Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Side 17
félagsins, en þær gefa glögga
hugmynd um framsýni þeirra
manna, sem voru brautryðjend-
ur á sviði íslenzkra flugmála.
I dag stöndum við Islending-
ar á vegamótum í flugmálum
okkar. Flugflotinn er gamall og
úr sér genginn. Það verður að
hefjast handa, ef við eigum ekki
að dragast aftur úr og það svo
að við getum ekki orðið á neinn
hátt samkeppnisfærir á heims-
mælikvarða. Hingað til höfum
við sýnt mikinn dugnað og flug-
vélar okkar hafa setzt á fjölda
flugvalla um mikinn hluta
heimsins. Engum blandast hug-
ur um það að flugmenn okkar
eru einhverjir hinir beztu í
heimi. En hvað stoðar það cf
tækin, sem þeir stjórna eru úr
sér gengin og langt á eftir kröfu
tímans. Þessar hugleiðingar
verða til á 20 ára afmæli Flug-
málafélags Islands, félagsins sem
er samtök allra þeirra, sem
áhuga hafa fyrir framgangi, og
eflingu flugsins.
I lok þessa rabbs vil ég færa
öllum lesendum Flugs beztu
kveðjur með ósk um að þeir sem
vilja láta flugmál okkar sig ein-
hverju skipta sendi blaðinu
greinar og ábendingar, svo og
myndir er þeir hafa með hönd-
um. Allt slíkt er þakksamlega
þegið og verður birt gegn venju-
legri greiðslu. Gerið atliuga-
semdir ykkar til Flugs. Það er
vettvangur þeirra sem að flug-
málum vilja vinna. Ritstj.
--------------------------------^
Flugmálafélag íslands hefir
fengið húsnæði í félagi við
Ferðafélag íslands í Túngötu 5.
Þar verður fastur samastaður
félagsins, afgreiðsla og ritstjórn
„Flugs“. Síminn er 82533.
V________________________________
Flugskátarnir skoða eina af flugvélum Flugfélags íslands.
Halldór Arnórsson sveitarforingi lengst til hægri.
Flugskátasveit.
Þeir munu ekki vera margir, sem
hafa heyrt getið um svonefnda
flugskátasveit. Allir hafa heyrt um
flugbjörgunarsveit, en flugskáta-
sveit er nokkuð annað.
Nýlega gafst „Flugi“ færi á að
hitta Halldór Arnórsson sveitar-
foringja fyrir flugskátasveitinni.
Eftir að hafa rabbað við hann
drykklanga stund fengum við eft-
FLUG - 15