Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Blaðsíða 21
leiðina. Flúgi hún hins vegar beint,
lendir hún í suðurjaðri lægðarinn-
ar, þar sem vindarnir blása í aust-
ur og vinna þannig á móti vél-
inni.
Þetta er megin skýringin á því
hvers vegna flugvélarnar taka á sig
stóran krók norður á ísland á leið
sinni til Ameríku. Munum við
koma að því nánar síðar, en kveðj-
um nú Knút og höldum á ný fram
í farþegaafgreiðsluna.
Heimsókn í flugturninn.
Þar er konrinn Pétur Guðmunds-
son flugvallarstjóri. Hefir hann
góðfúslega orðið við þeim tilmæl-
um að fylgja mér út í flugturn og
sýna mér þegar ílugvél er „tekin
inn“, sem kallað er. Við lröldum
nú út í bifreið hans, en áður hef-
ur hann fengið leyfi flugumferð-
arstjórans í turninum til þess að
aka eftir flugbrautunum þangað
út. Pétur tekur fána fram úr lest
bifreiðarinnar og setur á höggvar-
ann að aftan. Þessi fáni er mislit-
ur, en án hans er ekki leyfilegt að
aka eftir flugbrautunum. Á leið-
inni röbbum við lítið eitt um flug-
ið og um völlinn almennt. Pétur
segir mér að PAA, TWA og BOAC
hafi sína föstu fulltrúa hér í Kefla-
vík. Alla borgaralega þjónustu
annast íslendingar á vellinum, en
það sem hernum kemur við sjá
hermenn um.
En brátt erum við komnir út að
flugturninum. Við höldum upp
marga og krókótta stiga, en kom-
um síðast upp í glerhöll eina
mikla, þar sem þó er heldur
skuggalegt umhorfs, því ljós eru
öll dauf og aðeins á mælitækjum.
Við hittum fyrir Guðmund Matt-
híasson, sem hefir á hendi vaktar-
formennsku í turinum, því yfir-
flugumferðarstjórinn, Bogi Þor-
steinsson, er í fríi.
Við skulum nú fylgjast með einni
flugvél, sem er að koma inn til
lendingar. Hún er á leið frá Lon-
don. Flugumíerðastjórnin í Rvík
hefur gefið henni leyfi til þess
að fljúga að stefnuvitanum í
Grindavík. Flugvélin hefur nú sam-
band við turninn. Henni er gefið
upp að braut 03 sé í notkun, vind-
ur sé norðan 10 hnútar (svarar til
2—3 vindstiga). Vélin er nú við
Grindavík og segist hafa séð vit-
ann. Flugstjórinn er nú spurður
að því hvort hann vilji fljúga
beint inn á brautina og þyggur
hann það. Honum er nú gefin upp
staða hæðarmælis, vindhraði, braut
í notkun og brautarskilyrði, það
er að segja hemlunarskilyrðin á
brautinni, því það er vetur og ís-
ing. Braut 03 hefir verið sandbor-
in og eru hemlunarskilyrðin á
henni því bezt. Við sjáum hvar
hin stóra flugvél kemur svífandi
inn á enda brautarinnar, deplandi
ljósunr á vængbroddum og stéli.
Lendingin tekst vel og vélin held-
ur heim að flugstöðinni undir leið-
sögn manna, sem fara á undan
henni með ljósum.
Við lendingarratsjána.
Skammt frá flugturninum er
dálítill skúr á hjólum, ekki merki-
leg bygging að manni fynnst.
Þarna er þó komið fyrir nákvæm-
ustu ratsjártækjum, sem til eru hér
á landi, en þetta er lendingarrat-
sjá Keflavíkurflugvallar. Við höld-
um þangað út. Þar hittum við fyr-
ir tvo Bandaríkjamenn. Þröngt er
inni hjá þeim, þar sem þeir sitja
í hálfgerðu myrkri og horfa á rat-
sjárskífurnar, sem eru tvær fyrir
framan hvorn þeirra. Önnur skíl'-
Þannig litur
Super G.
Constellation-
flugvél TWA
út að innan.