Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Page 19

Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Page 19
Vetrarnóttá Keflavíkurflugvelli. Heimsókn tii flughafnarinnar, þar sem sólarhringnum er snúið við. að er vetrarkvöld í desember. Eins og lengst af hefir verið á þessum umhleypingasama vetri, stendur vindurinn ekki af sömu átt nema fáar klukkustundir í senn. Þessa stundina er norðlægur eða norðvestlægur hríðarhraglandi af og til og nokkurt frost. Þetta er skömmu fyrir miðnætti. Aðal- athafnatími farþegaflugsins fer brátt að hefjast. En nóttin er sá tími, sem farþegaflugvélarnar hafa viðkomutíma sinn á Keflavíkur- flugvelli á leið sinni frá Evrópu vestur um haf til Ameríku. Á veðurstofunni. Ég er í fylgd með Sigfúsi Guð- mundsyni framkvæmdastjóra TWA hér á landi, en hann er jafnframt formaður Flugmála- félags Islands. Að tilvísan hans held ég inn á veðurstofuna. Þar er unnið eitt þýðingarmesta starf sem um getur í þágu flugsins. Án veðurþjónustu væri öryggi nú- tímaflugs næsta lítið. Ég hitti að máli Knut Knudsen, þar sem hann bograr yfir veður- kortum sínum, en hann og Bragi Jónsson eru íslenzku veðurfræðing- arnir, sem þarna vinna, en auk þeirra vinna þarna veðurfræðing- ar frá bandaríska hernum. Ég tek Knút nú tali og spyr um eitt og annað viðkomandi veðurþjónust- unni. Fyrir framan sig hefir hann mikið og stórt kort af norðurhveli jarðar. — Hvað gerið þið með kort þetta? — Þetta er veðurkort. Á það fær- um við inn veðurathuganir sem s, Á Keflavíkurflugvelli eru vindar og raki háloftanna mæld- ir. Hin stóru miililandaflug- virki lenda í svartnætti vetrar- ins meðan ratsjármaðurinn leiðbeinir þeim á land ofan. Heimsfrægir farþegar sötra illa til búið kaffisull í lélegum húsakynnum. Flugkappinn Lindberg staldrar við og ung- verskir flóttamenn segja frá hörmungum frelsisstríðsins. ____________________________________•> gerðar eru á miklum fjölda staða um allt norðurhvelið, en veðurat- hugunarstöðvarnar skipta þúsund- um. Veðurathuganirnar fáum við á þriggja tíma fresti alls staðar að. — Gerið þið þá spár á þriggja tíma fresti? — Nei ekki er það nú. Við ger- um aðalspár á 24 tíma fresti og gilda þær einn sólarhring fram í tímann. Eftir þessari aðalspá gera svo flugfélögin áætlanir sínar. Einu sinni á dag gerum við svo vind- spár bæði austur og vestur frá landinu. — En hvaða þjónustu veitið þið svo einstökum vélum, sem hingað koma og héðan fara. — Þegar flugvél kemur gefurn við henni veðrið eins og það er á flugvellinum, og sé hún á vestur- leið, sem oftast er, þá gefum við henni veðurspána vestur á bóginn og spá yfir vindana á þeirri leið. — Já, auðvitað gera vindarnir mikið strik í reikninginn? — Þeir skipta mjög miklu máli. Þeir geta hæglega tafið flugvélina um sem svarar i/3 af flugtíma, ef Ein af flugvélum PAA á Keflavíkurflugvelli. FLUG - 17

x

Flug : tímarit um flugmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.