Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Side 3

Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Side 3
TIMARIT UM FLUGMAL REYKJAVÍK - DESEMBER 1956 2.—3. TÖLUBLAÐ - 7. ARGANGUR Flu^málafélaé Islands samnefnari allra ákn^aafla um flu^mál. — Er flugmálastjóri og ílugmála- stjórn Jslands í raun og veru til lnisa í Jressum bragga? Ertu nú viss um það? spyr ég bílstjórann alveg undrandi. — Já, það stóð þarna á gula skiltinu við veginn. Og svo er hann hérna þessi með skeggið, ég á ekki við Agnar Koloed-Hansen, heldur lrinn, ég hef keyrt hann, segir bíl- stjórinn sannfærður. —■ Jæja, þá hlýtur Jjetta að vera rétt. Það er grenjandi rok úti og stormurinn vælir með hverjum gluggapósti. Mér er vísað inn til flugmálastjóra, Agnars Kofoed- Hansen. — Þetta eru orðin heldur gamal- dags húsakynni, segi ég um leið og við lieilsumst. — Já, það eru þau fremur. Þessir braggar eru byggðir til þess að standa í 4 ár, en lrafa nú bráðum staðið í 17 ár. Það næðir í gegnum þetta eins og grindahjall, þegar vindurinn stendur af þessari átt. En fé flugmálastjórnarinnar er fyrst og fremst varið til öryggis- þjónustunnar, eins og stendur. Það verður um fram allt að hugsa um að bjarga mannslífum. Það er ekki bráðliættulegt að vera hér, þótt maður þyrfti helzt að vefja sig kattarskinni til Jress að fá ekki gigt, segir ílugmálatjóri og brosir góð- látlega í rauðbirkið skeggið. — Það var nú annars ekki erind- ið að ræða um húsakynni flugmála- stjórnarinnar, lreldur að spyrjast íyrir um tildrögin að stofnun Flug- málafélags íslands. — Forsaga þess máls er að sönnu ekki mjög löng, en nokkur þó. — Fyrsta flugfélagið, sem stofnað er lrér á landi, var gamla Flugfélag íslands og var stofnað 1919. Kap- teinn Faber flaug þá hér eitt sum- ar. Þar með var sú saga á enda. Næsta Flugfélag íslands, sem stofn- að er, átti flugvélarnar Súluna, Veiðibjölluna og Álftina og hóf sögu sína 1928 og lifði til 1931. Þá lognaðist Jrað út af. Og Jrað þurfti hvorki rneira né minna en heila heimskreppu til þess að drepa það. Það var líka í höndum ein- hvers ötulasta og áhugasamasta manns um flugmál, sem ég hef kynnzt, Alexanders Jóhannessonar. En kreppan lét ekki að sér hæða. Hér á landi var þá almenn vesöld og enga peninga hægt að fá til neins og ekkert hægt að gera. Það Agnar Kofoed-Hansen. hafði bókstaflega enginn efni á því að fljúga. Og því fór sem fór. — En svo var Flugmálafélagið stofnað 1936? — Já. En þá var útlitið lítt glæsi- legt. Hér voru þá tveir menn með flugprófi, en hvorugur vann að flugmálum, J)eir Sigurður Jónsson og Björn Eiríksson. Menn höfðu líka litla löngun til þess að leggja út í nýtt gjaldþrot. Enda höfðu flestir talið mig vitlausan, þegar ég lagði út í flugnám. Tveir höfðu Jró trú á Jrví, Jjað voru Jteir Alex- FLUG - 1

x

Flug : tímarit um flugmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.