsdeild fyrir þá,
sem ljúka vilja stúdentsprófi. -
Er verulegur munur á fjöltækniskóla og
gagnfræðaskóla ?
- I fjöltækniskólanum er lögð mikil áherzla
á raunvísindagreinar ( stærðfræði, eðlis- og
efnafræði ) en f tungumálanámi ríkir valfrelsi.
Nemendum er ætlað að vinna eins sjálfstætt
og unnt er og kennslustundir eru fremur not-
aðar til skýringa á námsefninu en til yfirheyrslu.
- Geta þeir, sem hugsa sér einhverja iðn
að æfistarfi, hafið iðnnám áður en skyldunámi
lýkur ?
- Já, þeim gefst kostur á að afla sér sér-
menntunar f bóklegum- og verklegum grein-
um jafnhliða skyldunáminu og stytta þannig
námið í tækni- eða iðnskóla.
- Er nemendum þar jafnmikil skemmtim
að því að vera í skóla og t. d. nemendum hér
í Reykjavík ?
- Skólaárið þar er mun lengra en hér u.þ.b.
tíu mánuðir, svo þeim gefst áreiðanlega tæki-
færi til að fullnægja námslöngun sinni f Og
ekki glepur þá vinnan í sumarleyfinu, því sjald-
gæft er að nemendur vinni þann tíma. Hins
vegar fá flestir námsstyrk frá rfkinu í 9-12.
bekk, og námsbækur eru allar ókeypis á skyldu-
stiginu. Auk þess á allt skólafólk rétt á af-
slætti á miðum í leikhús, á tónleika og á far-
miðum innanlands. -
Við þökkum Steinunni þennan fróðleik og
dálítið kitlar oss f hjartabroddinn að eiga, ef
til vill, von á því með vaxandi þróun í skóla-
málunum, að fá fría ferð á Þjóðhátíðina í
Eyjum eða gjafamiða á Kinksana, þegar þeir
koma næst.
- 9 -