Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Síða 40

Flug : tímarit um flugmál - 01.12.1956, Síða 40
af hálfu hinnar nýkjörnu félags- stjórnar vel undir bendingar þær, sem gefnar hafa verið, taldi verk- efni næg. Loks kom fram sú hugmynd, að Vilhjálmur Steiánsson, landkönn- uðurinn nafnkunni frá Vestur- heimi, yrði fenginn til þess að flytja erindi um flugsamgöngur á vegum hins nýstofnaða félags. Var vel undir það tekið af fundarmönn- um. En Vilhjálmur Stefánsson hafði átt setu á fundinum. Að endingu var, að tillögu Skúla Skúlasonar blaðamanns, samþykkt að þeir sem gengju í félagið á hin- um fyrsta almenna fundi, er boð- að yrði til, skyldu teljast stofn- félagar. Fundinn sóttu um 30 manns, 23 menn innrituðu sig í félagið á fundinum, en nokkrir menn höfðu horfið af fundinum áður en inritun hófst undir fund- arlok. Fleira var ekki tekið fyrir. Fundi slitið. Agnar Eldberg Kofoed-Hansen. Guðbrandur Magnússon. ANNAR FLNDUR. Hinn 31. ágúst var fundur hald- inn í Flugmálafélagi Islands. Stóð fundurinn á Hótel Borg, „Gyllta salnum“ og hófst kl. 8.30 síðdegis. Formaður setti fundinn, nefndi Björn Ólafsson stórkaupmann til fundarstjóra. Þá bauð formaður Vilhjálm Stefánsson velkominn á fundinn og lét þess getið að Vilhjálmur myndi flytja erindi um flug og flugskil- yrði á norðurleiðum. Því næst tók Vilhjálmur Stefáns- son til máls. Var honum fagnað af fundarmönnum með löngu og al- mennu lófataki. Ávarpaði ræðu- maður fundarmenn á íslenzku, en kvaðst vera orðinn stirður í móð- urmálinu. Erindið flutti hann á ensku. Að erindinu loknu ávarpaði Pálmi rektor Hannesson Vilhjálm Stefánsson og þakkaði erindið jafnframt. A fundinum innrituðust 70 félag- ar. Jafnframt var veitt viðtaka ár- gjöldum og greiddust þau ljúflega. Að fundarlokum fengu rnenn sér kaffi og einnig var stiginn dans. Guðbrandur Magnússon. Fyrsti stjórnarfundur Flugmála- félags íslands var haldinn að Hótel Borg 2. ágúst 1936 kl. 16. Stjórnin skipti með sér verkurn: Varaforseti var kosinn Pálmi Hannesson rektor, ritari Jón Ey- þórsson, gjaldkeri Sigurður fónas- son, forstj. Tóbakseinkasölu ríkis- ins. Ákveðið var að halda félags- fund að Hótel Borg miðvikudag- inn 31. ágúst. Hafði Vilhjálmur landkönnuður Stefánsson tjá sig fúsan til að flytja þar erindi um „Norðurleiðina" og önnur flugmál. Agnar E. Kofoed-Hansen. Jón Eyþórsson. Annar stjórnarfundur var hald- inn á skrifstofu Flugmálafélagsins í Bankastræti 11 föstudaginn 30. apríl 1937. Mættir voru auk forseta: Pálmi Hannesson, Sigurður Jónasson, Jón Eyþórsson og Guðbrandur Magn- ússon. Rætt um útgáfu flugmálarits. Forseti skýrði frá því að félaginu bærist nú þegar fjöldi erlendra flugtímarita og væri varla vansa- laust að hafa ekkert til að láta á móti. Efni væri nóg fyrir hendi í slíkt rit, það mundi verða mikil auglýsing fyrir landið út á við í heild sinni og loks væri hægt að fá langdrægt upp í kostnaðinn með því að tryggja sér auglýsingar frá olíufélögum þeim, sem hér starfa. Ráðgert var að ritið yrði í 4 bl. broti með 16 lesmálssíðum til að byrja með og 8 auglýsingasíðum, prentað á vandaðan pappír í lit- prentaðri kápu. Framan á henni skyldi vera kort af „Norðurleið- inni“. Forseta falið að leita nákvæmra verðtilboða og tryggja auglýsingar. Aðalfundur ákveðinn miðviku- daginn 12. maí. Fleira ekki rætt. Agnar E. Kofoed-Hansen. Jón Eyþórsson. ÁRIÐ SEM LEIÐ VARÐ LOFTLEIÐUM MJÖG HAGSTÆTT. Árið 1956 fluttu Loftleiðir 21. 773 farþega, en það er um 5 þús. farþegum fleira en árið áður og nemur aukningin því 29.49% mið- að við 1955. — Vöruflutningar urðu 230 tonn og reyndist það 30.71% meira en fyrra ár. Póst- ílutningar jukust um 38.93% og aukning farþegakílómetra varð 25.13%. - Alls var flogið 3.110.098 km vegalengd á 9.911 flugstund- um. Á tímabilinu frá 20. maí til 15. október voru fimm vikulegar ferð- ir farnar milli New York og Norður-Evrópu með viðkomu á Islandi og auk þess frá miðjum júlímánuði ein ferð í viku milli íslands og meginlands Norður- Evrópu. Upp úr miðjum október var New York ferðunum fækkað niður í fjórar í viku og mun svo verða þangað til 20. maí í vor, tn þá er ráðgert að taka upp dagleg- ar ferðir milli New York og Norður-Evrópu. Loftleiðir tóku eina Skymaster- flugvél á leigu í s. 1. ágústmánuði og hefir félagið því nú ráð yfir fjórum Skymasterflugvélum. Frá því í haust hafa þó ekki nema þrjár verið í förum í senn, þar sem ein- hver ein þeirra hefir jafnan verið bundin við hina lögskipuðu árlegu skoðun og eftirlit. Á s. 1. hausti lagði félagið niður ferðirnar til Luxembourg, en mun hefja þær aftur að vori með við- komu í Glasgow. 38 - FLUG

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.