Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Page 26

Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Page 26
Ný laiidbúnaSarflaévél. Transland AG-2 er fyrsta £lug- vélin, sem byggð er sérstaklega til notkunar við landbúnaðarstörf. — Framkvæmdastjóri Transland-fé- lagsins, George S. Wing, á hug- myndina að smíðinni, og í október sl. rættist draumur hans. Landbún- aðarflugvélin hóf sig þá til flugs í Kaliforníu í fyrsta skipti — og reynsluflugið heppnaðist mætavel. Maður sá, er flugvélinni flaug, heitir Robert „Bat“ Masterson, frægur tilraunaflugmaður. Eftir flugið sagði hann, að þessi nýja vél hefði reynzt vel og mætti land- búnaðurinn binda miklar vonir við hana. Var flugvélin lítið hlaðin, vóg 4033 pund, en hófst á loft eftir tæplega -100 feta atrennu. „Ivleif" hún hæglega 1400 fet á mínútu með venjulegum hreyflagangi. „Ég hef llogið 35 gerðurn flugvéla," sagði ,,Bat“, „og engin þeirra jafnast á við þessa hvað snertir útsýni og þægindi þar að lútandi.” Eins og áður segir, er flugvélin hin fyrsta sinnar gerðar, eingöngu ætluð til notkunar við landbúnað- arstörf. Bygging hennar hefur tek- ið fimm ár, og hefur Bandaríkja- stjórn veitt verkinu drjúgan stuðn- ing. Einkum er AG-2 ætluð til þess að vökva akra, dreifa skordýra- eitri, sá ýmsum korntegundum og ráða niðurlögum skógarelda. í vængina eru byggðir geymar, sem taka meira en 250 gallon af vökva — og gildir þá vissulega sama um vatn til vökvunar eða skordýraeitur. Enginn vafi leikur á því, að þessi nýja flugvél mun koma mörgum bóndanum, mörg- um þjóðum í góðar þarfir. Öll er hún úr málmi — og ætlað að þola hin mestu veðrabrigði. Einnig er hún húðuð utan með sérstöku efni, sem ver hana fyrir skemmd- um af hinum ýmsu efnablöndum, sem hún kemur til með að dreifa. Fullhlaðin vegur AG-2 6000 pund og orka hreyfilsins er 450 hestöfl. í venjulegu láréttu flugi er ætlað að hraði hennar fullhlað- innar sé 142 mílur á klst. — og er þá reiknað með að notuð séu 58% af hreyfilsorkunni. — Fullhlaðin „heldur flugvélin hæðinni" á 80 mílna hraða. Translancl AG-2 í reynsluflugi.

x

Flug : tímarit um flugmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.