Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1966, Blaðsíða 11

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1966, Blaðsíða 11
sagan um bordid og stólinn Þessir tveir hlutir voru úr sama efni með sömu tegund af frumeindum og sameindum, gerðir fyrir fyrirmyndarfólk, en notaðir af strák, sem var svo sem ekkert guðslamb. Hann sagði alltaf hí, hí þegar hann hló, sórstaklega þegar kennarinn varð reiður og það var ekki sjaldan. Stóllinn horfði dapur upp til borðsins : " Hugsa sér þetta fólk ". Þeim þótti strákurinn alveg einstaklega leiðinlegur. Hann var nú ekkert tillitsamur um of gagnvart þeim. Borðið var alltaf útpárað eftir pennann hans. Og stóllinn. Ó, já, hann var reyndar óhamingjusöm sál. Ein löppin sneri í vestur, önnur í austur, sú þriðja var einhvers staðar þar á milli og sú fjórða var bogin. Borðið hafði ekki alveg sloppið, hvað lappir snerti. Þær tvær, sem sneru að strákn- um, voru svolítið hjólbeinóttar, því þegar kennarinn var í góðu skapi, sparkaði hann alltaf óþyrmilega út til beggja hliða, og það voru oftast borðlappirnar, sem urðu fyrir fót- um hans. Nú var það borðið, sem leit niður á stól- inn og það var undursamlegt að geta litið nið- ur á einhvern. Stóllinn hvíslaði : " Veiztu hvað kom fyrir í dag. Strákurinn sem situr á mór dag- lega, mér til mikillar armæðu, setti sápu hjá kennaraborðinu og vesalings kennarinn steig á þennan óþverra og handleggsbrotnaði. Þú hefðir átt að sjá risið á strákræflinum. Hann fór að grenja. Nú á víst að koma nýr kennari, einhver kvenómynd, sem kvað hafa gott lag á börnum. Stóllinn þagnaði, því að hurðinni var lok- ið upp og inn kom grindhoruð kona á flatbotn- uðum skóm. Krakkarnir þustu út í allar áttir æpandi og skrækjandi, en komu sér að lokum í sætin og kennarinn, imgfrú ólxna, upphóf sína rámu rödd. „ Börnin góð. Ég heiti ölína Karls og á að kenna ykkur, fyrst svo óheppilega vildi til að kennarinn ykkar handleggsbrotnaði, og ég ætlast til,að hér sé alger þögn. Það er frum- skilyrði. Annað, nemendur eiga ekki að vera með togleður. Það er óskemmtilegt, að hugsa sér að maður sé staddur í fjósi. Og að lokum allir piltarnir skulu klippa hár sitt eða þeir teljast ekki lengur til þessa bekkjar ". Hún stóð lafmóð með tindrandi augu, spóa- leggirnir hristust og skulfu. Svo slengdi hún sér niður í stólinn og fór með faðirvorið. Strákurinn sat agndofa og horfði á aðfarir kennslukonunnar. Næstu vikur var eins og vondur draumur, nema hvað borðið og stóllinn voru ánægð. Strákurinn hafði ekki látið vonzku sína bitna á þeim og fallega hárið hans var farið veg allrar veraldar. Hann setti hljóðan af ótta við refsingar migfrú Ölínu Karls. Hálfum mánuði síðar fór ungfrúin, þegar hún var búin að blessa yíir hópinn og þakka guði fyrir að leysa sig frá þessum ósköpum. Þá stóð lítill glaður strákur með eitt blóm fyrir aftan bak og beið komu gamla kennarans. Hann sagði aldrei meir hí, hí, og stóllinn og borðið voru yfir sig undrandi. B.G. - 11 -

x

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar
https://timarit.is/publication/1858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.