Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Side 30

Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Side 30
nafninu „Iceland Airways" á er- lendum vettvangi, og hafa milli- landaflugvélar félagsins verið auð- kenndar því nafni auk hins ís- lenzka. Árið 1948 tóku Loftleiðir h.f. upp nafnið „Icelandic Air* lines“, og nota það jöfnum hönd- um erlendis. Hin ensku nöfn ís- lenzku flugfélaganna hafa ætíð þótt nokkuð lík, enda er þeim oft ruglað saman, bæði innanlands og utan. Hafa af þessu hlotizt nokk- ur óþægindi fyrir félögin sjálf og viðskiptavini þeirra. Forráðamenn Flugfélags Islands hafa lengi haft í hyggju að breyta hinu enska nafni félagsins af fram- R : ------------------------------- angreindum ástæðum, en staðið hefur á heyppilegu nýyrði. Nú hef- ur verið ákveðið að breyta til, og mun Flugfélag íslands framvegis hætta að nota „Iceland Airways“, en taka í þess stað upp nafnið „ICELANDAIR“. Auk þess sem hér er um að ræða styttra heiti en hið gamla, sem einnig fer betur í munni, er það í fullu samræmi við venju, sem skapazt hefir í „flug- heiminum", sbr. „SWISSAIR", „FINNAIR" o. s. frv. Hafa ýmsir erlendir aðilar þegar látið í Ijósi ánægju með þessi nafnaskipti, sem þeir telja til mikils hægræðis fyrir alla þá, sem hlut eiga að máli. FLJÓTUR í FÖRUM. Eitt sinn fyrir allmörgum árum flaug sjóflugvél frá Reyðarfirði til Fáskrúðsfjarðar. Með henni var maður, sem ekki hafði komið í slíkan grip áður. Var nú haldið til Fáskrúðsfjarð- ar og lent þar að skammri stundu liðinni. Þegar vélin hefur numið staðar á sjónum, segir hinn fyrrgreindi farþegi: — Hvað er þetta? Af hverju er verið að stanza? Því fer flugvélin ekki á loft? Hafði hann þá aldrei áttað sig á því, að flugvélin hafði hafið sig til flugs og var lent aftur og ferð- in á enda. Orrustuflugvélar benzínfylltar á lofti. Hér sjáum við fjórar orrustuflugvélar bandaríska flughersins af gerðinni Grumann Cougar, þar sem verið er að fylla þær með benzíni á lofti úr Convair Tradewind, sem er fyrsta sjóflugvélin, sem jafnframt er tank-flugvél. Orrustuflug- vélarnar voru fylltar benzíni á minna en fimm mínútum og meðtóku 250 gallon á mínútu. A myndunum sjást, efst til vinstri: Fyrsta orrustuflugvélin „kemst á spenann". Hinar myndirnar sýna hvernig önnur, þriðja og fjórða orrustu- flugvélin grípa „spenann" hver af annarri. 28 - FLUG

x

Flug : tímarit um flugmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.