Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Qupperneq 38

Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Qupperneq 38
tók þaðan þýðingar. T. d. eru þannig til komin flest dönsk og þýzk orð í orðasafninu, en auk þess margt enskra orða. Þannig tók- um við Baldur þýðingar á orðurn um flughreyfilinn, sem munu vera um 1200, úr bók þeirri, er áður getur, að Jón A. Stefánsson hafi þýtt. Flestar þýðinganna eru þó gerðar af nefnd flugfróðra manna, er þessir menn áttu sæti í: Bjarni Jensson yfirflugnmsjónarmaður, Björn Guðmundsson flugstjóri og Bogi Þorsteinsson yfirflugumferð- arstjóri. Auk þess unnu að þessu starfi Björn Jónsson framkvœmdar- stjóri, Sigurður Jónsson, forstöðu- maður loftferðaeftirlitsins, Þor- steinn Jónsson flugstjóri og Sig- fús H. Guðmundsson framkvæmd- arstjóri. Kvaddi Sigfús þessa menn á fund og hafði yfirumsjón með verkinu. Jón Eyþórsson veðurfrœð- ingur þýddi orð úr veðurfræði og Sigurður Malthiasson fulítrúi orð, er varða flugafgreiðslu, loftferðir og rekstur flugfélaga. Flugmálastjóii Agnar Kofoed- Hansen sat nokkra fundi orðabók- arnefndar, er farið var yfir orða- skrárnar, en fundartími var honum óhentugur, svo að hann gat ekki sótt þá eins mikið og hann hefði viljað. Aðalráðunautur nefndar- innar var Sigfús H. Guðmundsson framkvcemdarstjóri. Sat hann svo að segja alla fundi orðabókarneínd- ar, meðan flugmálið var á dagskrá, þótt hann ætti óhægt með, eftir að hann fluttist til Keflavíkur. Þá var Jón A. Stefánsson flugvélaeftirlits- maður ráðunautur um allt, er varð- aði ílughreyfilinn, og Sigurður Matthíasson fulltrúi um það, er laut að flugafgreiðslu, loftferðum ogrekstri flugvéla. Ráðunautur um veðurorð var Jón Eyþórsson veður- frœðingur. Við útgáfu nýyrðasafnsins hafa að öðru leyti þessir menn veitt mér aðstoð: Steingrimur Jónsson raf- magnsstjóri las yfir handritið og gerði margar tillögur til bóta, Gat ég af ýmsum sökum ekki fært mér nema nokkurn hluta þeirra í nyt. Guðni Guðmundsson M. A. aðstoð- aði mig við samningu ensk-íslenzka orðasafnsins og hann og Högm Torfason fréttamaður hjálpuðu mér við samanburð handrits og prófarka. Sigfús H. Guðmundsson las aðra próförk af íslenzka orða- safninu. Öllum, sem hafa veitt mér og orðabókarnefnd hjálp við útgáfu nýyrðasafnsins, færi ég beztu þakkir.“ - Vetrarnótt á Keflavíkurflugvelli. Framhald af bls. 20. arkyns, gosdrykki og kaffisull. Lé- leg minjagripasala er hér og er þá upptalið. Húsrúm er svo lítið fyrir farþegana, að margir verða að standa upp á endann þegar mikið er að gera og margar flugvélar eru hér í einu, eins og oft er. Ég vil skjóta því hér til réttra aðila, að það er stór nauðsyn og verður okk- ur til mikils fjárhagslegs ábata að bæta skilyrðin fyrir farþegana í Keflavík, því eins og þetta er nú, er þetta okkur til háborinnar skammar svo að ekki sé meira sagt. Lindberg og ungverskir flóttamenn. Og að lokum skulum við lítils- háttar athuga hvaða farþegar hafa nú verið á ferðinni hér í Keflavík í nótt. Það vill ekki ósjaldan til að heimsfrægir menn og konur eru hér á ferð. Þessa nótt réði tilviljun því að ég'sá hinn fornfræga flugkappa lándberg, sem nú er orðinn aldr- aður maður og gráhærður. Var hann þarna á ferð með einum af varaforsetum PAA, sem lieitir H. Grey, en varaforsetar þess félags eru 6 eða 7 talsins. Atlantshafs- flugið heyrir undir þennan for- seta. Lindberg hershöfðingi er leiðbeinandi hjá PAA og hefir hann hlotið hershöfðingjanafnbót- ina í heiðursskyni frá Bandaríkja- her. Ég hitti einnig fjölda ungverskra flóttamanna, er eru á leið sinni vestur til Bandaríkjanna. Átti ég tal við marga um hörmungar þeirra í frelsisbaráttunni og á flóttanum frá heimalandi þeirra. Verður sú sorgarsaga ekki rakin hér nánar. Það er kominn bjartur dagur, þeg- ar ég liekl á brott frá þessari stærstu flughöfn okkar íslendinga. Viðburðarík nótt er á enda. Hún er fyrst og fremst viðburðarík og lærdómsrík fyrir mig, en margar slíkar nætur ganga yfir Keflavík, þegar óveður ekki stöðvar umferð- ina. vig. HraSamet. í sl. septembermánuði fór ein af flugvélum Loftleiða á 10 klukku- stundum og 12 mínútum frá New York til Reykjavíkur og þótti það svo hröð ferð, að naumast væru líkur til að Skymasterflugvél færi þessa leið á skemmri tíma, en kl. rúmlega 3, 15. jan. var leiguflugvél Loftleiða, LN-SUP, lent hér á Reykjavíkurflugvelli og hafði hún þá bætt fyrra metið um 26 mínút- ur, þar sem flugtími hennar frá New York til Reykjavíkur reynd- ist ekki hafa verið nema 9 klst. og 44 mínútur, en það svarar til um 450 km meðalhraða á klukkustund. Flugstjóri í þessari hraðferð flugvélarinnar var Einar Arnason, en flugleiðsögumaður Halldór Ól- afsson. Farið var yfir Gander og sunn- an Grænlands eftir hinni svo- nefndu stórbaugslínu. Vindar voru mjög hagstæðir og var byrinn oft um 16 vindstig. Flogið var oftast í 11 þúsund feta hæð. 36 - FLUG

x

Flug : tímarit um flugmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.