Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Blaðsíða 22
an sýnir hæð, en hin hliðarstefnu
flugvélarinnar. Veðrið hefir versn-
að á meðan við stöldruðum við í
turninum og næsta flugvél, sem
kemur inn óskar eftir því að vera
tekin niður með ratsjá. Hæðar-
skífan hefir 10 mílna sjónvídd, en
stefnuskífan 30 mílna sjónvídd.
Flugvélin er nú komin í sjónvídd
stefnuskífunnar. Annar Banda-
ríkjamannanna setzt niður við skíf-
urnar sínar og gefur flugstjóra
flugvélarinnar upp á 5 sekúnda
fresti hvar hann sé staddur. Loks
sést flugvélin einnig á hæðarskíf-
unni. Ratsjármaðurinn talar í sí-
fellu og við sjáum hvernig litli
ljósi depillinn fylgir línunni á
skífunni. Ratsjáin getur leið-
beint flugvélinni allt þar til hún
á eftir örfáa metra til lendingar.
Með hjálp þessa undratækis er
flugvélin sezt heilu og höldnu.
Tekið á móti farþegaflugvél.
Við höldum á ný inn í hótel- og
flugstöðvarbygginguna á Keflavík-
urflugvelli. Við fáum okkur hress-
ingu ,því það er komin nótt. Þessu
næst fylgjum við Sigfúsi Guð-
mundssyni, þar sem hann er að
taka á móti einni af TWA flug-
vélunum. Hún er á leiðinni frá
París til New York. Þessi flugvél
er mjög íullkomin að öllum bún-
aði og af gerðinni Super-G Con-
stellation. Stórum farþegabíl er
ekið að vélinni þegar hún hefir
numið staðar á stæðinu og mótor-
arnir eru þagnaðir. Farþegarnir
ganga út, upp í bifreiðina og þeirn
er ekið heim á hótel. Síðan hefst
afgreiðsla vélarinnar. Starfslið
Kristbergs Guðjónssonar deildar-
stjóra við flugvélaafgreiðsluna tek-
ur til óspilltra málanna. Það er
margt vikið sem vinna þarf áður
en flugvélin heldur af stað á ný.
Það þarf að fylla hana með ben-
zíni, hreinsa af henni ísingu og
ganga frá einu og öðru, sem laga
þarf. Vart hefir orðið lítilsháttar
bilunar, að því er talið er, í einum
af fjórum hreyflum vélarinnar.
Þetta þarf að gera við. TWA hefir
sérstakan viðgerðarmann á Kefla-
víkurflugvelli, sem klæðist nú
vinnufötum sínum og lítur á
skemmdina. Eftir allnákvæma at-
hugun kemur í ljós að stykki það
í mótornum, sem hefir bilað er
ekki til hér á landi. Það verður því
að biðja um aðra flugvél frá París
og á hún að koma eftir 6 klukku-
stundir. Farþegarnir fara að sofa
og bíða næsta dags og nýrrar vél-
ar. Það er nóg að gera hjá starfs-
mönnum TWA. Loks fæ ég þó
Myndin sýnir
nýja tegund
flugvélar, sem
brátt verður
tekin i notkun
af TWA
á flugleiðinni
um Island
yfir Atlantshaf.
Vélin er Lock-
head 1649 Super
Constellation.
Hún hefir mesta
vcengjahaf
nokkurrar flug-
vélar, 150 fet
(45,7 m)
Vélin getur
ftogið 10.000 km
án þess að
endurfylla
geyma sina.
tækifæri til þess að tala nokkra
stund við Sigfús þegar komið er
undir morgun. Áður hafði ég feng-
ið að skoða hina glæsilegu flug-
vél hátt og lágt, þar sem hæginda-
stólarnir eru eins og þeir gerast
þægilegastir í stofum, þar eru sér-
stakir svefnklefar, stórt eldhús og
margt fleira. Þægindin og glæsi-
bragurinn er svo að vart er hægt
að hugsa sér að slíkt sé sett í flug-
vél. Mér verður ósjálfrátt hugsað
til okkar ágætu Douglasa og Cata-
línavéla og samanburðurinn verð-
ur eins og á Gamla-Ford og nýjurn
Kadilják.
Sigfús segir mér að flugvélin
taki alls 54 farþega, en að þessu
sinni voru 34 farþegar með. Flug-
stjórinn heitir Ganty. Flugtíminn
frá París var 4 klst. og 45 mín.
Áhöfn var 11 manns þ. e. flug-
stjóri, 3 flugmenn, leiðsögumaður,
loftskeytamaður, 2 vélstjórar, 2
þjónar og 1 þerna. Vélin notaði á
leiðinni 24 þús. lítra af benzíni.
Má af þessu sjá að það er mikill
sparnaður fyrir vélina að koma
hér, þar sem hún mun þurfa um
annað eins benzínmagn héðan og
til New York og í stað þess að taka
eldsneyti, sem nægir henni alla
leið getur hún tekið samsvarandi
meiri flutning. Vélin greiðir hér
75 dollara fyrir þá þjónustu, sem
henni er veitt við afgreiðslu. Hún
greiðir 27 dollara í lendingargjald,
auk þess sem hún greiðir hér ben-
zín og benzínskatt.
Lélegur viðurgerningur
farþega.
Á meðan á afgreiðslu stendur fá
farþegarnir þá hressingu, sem hér
er um að ræða, en viðurgerningur
er allur mjög lélegur hér ef borið
er saman við ýmsar erlendar flug-
hafnir. Nægir þar að nefna sam-
bærilega flugstöð í Shannon á
írlandi.
Hér fá farþegarnir eitthvað mat-
Framh. á bls. 36.