Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Síða 25
12-strokka stjörnuhreyfil árið
1916, og skilaði sá 160 hestöflum.
Þess má geta í þessu sambandi, að
stærstu stjörnuhreyflar í notkun í
dag eru einmitt með fjórum
strokkaröðum, 28 strokkum og
skila rúmlega 3000 hestöflum.
En ör framþróun flugvélahreyfla
í öðrum löndum, þar sem eytt var
Þyrilfluga Ellehammers lyftir sér frá
jörðu árið 1912, ef til vill i fyrsta
skipti, sem slíkt flug hefur átt sér stað.
Ellehammer áritaði myndina árið 1914.
ógrynni fjár til endurbóta þeirra,
olli því, að Ellehammer lagði nið-
ur frekari tilraunir með hreyfla
sína. Hann sá sem var, að hann
hafði ekki bolmagn til að keppa
við ótakmarkað fjármagn og betri
málma, sem aðrar voklugar þjóðir
höfðu yíir að ráða.
Ekki lagði Ellehammer samt ár-
ar í bát með öllu, því að á þriðja
tug aldarinnar lagði hann drög að
smíði þrýstiloftsknúinnar þyril-
flugu. Smíðaði hann í þessu skyni
líkan af þyrilflugunni, sem knúið
var af þjöppuðu lofti frá ryksugu-
mótor. Þá smíðaði Ellehammer
einnig flugbát á þessum árum, en
engar sögur fara af, hvort hann
flaug nokkurntíma.
Af framansögðu er ljóst, að Elle-
hammer hefur verið starfsmaður
mikill, haft mörg járn í eldinum
og látið sig flest skipta, sem að
fluglistinni laut. Og að einu leyti
hefur hann sennilega staðið keppi-
nautum sínum framar, hann smíð-
aði allt í ffugvélar sínar sjálfur,
hvert tangur og tetur, hreyfla sem
annað.
Og þó gegnir mestri furðu,
að jafnframt hafði Ellehammer
tíma aflögu til að fást við hin
óskyldustu og margvíslegustu við-
fangsefni önnur. Hann smíðaði
shikkvitæki, gufuvélar, bíi með
loftkældum stjörnuhreyfli og
vökvatengi, eins og gerist á nýj-
ustu bílum, auk fjölda annarra
véia og tækja, sem ekki er hægt að
telja upp hér. Alls mun Elie-
hammer hafa öðlast um 400 einka-
leyfi á uppgötvunum sínum.
Á fyrstu tilraunaárum Elle-
hammers var gert góðlátlegt gys
að honum, og menn brostu að
,,kjánalátum“ hans og barnaskap.
En þetta breyttist fljótt, og ekki
liðu ýkja mörg ár, þar til hann
hafði þegið margs konar viður-
kenningu og verið hylltur sem fað-
ir danskrar fluglistar. I endur-
minningum sínum segir Elle-
hammer: „Lífið er einskisvirði
í sjálfu sér, verðmæti þess fara eft-
ir því, hvernig það er notað. Því
meira sem maður gerir, þeim mun
dýrmætara er að lifa.“
Ellehammer lézt 20. maí 1946 á
sjötugasta og fimmta aldursári.
Hann hafði séð marga drauma sína
rætast þessi atorkusami hugvits-
maður, sem lagði svo mikið af
mörkum til framþróunar flugsins
í heiminum. Ef hans hefði ekki
notið við væru flugmálin áreiðan-
lega fátækari um margt í dag.
JNP.
Einn liður í undirbúnngi geimflugs Bandaríkjamanna er að flugmennirnir eru
þjálfaðir með tilliti til þrýstings í „Stratmospherunni“. Efri myndin sýnir flug-
menn vera að fara ofan í þrýstingstækið, en neðri myndin sýnir tvo flugmenn
í geimklæðum.
FLUG - 23