Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Side 14
Skipulagði árásina á Hiroshima.
í ágúst 1944 kom hann aftur til
Washington og var gerður yfir-
maður herforingjaráðs 20. flug-
deildarinnar. Skipulagði hann loft-
árásirnar á Japan, m. a. kjarnorku-
sprengjuárásirnar á Hiroshima og
Nagasaki. í júní 1946 gerði Eisen-
hower hershöfðingi hann að yfir-
manni þeirrar deildar hermála-
ráðuneytisins, sem fór með áætlan-
ir og framkvæmdir. í október 1947
varð Norstad aðstoðaryfirmaður
bandaríska flughersins og þremur
árum síðar var hann sendur til
Evrópu.
Norstaad er 4-stjörnu hershöfð-
ingi. Aðra stjörnuna fékk hann 4.
júní 1945, þá þriðju 1. okt. 1947 og
þá fjórðu 5. júlí 1952.
Hermaðurinn Norstad er orðinn
vel þekktur vegna margra afreka.
En borgarinn Norstad, heima hjá
sér eða á golfvellinum, er minna
þekktur. Heima reykir hann pípu
sína látlaust, skellir fótunum upp
á borð og „slappar af“. Hann er lík-
lega eini maðurinn hjá SHAPE,
sem gengið hefir inn á skrifstofu
Gruenthers hershöfðingja og strítt
honum með því, að hann „slappi
aldrei af“. Norstad fer á fætur kl.
6:30 hvern morgun ársins, og ná-
grannarnir í Fort Myer voru vanir
að stilla klukkur sínar eftir hon-
um, þegar hann steig upp í bílinn
og fór til vinnu.
Gaman að fiskveiðum.
Norstad hefur mjög gaman af
fiskiveiðum og dýraveiðum og hef-
ur fengið margs konar viðurkenn-
ingu í báðum greinum. Hvenær
sem færi gefst, eftir að hann hefur
lokið skyldum sínum í Osló, flýg-
ur hann norður til Bardufoss,
nyrzta flugvallar NATO um 500
km. fyrir norðan heimskautsbaug.
Þar er norskur vinur hans, Hans
Lund ofursti, og þeir fara saman á
veiðar á stöðuvatni langt inni í
landi, þar sem lxtið er um manna-
ferðir. Þar hvíla þeir sig og veiða
silung. Norstad hefir gaman af
léttri klassískri tónlist og kvik-
myndurn. Uppáhaldsleikarar hans
eru Cary Grant, Gary Cooper og
James Stewart. Tveir hinir síðai-
nefndu eru persónulegir vinir hans
og heimsækja hann stundum í
París.
Kona Norstads er fædd í Hono-
lulu, en fjölskylda hennar býr í
Kaliforníu. Einkadóttir þeirra,
Kristin, 17 ára gömul, hefir geng-
ið í skóla bæði í Svisslandi og
Frakklandi, en í haust er leið fór
hún til náms í Bandaríkjunum. Á
heimilinu eru líka Muggsy, kjöltu-
rakki fjölskyldunnar, þýzkur kokk-
ur, frönsk þjónustustúlka og
fianskur húsvörður. Þetta þjón-
ustulið er þeim fengið af NATO.
Regla ríkir í lífi hans.
Norstad hefur heimild til að hafa
mun stærra þjónustulið, en hann
kærir sig ekki um það.. Hann hef-
ur gaman af að vinna heima við,
gera við áhöldin og lagfæra arin-
inn. Þegar fjölskyldan bregður sér
út fyrir borgina um helgar, er hann
jaínan sjálfur við stýrið.
Bæði sem heimaður og lreimils-
faðir er Norstad öruggur í fram-
göngu og ávallt rólegur. Honum
er ekki um langar ráðstefnur, en
lætur aði'a um að safna nauðsynleg-
um upplýsingum. Þegar hann hef-
ir fengið þær, tekur hann sjálfur
ákvarðanir. Skrifborð hans er ó-
venjulega snyrtilegt. Yfirleitt rík-
ir frábær regla í öllu lífi hans, og
hann hefur svipuð áhrif á undir-
menn sína, sem vinna í hinum
rólega, örugga, skyldurækna anda
Norstads hershöfðingja, fyrsta flug-
mannsins, sem hefur á hendi stjórn
alþjóðahers.
KYNBOMBA eða KADILJÁKUR
Á flugvellinum í Thule í Græn-
landi var presturinn að halda ræðu
yfir flugmönnum bandaríska flug-
hersins. Hann talaði um það,
hvernig við gætum bætt okkur
sjálfa með því að bæta hugsanir
okkar. Eftir að hafa bent á, hvernig
mikilmenni eins og Lincoln, Edi-
son og Eisenhower hefðu unnið sig
áfram með því að hugsa um það,
sem þeir ætluðu sér að verða, dró
presturinn þessa ályktun: „Munið,
drengir, það sem þið eruð, ákvarð-
ast af því, hvað þið hugsið öllum
stundum.“
Félagi minn einn sneri sér að
mér og sagði:
„Ef þetta er satt, þá er ég annað-
hvort kynbomba eða Kadiljákur."
Clara Booth Luce, fyrrum ambassador Bandarikjanna d Ítalíu ásamt hershöfð-
ingjunum Norstad og Gruenther.
12 - FLUG