Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Qupperneq 4
ander Jóhannesson og Jón Eyþórs-
son.
Mér hafði þá komið til hugar
að leið væri til þess að glæða áhuga
íyrir fluginu hér á landi með því
að stofna félag, þar sem safnað
væri saman sem flestum áhrifa-
mönnum þjóðfélagsins af öllum
stjórnmálaflokkum og í öllum
áhrifastöðum. Þannig væri fundin
leið til þessara manna til þess að
glæða hjá þeim áhuga fyrir mál-
efninu. Og án áhugans var von-
laust að koma nokkru í kring. Flug-
málafélagið var því lífsnauðsyn
fyrir framgang flugmálanna á ís-
landi.
— Og þetta tókst?
— Já, fyrsta félagaskráin sýnir
þetta greinilega. Félagið starfaði
líka af miklum móði til þess að
byrja með. Flugmálafélagið fékk
fasta bækistöð í Bankastræti 11 og
þar lágu frammi ýmis rit um flug-
mál hvaðanæfa úr heiminum. Um
svipað leyti eru svo stofnuð bæði
Svifflugfélagið og Flugmodelfélag-
ið. Og þar með var kominn vísir-
inn að hinu raunhæfa starfi. Með-
limir beggja þessara félaga urðu
jafnframt sjálfkrafa meðlimir í
Flugmálafélaginu.
— Var þetta að einhverju leyti
að erlendri fyrirmynd?
— Já, víst var það. Alls staðar
erlendis, þar sem flugmálin eru
komin eitthvað áleiðis, eru slík
félög starfandi. Það er hlutverk
ilugmálafélaganna að vera sam-
nefnari allra áhugaafla um flug.
Það, sem við nefnum áhugaöfl i
þessu sambandi, eru allir jreir, sem
vinna að einhverju leyti að fram-
gangi flugmála án þess að þiggja
fyrir það laun. Víða erlendis eru
þetta margstyrkt félög, rík af fé
og hafa mikla og víðfeðma starf-
semi með höndum.
Það er sem sagt ekki aðeins hlut-
verk flugmálafélaganna að hafa
innan sinna vébanda ýmsa áhrifa-
menn. Hlutverk þeirra er ekki
hvað sízt að hlúa að nýgræðingn-
um á sviði flugsins, æskunni. Því
að þróunin myndi fljótt stöðvast,
ef ungum og áhugasömum mönn-
um væri ekki sinnt. Þess vegna er
nauðsynlegt að búa ungum drengj-
Fyrsta stjórn F.M.Í. Frá vinstri: Valgeir Björnsson, Agnar Kofoed-Hansen, Jón
Eyþnrsson og Sigurður Jónasson. Á myndina vantar Pálma heitinn Hannesson.
S t o í ii í é I a ó a r
F.M.Í.
Hér fara á eftir nöfn þeirra sem
þegar hafa innritast og ennfremur
er ætlast til að nýir félagar innriti
nöfn sín í þessa bók, þeir er teljast
stofnfélagar.
1. Sigurður Einarsson,
Bergstaðastræti 50.
2. Valtýr Stefánsson,
Laufásvegi 69.
3. Guðbrandur Magnússon,
Ásvallagötu 52.
4. Agnar E. Kofoed-Hansen,
Grettisgötu 16.
5. Magnús Stefánsson.
6. Eysteinn Jónsson,
Ásvallagötu 67.
7. Jón Eyþórsson.
8. Sigurður Jónasson,
Amtmannsstíg 4.
9. Skúli Skúlason,
Bergstaðastræti 9 A.
10. Bergsveinn Ólafsson,
Hávallagötu 47.
11. Helgi Sigurðsson,
Ásvallagötu 17.
12. B. G. Gíslason, Hávalla-
götu 4 (c/o G. Gíslason).
13. Gunnar Jónasson,
c/o Stálhúsgögn.
14. Björn Olsen,
c/o Stálhúsgögn.
15. Björn Eiríksson,
c/o Chromhúðun.
16. Pétur Ó. Johnson,
Eiríksgötu 15.
17. G. J. Fossberg,
Miðstræti 10.
18. Helgi Eyjólfsson.
19. Níels Níelsson,
Nýlendugötu 17.
20. Vigfús Einarsson,
Ejólugötu 5.
21. Sigurður Jónsson.
Leifsgötu 30.
22. Eyjólfur Eiríksson,
Bergþórugötu.
2 - FLUG