Herjólfur - 01.09.1940, Page 9

Herjólfur - 01.09.1940, Page 9
HEEJÖLFUB 7 Eyjabúa, gert þá að sannnefndum víkingum í nútíma merkingu þess orðs.-------- Þá ætla ég að biðja ykkur, lesend- ur, að reyna að bregða ykkur í anda, eins og þar stendur, með mér- til Vestmannaeyja. Það er um kvöld í byrjun marzmán- aðar. Hljótt er í bænum og fátt manna á ferli. Innan skamms er kvöldkyrrðin rof- in af þungu fótataki karlmanna, sem koma hvaðanæfa úr húsum og halda niður að sjó. Flestir þeirra halda á sjóstökkum eða öðrum hlífðarfötum undir hendi og eru með sjóhatta á höfði. Einnig bera þeir kistla litla, það eru nestisgeymslur þeirra, því þessir menn eru að leggja af stað í róður. Og nú fer að heyrast allskonar skarkali frá beituskúrunum og höfn- inni. Vagnhjólaskark og vélaslög, saman við köll og fyrirskipanir. Þeirn bátum, sem legið hafa úti á höfninni, er nú haldið upp að bryggjum. Nú fer að f jölga um annað fólk á götun- um. Sumt af því heldur ofan að bryggjum, en margt af því fer út á Skans, en svo er upphlaðin hæð ein nefnd, sem stendur á ströndinni við víkina, rétt fyrir ofan syðri hafnar- garðinn. Er þessi hæð í raun og veru gamalt vígi, og hið eina, sem til hefir verið í sæmilegu ásigkomulagi hér á landi .. . fram að þessum dögum. Þarna nemur fólkið staðar, ungar stúlkur, börn, eldri konur og menn, í einum þögulum hóp eins og það vænti einhvers sérstaks atburðar. — Innan skamms hækka vélaslögin, taktföst eins og hrynjandi lags, hljóma þau í næturkyrrðinni og berg- mála í hamraveggjunum. Einn og einn bátur heldur út fyrir hafnar- garðana ... út undir Klettsnefið; þar lækka vélslögin og bátarnir nema staðar, eins og einnig þeir séu að bíða eftir einhverju sérstöku. Eftir nokkra stund eru komnir þarna margir bátar, ef til vill yfir fimmtíu eða sextíu. Þeir nema allir staðar þarna ... mynda nokkurn veginn beina línu með björtum og kvikandi ljóskerum sínum á stögum og siglutrjám. Það er eitthvað heill- andi ög fagurt við alla þá ljósadýrð, Brunatrygginga r. Lausafé, þar á meðal fiskbirgðir í húsum og stökkum, hjá útgerðar- mönnum, brunatryggir með beztu fáanlegum kjörum. Brunabótafélag fslands Umboðið í Vestmannaeyjum.

x

Herjólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Herjólfur
https://timarit.is/publication/1871

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.