Herjólfur - 01.09.1940, Side 7

Herjólfur - 01.09.1940, Side 7
HERJÓLFUR 5 skyndimyndum úr daglegn lífi Eyja- skeggja. Áður en ég geri það, finnst mér þó sem ég verði að lýsa sjálfum íbú- unum, og þá einkum hinum hrein- ræktuðu Eyjaskeggjum að nokkru, eins og mér finnst ég hafa kynnst þeim. Hygg ég að ég geti það með fáu betur, en að taka tvö stutt dæmi um framkomu Eyjarskeggja undir ólíkum kringumstæðum. Annað þeirra gerist á Þjóðhátíð Vestmannaeyinga, en hún er fyrir löngu orðinn landskunnur mannfagn- aður. Eitt af skemmtiatriðum, sem þar fara þá fram, er bjargganga og bjargsig. Fer það fram í hamri ein- um inni við Herjólfsdal og nefnist sá hamar Fiskhellanef, sökum þess, að í skútum þar uppi í berginu, hertu sumir Eyjarskeggja áður fisk sinn. Er klettur þessi eða hamar svo, að hann slútir allmikið fram yfir sig, og virðist þess vegna ógengur þeim, sem ekki þekkja hina frábæru bjarg- fimi Vestmannaeyinga. Þennan dag eru það tveir af beztu bjargmönnum Eyjanna, sem þar sýna fimi sína, og horfir mannf jöldinn á með undrun og aðdáun, og þeir af honum, sem eru aðkomumenn, með nokkrum ótta á hvernig þessir tvímenningar þræða örmjóar sillur og stalla, þar sem vart virðist fótfesta nein, eða vega sig með handafli upp á brúnir, þar sem þeir virðast aðeins geta tyllt fingurgóm- unum. Vaxtarmunur þessara tveggja manna er nokkur og fer sá, sem hærri er, á undan. Á einum stað, þar sem bergið slút- ir fram yfir sig, verður sá, sem fyrr fer, að halla sér út frá berginu og seilast upp á næstu sillubrún, en hún er það hátt undan, að hann aðeins nær þangað með fingrunum. Samt gengur honum vel og vegur hann sig hratt og öruggt upp á hana, en fætur hans og líkami svífa í lausu lofti á meðan út frá berginu í allt að 50 metra hæð yfir höfðum áhorfenda. Þegar hann er kominn upp á silluna og búinn að ná þar sæmilegri stöðu, býst hann til að teygja hendur sínar niður fyrir brúnina til aðstoðar þeim lágvaxnari, sem á eftir fer, og sem ekki getur með neinu móti teygt það Sf'lalldót (ðlafsson íöggíííut zafoívÆj.ameíslaví Þingholtsstræti 3. — Sími 4775. Viðgerdarverkstœði fyrir Rafmagnsvélar og Rafmagnstœki RAFLAGNIR allskonar. Hamingjusömustu Trúlofunarhringarnir eru frá SIGURDÓR Hainarstræti 4. — Reykjavík. Vestmannaeyingar! Úskar Sigurdsson, tekur á móti pöntunum, hann hejir einnig hringamál. —

x

Herjólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Herjólfur
https://timarit.is/publication/1871

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.