Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1966, Síða 13

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.12.1966, Síða 13
átti í GagnfræiSaskóla Austurbæjar. Við feng- um að vita af því fyrir viku og höfðum ekki fengið að gleyma því síðan^því við hverja máltíð var talað um það og þrábeðið um að fá að fara. Og svo hin margumtalaða spum- ing, " þarf óg virkilega að koma heim strax og því er lokið ?" Já, við höfðum heyrt mikið um þetta, en skriflegt leyfi? Nei, það hafði örugglega ekkert verið minnzt á það. Og fyrir hverju skyldi það vera ? Við fengum nó brátt úr því skorið, því verið var að slíta samtalinu frammi. Og dóttir okkar kom inn og umlaði eitthvað í þá áttina,að alltaf væri fiskur. En það gleymd- ist furðu fljótt að þessu sinni,og frásögnin hófst. Það hafði verið tilkynnt í skólanum þenn- an morgun, að ekki yrði leyfður vangadans ( nema með skriflegu leyfi foreldranna. Dóttir mín kom þjótandi inn í eldhús, móð af hlaupunum og slengdi skólatöskunni frá ser og kallaði óþarflega hátt, um leið og hún fór úr kápunni. "Það er skólaball í kvöld og eg þarf að fá skriflegt " ? Hún var trufluð af símahringingu, það var til hennar. Við heyrðum hana masa við vinkonuna um hið stórmerkilega ball, sem í vændum var. Hverju skyldu þær fara x ?. og svo það mikilvægasta. Skyldi "hann" bjóða þeim upp En þar sem við her á heimilinu höfum fengið stranglegt bann við því að hlusta á það, sem talað er í símann, lögðum við ekki eyrun að þessu, heldur snerum okkur að hinum girnilega fiski, sem lá á diskxmum fyrir framan okkur og var þegar orðinn kald- ur. Svo mundum við eftir ballinu, sem halda_ "Vangadans" ekki nema það þó, hvað átti þessi unga saklausa dóttir okkar að gera f þessari spillingu, sem þarna fór fram í sjálfum skólanum. Nei, hún færi ekki á þetta ball, hún ekki nema 15 ára gömul að dansa vangadans við einhvern ruddalegan bítlastrák. En þá kom hún með þá imdurfurðulegu tilkynningu, að ekki færi neinn að vanga hana. Við tókum ekki mikið mark á því eftir að hafa heyrt hana segja vinkommum, hvað þessi og hinn hefðu verið hrifnir af henni. Nei, það yrði ekki farið á fleiri böll í þessum skóla( sem heldur vemdarvæng yfir spillingu barnanna okkar. Já, hún mátti grenja okkar vegna, um þetta yrði ekki meira rætt nema á foreldra- fundi, sem haldinn yrði í næstu viku. 13 - Þórdís Guðmundsdóttir.

x

Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar
https://timarit.is/publication/1858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.