Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Qupperneq 13

Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Qupperneq 13
skipulag höfðu með hönclum í síð- asta stríði og gerðu hann að yfir- manni hverrar starfsdeildarinnar á fætur annarri. Norstad er fæddur í Minneapolis 24. marz árið 1907. Hann er af norskum ættum. Raunar telja Norðmenn hann einn af frægustu sonum hinna mörgu milljóna norskættaðra Ameríkana, og hann á rnarga ættmenn í og við Stavang- er í Noregi. Faðir hans var lút- herskur prestur, sem gjarna vildi að Lauris sonur hans fetaði í fót- spor sín, þótt hann hreyfði ekki mótmælum þegar hann valdi hinn fræga herskóla West Point í stað prestaskólans. Norstad útskrifað- ist úr skólanum í júní 1930 og var gerður að undirliðsforingja í ridd- araliðinu. 1 september sama ár hóf hann flugnám í Match Field x Kaliforníu, og árið eftir lauk hann prófi í San Antonio og gekk í flug- herinn. Þegar þér gerið það, hefir það þýðingu. í júlí 1933 tók hann við yfir- stjóin 18. flugdeildarinnar á Ha- waii. Árið 1950 var honum falin yfirumsjón með sérstökum samæf- ingum flughers og landhers, sem áttu að leiða í ljós tækni og hæfni flughersins við aðflutning birgða. Einu sinni, þegar æfing stóð yfir, var Norstad staddur á flugvelli í suðurríkjunum í brennandi sól- skininu, þegar til hans gekk yfir- liðþjálfi, heilsaði honum á her- mannavísu og sagði: — Ég veit ekki, hvort hershöfð- inginn man eftir mér, en ég var í þjónustu yðar á Hawaii fyrir mörg- um árum. Síðan sagði liann til nafns síns. — Norstad lxershöfðingi tók í höndina á honum. Víst man ég eft- ir þér, sagði hann. — Vitið þér það, sagði yfirlið- þjálfinn, að ég geng ennþá með vegabréf, sem þér rituðuð á, þeg- ar við vorum á Hawaii. Ég hef geymt það sem minjagrip. Hei'shöfðinginn varð dálítið vandræðalegur, en sagði svo: — Það var gaman að heyra. Jæja, ég skrifa nú ekki á jafnmörg vegabréf upp á síðkastið. — Nei, sagði yfirliðþjálfinn hugsi, en þegar þér gerið það, hef- ur það meiri þýðingu. Norstad hershöfdingi kannar lið sitt. Eftir þjónustutímann á Hawaii gekk Norstad hina venjulegu braut atvinnuhermannsins, og í nóvem- ber 1940 var hann skipaður aðstoð- aryfirmaður könnunardeildar hers- ins í aðalbækistöðvunum á Lang- ley Field í Virginíu. Hann var nú nýlega orðinn major. Eftir það fór gengi hans ört vaxandi. 1 febrúar 1942 var hann orðinn undir-ofursti og var skipaður í ráðgjafanefnd yfirmanns bandaríska flughersins í Washington, sem þá var H. H. Arnold. I ágúst sama ár var hann send- ur til Alsír með 12. flugdeildinni, sem tók þátt í innrásinni í Afríku. Hann var aðstoðaryfirmaður deild- arinnar, en með honum voru eng- ir minni menn en James Doolittle, sem var yfirmaður alls heraflans, og Hoyt Vandenberg, sem var for- maður herforingjaráðsins á staðn- um. Þegar innrásin í Afríku hafði verið leidd til farsælla lykta, var Norstad gerður yfirmaður flug- herja bandamanna við Miðjaiðar- haf, sem höfðu bækistöðvar í Alsír. Tveimur mánuðum síðar voru þær fluttar til Caserta á Ítalíu. Norstad var þá orðinn hershöfðingi.

x

Flug : tímarit um flugmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.