Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Blaðsíða 34

Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Blaðsíða 34
ungis mikið hagsmunamál öllum þeim, sem að íslenzkum samgöngu- málum vinna, heldur gæti hún, et skynsamlega er á haldið, orðið traustur grundvöllur að arðbærri atvinnugrein, svo sem dæmi sanna frá öðrum þjóðum. Flugstöðvarbygging. Með hinni sívaxandi umferð þrengist æ stakkurinn, sem athöfn- um Loftleiða er sniðinn á Reykja- víkurflugvelli, og segja má, að að- staðan þar til afgreiðslu farþega sé nú orðin óviðunandi. Einhverj- ar ráðagerðir munu nú uppi um að hið opinbera reisi í Reykjavík flugstöðvarbyggingu, en langt mun enn frá þeim til þess að fram- kvæmdir verði hafnar, og er því ekki annað sýnilegt en að félagið verði að grípa til einhverra bráða- birgðaúrræða á næstunni til þess að afstýra hreinum vandræðum í íarþegaafgreiðslu, svo sem gert var að því er beina varðar með veit- ingasalnum, er félagið kom upp í einum af setuliðsskúrum flugvall- arins. Eru allar slíkar ráðstafanir bæði dýrar og ófullnægjandi, og lausn málanna því vitanlega sú, að hraðað verði byggingu nýrrar flug- stöðvar, þar sem flugstarfsemi allri verði búin sæmileg miðstöð hér í höfuðstaðnum. Niðurlag. Eðlilegt er að einhverjir vilji skyggnast inn á vonalönd hins nýja árs og spyrjast fyrir um, hvað Loftleiðir hafi markverðast í hyggju. Því er til að svara, að hald- ið mun áfram, að öllu forfalla- lausu, á þeirri braut, sem nú hefir verið mörkuð, reynt að auka mark- aðinn á flugleiðinni yfir Norður- Atlantshafið, svo sem verða má, með sams konar tækjum og þeim, sem félagið hefir nú yfir að ráða. Auk þess gat framkvæmdastjóri félagsins þess fyrir nokkru í blaða- viðtali, að félagið reyndi að fylgj- ast sem bezt með öllum nýjungum og hefði hug á að afla sér nýrra og hraðfleygari flugvéla, svo fljótt sem aðstæður leyfa. Þær verða þó trúlega ekki keyptar á næsta ári, en ef drög verða að því lögð og félagið vex enn við þau skilyrði, sem því eru nú búin, þá eru þau áramót, sem nú fara í hönd, einn Flugmálafélagið gengst fyrir för til Shannon á írlandi. Ráðamönn- um gafst kostur á að gera saman- Flugturninn á Shannon-flugvelli. Hann er nýbyggður, en annars eru flestar byggingar á flugvellinum frá stríðsárunum tumburhús. Maríulíkn eski úr hvítum marmara stendur nálægt aðaldyrunum. Turninn á Reykjavíkurflugvelli er hryggðarmvnd, bæði ljótur og hriplek- ur. Höfum við alls ekki efni á að koma upp turni í líkingu við myndina. Þetta er ekki stórhýsi, en bæði snoturt í út- liti og vatnshelt. (Jón Eyþórsson tók myndina). áfanginn enn að því marki, sem stefnt er til, að íslendingar eignist flugfélag, er geti orðið fyllilega samkeppnisfært við flugfélög þeirra þjóða, sem ríkari eru að fé og fjölmennari en við. Reykjavík, í des. 1956. Sigurður Magnússon. burð á flugstöðinni þar og Kefla- vikurflugvelli. A síðastliðnu vori gekkst Flug- málafélag íslands fyrir því að bjóða nokkrum ráðamönnum landsins til Shannon á írlandi til þess að skoða flugstöðina þar, sem talin er mjög fullkomin. Var þetta gert til þess að gefa þessum mönnum kost á að bera ílugstöðina saman við flug- stöðina í Keflavík, en með tilliti til Atlantshafsflugs eru flugstöðvar þessar rnjög sambærilegar. Mismun- urinn á aðbúnaði öllum fyrir far- þega er þó gerólíkur á þessum stöðurn, enda mikil þörf lagfæring- ar á því sviði í Keflavík. Til fararinnar var boðað með svohljóðandi bréfi: Reykjavík, 21. apríl 1956. Flugmálafélag íslands leyfir sér hér með að bjóða yður, herra (J. ].), að taka þátt í ferða- lagi til Shannon á írlandi og fleiri flugvalla austan hafs til þess að kynnast í fljótu bragði rekstri þeirra, einkum því, er lýtur að mót- töku og aðbúnaði ferðamanna og tollfrjálsri sölu ýmislegs varnings til farþega og áhafna flugvéla. Ferðin hefst þriðjudaginn 24. apríl. Verður flogið til Lundúna og síðan til Shannon. Nöfn vænt- anlegra þátttakenda í förinni eru á meðfylgjandi lista. JWS Flu^málafélaásms til Sliannon. 32 - FLUG

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.