Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Side 32
lendis, er um um 170 manns. Flug-
áhafnir voru 14 í sumar, en í vet-
ur 12.
Nýtt húsnæði.
í byrjun s. 1. febrúar flutti félag-
ið aðalbækistöðvar sínar úr húsi
Nýja Bíós við Lækjargötu og sett-
ist að í nýjum húskynnum við
Reykjanesbraut 6. Eftir varð þó í
Lækjargötu 2 farmiðasala og upp-
lýsingaskrifstofa. Galli hins nýja
húsnæðis er sá, að það er ekki við
eina helztu umferðaæð miðbæjar-
ins eins og hið fyrra, en kostir
þess þeir, að það er rúmgott og
vistlegt og vinnuskilyrði því hin
beztu sem völ er á.
Erlendis hefir félagið komið sér
upp nýjum skrifstofum á þrem
stöðum og aukið við húsnæði ann-
ars staðar. Nýju skrifstofurnar eru
í Frankfurt am Main, Glasgow og
London. Auk þess hefir félagið
gert fasta samninga á árinu við
nýja aðalumboðsmenn á nokkrum
stöðum t. d. í París.
Ferðaáætlanir og flugleiðir.
Fjórar ferðir voru farnar í viku
fram og aftur milli meginlanda
Evrópu og Ameríku frá síðustu ára-
mótum og fram til 15. maí s.l., en
þá var þessum ferðum fjölgað í 5
og í sumar voru auk þess teknar
upp vikulegar ferðir milli íslands
og meginlands Evrópu. Um miðj-
an októbermánuð síðastliðinn var
ferðunum aftur fækkað niður í
fjórar í viku, og verður svo fram
eftir vetri.
Sú breyting varð á í haust, að
ákveðið var að leggja niður Luxem-
borgarferðir yfir vetrarmánuðina,
en taka upp að nýju Bretlands-
ferðir og koma tvisvar í viku við
á Renfrew-flugvelli, sem er í ná-
munda við Glasgow, en félagið
hefir áður haldið uppi áætlunar-
ferðum til Skotlands, svo sem kunn-
ugt er. Var lent þar í fyrsta skipti
að þessu sinni 20. október síðast-
liðinn og var í því tilefni margt
góðra gesta fyrir á flugvellinum,
undir forystu Allan Mclean borg-
arstjóra, til þess að bjóða Loftleiða-
menn velkomna á ný.
Ráðgert er að hefja á vori kom-
anda áætlunarferðir til Lundúna,
en urn flugstöðvar þeirrar borgar
er nú ferðamannastraumur mestur
í Evrópu og því til mikils að vinna,
ef tekst að fá örugga fótfestu. Til
forstöðu Bretlandsdeildar hefir
Blaðamenn i boði Loftleiða vegna
Bretlandsflugsins.
verið ráðinn enskur inaður, sem á
að baki langa og gifturíka reynslu
í ferðamálum.
Fargjaldamál Loftleiða.
Á árinu hefir gætt nokkurs úlfa-
þyts heima og erlendis vegna hinna
hagstæðu fargjalda Loftleiða, en
til þeirra má meðal annars rekja
tregðu þá, sem alkunn er af Svía
hálfu í samningamálum um flug-
ferðir. Hljótt er nú í bili um þessi
mál, fargjöldin óbreytt og fram-
lenging fengin hjá Svíum til ferða
fram i miðjan næsta maímánuð,
en fyrir þann tíma vona menn að
fullnaðarlausn verði fengin á
þrætumáli þessu, sem varpað hefir
skugga á þá góðu samvinnu, sem
kappkostuð er á öðrum sviðum
milli Norðurlandabúa.
Fargjaldadeilan hefir vakið at-
hygli víðar en á Norðurlöndum og
orðið til þess að minna skemmti-
lega á tilvist hins islenzka félags.
Má til dæmis í því sambandi geta
þess, að hið kunna tímarit „Busi-
ness Week“ staðhæfði, að það væri
fyrst og fremst vegna forgöngu
Loftleiða, að afráðið væri nú að
stóru flugfélögin stefndu í náinni
framtíð að almennri lækkun flug-
fargjalda á flugleiðunum yfir
Norður-Atlantshafið.
■ ý ; ''