Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Page 35

Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Page 35
Vér álítum brýna nauðsyn bera til þess, að fyrirgreiðsla erlendra farþega og flugliða hér á landi komist í svipað horf og bezt gerist hjá nágrönnum vorum. Ella eig- um vér á hættu, að erlendar far- þegaflugvélar sneiði gersamlega hjá íslenzkum flugvöllum og þjóðin verði af æskilegum gjaldeyristekj- um. Til að geta ráðið fram úr þeim málum á heppilegan hátt, er nauð- synlegt að kynnast þeim af eigin sjón og raun. Þess vegna er stofn- að til þessarrar farar, og þess vegna óskum vér eindregið þátttöku yðar. Virðingarfyllst, f.h. Flugmálafélags Islands Jón Eyþórsson. Páll B. Melsteð. Nöfn þátttakenda í för til Shan- non, apríl 1956: Sigtryggur Klemenzson, ráðneyt- isstjóri. Pétur Ottesen, formaður fjárveit- inganefndar. Tómas Árnason deildarstjóri í varnarmálaráðuneytinu. Guðbrandur Magnússon, forstj. Þórður Björnsson, bæjarfulltrúi. Páll B. Melsteð, forstjóri. Aagnar Kofoed-Hansen, flug- málastjóri. Jón Eyþórsson, form. Flugmála- félags íslands. Nokkrum fleirum var boðið, en þeir gátu ekki tekið þátt í förinni sökum anna. För þessi þótti hin ánægjulegasta og var bæði til fróðleiks og skemrnt- unar. Auk dvalarinnar í Shannon dvöldu flestir þeir, sem í förinni voru, í London í vikutíma. Kostnað allan annaðist Flug- málafélagið með tilstyrk nokkurra velviljaðra aðila. „Hvað er svo glatt ... Á Shannon-flugvelli, apríl 1956. Pétur Ottesen hitti þar tvær frændkonur sínar. Þær smakka ekki einu sinni írskt kaffi! (Jón Eyþórsson tók myndina.) Sjúkraflug Ekki verður þessi smásaga seld dýrara verði en hún var keypt. En þannig lítur hún út eins og hún barst „Flugi“ til eyrna. Það var á bernskudögum Loft- leiða, að þeir félagarnir Alfreð Eliasson og Kristinn Olsen voru beðnir að fara tafarlaust norður á Ingólfsfjörð á Ströndum til þess að sækja þangað fársjúkan mann. Ekki komust þeir af stað fyrr en daginn eftir vegna slæms veðurs, en þá var haldið sem leið liggur þangað norður og lent á firðinum. Heimamenn komu niður i fjör- una, en létu þar ekki staðar num- ið, heldur ösluðu út í sjóinn til þess að taka á móti þessum vel- komna en sjaldséðna gesti. Var nú hafizt handa um að draga flugvél- ina að landi. Þeir félagar spurðu þegar, er þeir voru komnir í kallfæri, eftir hinum fársjúka rnanni, því að eng- ar sjúkrabörur sáu þeir í fjörunni. — Það er nú ég, gall þá í ein- um, þar sem hann stóð upp undir hendur í sjónum og gekk hart fram í að draga flugvélina til lands. — Nú, hvað er þetta, maður, þú sýnist ekki rnikið veikur, sagði ann- ar þeirra félaga, er þeir höfðu átt- að sig á þessum undrum. — Ja, ég var nú eiginlega skrambi slæmur í gær. En ég er snöggt um skárri í dag. FLUG - 33

x

Flug : tímarit um flugmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.