Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Page 23
Braiitryðjanclíiin ELLEHAMMER^
faðir danskrar fluglistar, hugvits-
maðurinn sem flaug fyrstur manna
í Evrópu, flaug þyrilflugu fyrstur
manna og fann upp loftkælda
stjörnuhreyfilinn.
__________________________________J
Einhvernveginn hefur sú skoðun
fengið byr í seglin, að frændur vor-
ir Danir séu lítil flugþjóð. Hvernig
sem sú skoðun hefur orðið til, þá
er hún alröng og hið mesta öfug-
mæli. Vera má, að hin tíðu óhöpp,
sem danski flugherinn hefur orðið
fyrir á undanförnum árum, eigi
nokkra sök á þessu. Hitt er sanni
nær, að Danir eru einmitt ágæt
flugþjóð, þeir urðu manna fyrstir
til að skilja þýðingu flugsins í
frumbernsku þess, í Danmörku
stóð vagga fluglistarinnar í Evrópu,
og Danir stofnsettu fyrsta flugfélag
í heimi, Det Danske Luftfartsel-
skab, árið 1918, en það var undan-
fari hins volduga flugfélags SAS
í dag.
Á sviði tækni og verklegra
mennta hafa Danir um langt skeið
skarað fram úr, og reisuleg mann-
virki víða um heim bera hugviti
þeirra og snilli vitni. Það er því
ekkert undarlegt, að einn af fyrstu
brautryðjendum fluglistarinnar,
Ellehammer, skuli hafa fæðzt með
dönsku þjóðinni. Þótt nafn Elle-
hammers sé ekki eins þekkt og efni
standa til og honum bæri að verð-
leikum, þá er hann eigi að síður
einhver merkasti og snjallasti
brautryðjandi, sem flugið hefur
átt. Hann skipar sér á bekk með
mönnum eins og Wright-bræðrum,
Santos Dumont og þeirra jafningj-
um, sem allir lögðu sinn stóra skerf
til að ryðja hina grýttu braut og
fleygja fluginu fram á leið til þess,
sem það er orðið nú í dag. í haust,
sem leið, minntust Danir Elleham-
mers á veglegan hátt í tilefni þess,
að liðin voru 50 ár frá fyrsta flugi
hans 12. september árið 1906. En
það flug markaði tímamót í flug-
sögunni, vegna þess að þetta var
fyrsta flug, sem fram fór í Evrópu.
Að vísu fékkst flugið ekki staðfest,
Jrar eð Jjað fór ekki fram undir
eftirliti alþjóðaflugsamtakanna
(F.A.I.), en Danir áttu á þeim ár-
um ekkert flugmálafélag og voru
því ekki aðilar að samtökunum.
Heiðurinn af fyrsta fluginu í
Evrópu féll hins vegar í skaut
Frakkans Santos Dumont, sem
tókst að lyfta sér til flugs 12. nóv.
sama ár, og þá undir eftirliti
F.A.I. Flug Ellehammers verður
þó ekki véfengt, að Jrví voru tvö
vitni auk hans, og Ijósmynd var
tekin af þessu merka flugi, sem
tekur af öll tvímæli.
En Elleliammer var rneira en
eingöngu flugmaður, hann var ekki
síður frábær hugvitsmaður og
smiður. Hlutur hans á því sviði
verður þeim mun stærri og glæsi-
legri, þegar þess er gætt, að hann
Þannig leit fyrsti hreyfill Ellehammers
út árið 1903—1904, — fyrsti loftkœldi
stjörnuhreyfillinn i heiminum.
Ellehammer
í selskinns-flugbuningi sínum.
ruddi mörgum tæknilegum nýj-
ungum braut og gerði þær ásamt
öðrum að lyftistöng fyrir flugið.
Þannig fann Ellehammer upp og
smíðaði fyrsta loftkælda stjörnu-
hreyfilinn, sem sögur fara af, og
til að ná meiri orku úr honum
endurbætti hann stjörnuhreyfilinn
síðar með því að liafa á honum
tvær stokkaraðir. Langflestir flug-
vélahreyflar síðari ára hafa verið
af þessari gerð, og ber ekki sízt að
þakka það Ellehammer.
Þá smíðaði Ellehammer einnig
fyrstu Jjyrililuguna, sem gat lyft
sér, og hann sá fyrir öld þrýstilofts-
hreyfilsins og fékkst við tilraunir
með slíka hreyfla.
Jacob Cnristian Ellehammer
fæddist árið 1871 á Suður-Jótlandi.
Á unga aldri hóf hann að leika sér
með flugdreka, sem hann smíðaði
sjálfur úr gömlum seglum, er faðir
hans gaf honum, en hann var verk-
FLUG - 21